Heilbrigðismál - 01.06.1995, Blaðsíða 27

Heilbrigðismál - 01.06.1995, Blaðsíða 27
Flokkun krabbameins í blöðmhálskirtli eftir útbreiðslu Stig A: Finnst við skurðaðgerð á blöðru- hálskirtli vegna góðkynja stækkunnar. Þreifing kirtilsins er eðlileg. Stig B: Finnst við þreifingu á kirtlinum en er innan hans. Stig C: Er vaxið út fyrir kirtilinn. Stig D: Hefur dreift sér til eitla eða beina. til greiningar þrátt fyrir að viðkom- andi hafi engin einkenni og þreif- ing kirtilsins geti jafnvel verið eðli- leg. Ekki er ljóst hverjar horfur þessara einstaklinga eru en taka verður tillit til þess hversu hátt mæligildið er og hvert útlit krabba- meinsfrumanna er. í ofangreindum tilvikum (stig A og B) er talað um staðbundinn sjúkdóm, að því til- skyldu að frekari útbreiðsla hafi verið útilokuð. Með útbreiddum sjúkdómi getur annars vegar verið átt við að krabbameinið hafi vaxið út fyrir mörk kirtilsins (stig C) eða nái til grindarholseitla eða beina (stig D). I þessum tilvikum gagnar lítið að beita staðbundinni meðferð og er þá gjarnan gripið til hormónameð- ferðar. Bíða má með meðferðina Þegar krabbamein greinist í blöðruhálskirtli ræðst meðferð af útbreiðslu æxlisins en einnig er höfð hliðsjón af aldri og heilsu sjúklings. Kirtillinn (merktur með ör) er neðan við þvagblöðruna og umlykur þvagrásina. Algengar spumingar um krabbamein í blöðmhálskirtli Hver eru einkennin? Ef krabbameinið er bundið við kirtilinn veldur það sjaldnast einkennum og greinist gjarnan við þreifingu á kirtlinum, vegna blóðrannsókna eða ef það finnst fyrir tilviljun við skurðaðgerð á blöðruhálskirtli vegna góðkynja stækkunnar. Breytingar á þvag- látum, svo sem þvagtregða eða tíð þvaglát, geta komið fram en stafa oftast af góðkynja sjúk- dómum í blöðruhálskirtli. Krabbamein sem er útbreitt get- ur valdið m.a. beinverkjum, megrun og slappleika. Hverjir eru áhættuþættirnir? Tíðnin eykst með þækkandi aldri en meðalaldur við grein- ingu er um 74 ár. Hjá tíunda hverjum er krabbameinið ætt- lægt. Áhættan getur tvöfaldast til fjórfaldast ef faðir eða bróðir hefur krabbameinið og er jafn- vel enn meiri ef fleiri en einn nákominn ættingi hefur meinið. íslenskar rannsóknir hafa bent til tengsla krabbameins í blöðruhálskirtli hjá körlum og brjóstakrabbameins og eggja- stokkakrabbameins hjá konum. Neysla dýrafitu og kjöts er talin auka hættu á að fá sjúkdóminn. Hvernig er krabbameinið greint? Tekið er sýni úr blöðru- hálskirtlinum með lítilli nál og venjulega farið í gegnum enda- þarmirtn. Greiningin er síðan byggð á smásjárskoðun sýnisins og einnig er hægt að meta útlit (gráðu) æxlisins. Góðkynja útlit krabbameinsfrumanna gefur vonir um hægari vöxt en ill- kynja útlit bendir til hraðari vaxtar. Þegar greiningin liggur fyrir er útbreiðslan (stig sjúk- dómsins) metin með blóðrann- sóknum, sneiðmyndatöku og ísótóparannsókn af beinum. Hvaða blóðrannsóknir eru gerðar? Á síðustu árum er farið að nota rannsóknaraðferðir sem eru mun næmari en fyrri að- ferðir og líklegra er en áður að finna sjúkdóminn á lægri stig- um. Leitað er að eggjahvítuefni sem nefnist Prostate Specific Antigen (PSA) og myndast nær undantekningarlaust í blöðru- hálskirtlinum. Þrátt fyrir að mæligildin séu hærri en venju- lega ef um krabbamein er að ræða geta þau einnig hækkað við góðkynja stækkun á kirtlin- um og við sýkingar eða bólgur. Hækkun á mæligildum milli ára er oft hjálpleg til að greina krabbamein frá góðkynja sjúk- dómum. Hvaða meðferð stendur til boða? Hún fer eftir útbreiðslu sjúkdómsins og heilsu og aldri sjúklings. Hjá manni yfir sjötugt með staðbundinn sjúkdóm kemur sterklega til greina að bíða með meðferð og veita hana einungis ef sjúkdómurinn verð- ur skæðari. Lækning felst annað hvort í brottnámi kirtilsins eða geislameðferð. Ef sjúkdómurinn hefur náð að dreifa sér er horm- ónameðferð beitt. Þá er karl- kynshormónið testósterón (sem krabbameinsfrumurnar þarfnast venjulega til vaxtar og viðhalds) fjarlægt úr blóðinu. Dugi sú meðferð ekki þarf stundum að gefa krabbameinslyf. Hvenær og hversu oft á að fara í skoðun? Þetta er umdeilt. Margir norrænir læknar halda því fram að ekki eigi að skoða eða rannsaka einkennalausa menn vegna krabbameins í blöðruhálskirtli þar sem ekki hafi verið sýnt fram á ávinning af meðhöndlun á staðbundnum sjúkdómi. Bandaríska krabba- meinsfélagið mælir hins vegar með þreifingu um endarþarm og PSA-blóðrannsókn árlega eftir fimmtugt og jafnvel fyrr ef krabbameinið er í ættinni. E. ]. HEILBRIGÐISMÁL 2/1995 27

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.