Heilbrigðismál - 01.06.1995, Side 11
Pétur Brynjólfsson (Þjóðminjasafnið)
öld eftir Krist. Verslunarleiðin lá
um hið sjúkdómshrjáða og jafn-
framt sjúkdómsreynda Indland og
má leiða rök að því að þetta hafi
valdið því að rómverska heims-
veldið og Han keisaradæmið í Kína
hrundu um svipað leyti. Margir
telja að mislingar og bólusótt hafi
átt þar stóran hlut að máli enda ný-
ir sjúkdómar fyrir Evrópumenn og
Kínverja.
í annað skiptið tengdust afdrifa-
ríkar farsóttir myndun heimsveldis
Mongóla á þrettándu öld. Asía, frá
Kyrrahafsströnd, tengdist Austur-
Evrópu og Mið-Austurlöndum með
Berklafaraldur
rís og dvínar
Berklar hafa að öllum líkind-
um upprunalega borist til manna
frá dýrum. Lengi vel voru berkl-
ar staðbundnir og ollu ekki um-
talsverðum usla. Fyrir um það bil
fjögur hundruð árum varð breyt-
ing á. í Vestur-Evrópu hófst þá
mikill berklafaraldur í upphafi
iðnvæðingar sem síðar breiddist
út á mismunandi tímum til Am-
eríku, Afríku og Asíu. Til íslands
barst hann fyrst undir lok síð-
ustu aldar.
Reynslan sýnir að berklafar-
aldur sem brýst út í samfélagi
sem ekki hefur kynnst sjúk-
dómnum áður nær hámarki á 50-
75 árum. Síðan dregur úr faraldr-
inum smám saman en þó mun
hægar en hann reis.
í byrjun leggjast berklar eink-
um á börn og ungt fólk, sjúk-
dómurinn berst með blóði til
margra líffæra og dánartíðni er
há. Með tímanum á sér stað nátt-
úrulegt úrval einstaklinga sem
þola berklabakteríuna betur og
lifa lengur með hana. Lungna-
berklar verða áberandi. Að lok-
um ber einkum á því að smitaðir
menn veikist fyrst á efri árum ef
þeir veikjast á annað borð. Er þá
berklafaraldur að mestu genginn
yfir.
Hér á landi náði berklafarald-
herflutninga- og verslunarleiðum
sem opnuðu samtímis farveg fyrir
bakteríu sem veldur svarta dauða
og var landlæg meðal nagdýra í
Suðaustur-Asíu. Svarti dauði barst
til Evrópu á fjórtándu öld og er tal-
ið að þriðjungur íbúa álfunnar hafi
fallið í valinn vegna plágunnar.
Drepsóttin hafði djúpstæð áhrif á
menningar- og trúarlíf Evrópubúa
og leiddi til siðaskipta og endur-
reisnarhreyfinga.
Þriðja hörmungin af þessum toga
varð þegar Spánverjar fundu Am-
eríku. Enn á ný voru það mislingar
og bólusótt sem áttu sökina og Evr-
urinn hámarki upp úr 1930.
Framan af var ungbarnadauði af
völdum berkla gífurlegur. Síðar
dró smám saman úr dánartíðni
barna og ungs fólks jafnframt því
að hún jókst hlutfallslega hjá
þeim sem voru komnir á efri ár.
Þótt sóttvarnaraðgerðir gegn
berklum og meðferð sjúkdóms-
ins hafi haft mikla þýðingu við
að vinna bug á faraldrinum
skipti þó náttúrulegur gangur
hans mestu fyrir hnignun hans.
Um þessar mundir berast fregnir
af því að berklar færist í aukana
einkum meðal Austur-Evrópu-
búa og íbúa margra þróunar-
landa, þangað sem berklafarald-
urinn barst tiltölulega seint. Því
ópubúar báru með sér. Þessar far-
sóttir tóku ómakið af spönsku her-
mönnunum og brutu Indíánana á
bak aftur með miklu mannfalli.
Oftar en ekki hefur það verið hlut-
skipti örveranna, en ekki vopn-
anna, að fella andstæðingana.
Veðurfnr er áhrifavaldur smitsjúk-
dóma. Ferðist menn frá löndum
með köldu eða tempruðu loftslagi
til landa þar sem loftslag er heitara
og rakara aukast líkur á því að
verða fyrir hættulegum örverum,
enda skilyrði öll betri fyrir sýkla
þar. Fjölmörg dæmi eru um það að
þegar herir stórvelda hafa flutt sig
er hann þar víða enn virkur og
sóttvarnir og meðferð ófullnægj-
andi. Tíðir fólksflutningar frá
þessum svæðum til Vestur-Evr-
ópu og Norður-Ameríku geta
leitt til þess að berklar komi aft-
ur. Síðast en ekki síst hefur al-
næmisfaraldurinn dregið mjög
úr viðnámsþrótti gegn sýkingum
sem greiðir m.a. götu berklasýk-
inga, jafnvel meðal þeirra sem frá
náttúrunnar hendi hefðu getað
varist sýkingu. H.B.
Berklasjúklingar í skýli við Víf-
ilsstaðaspítala, en talið var að
ferskt loft ynni á þessum illvíga
sjúkdómi.
HEILBRIGÐISMÁL 2/1995 11