Heilbrigðismál - 01.06.1995, Blaðsíða 30
að hafast ekkert að þá getur vitn-
eskjan um að krabbameinið sé til
staðar haft áhrif á lífsánægju.
Nýjungar í meðferð
A síðustu árum hafa verið reynd-
ar nýjar aðferðir til að lækna
krabbamein £ blöðruhálskirtli og
eldri aðferðir endurbættar. Dæmi
um þetta er frysting á kirtlinum
með prjónum sem stungið er inn í
hann og þannig reynt að drepa
krabbameinsfrumur. Annað dæmi
er þegar geislavirkum pinnum er
stungið inn í kirtilinn með hjálp
ómtækis og þannig reynt að gefa
sem mesta geislun á kirtilvefinn
sjálfan. Tíminn mun leiða í ljós
ágæti þessara aðferða.
Hægt er að nema kirtilinn brott
með því að skera framanvert við
endaþarminn. Samhliða þessari að-
gerð er hægt að kanna ástand
grindarholseitla með kviðsjá. Hvort
tveggja er minni aðgerð en þegar
kviðskurður er gerður.
Vandasamt val
Það getur verið erfitt fyrir þann
sem greinist með staðbundið
krabbamein i blöðruhálskirtli að
átta sig á því hvað best sé að gera
og að sama skapi fyrir lækninn að
ráðleggja meðferð. Mörgum finnst
það einkennilegt að valið skuli
spanna allt frá engri meðferð til
stórrar skurðaðgerðar og að val á
meðferð sé jafnvel sett í þeirra eigin
hendur. Flestir kysu að láta lækn-
inn segja sér hvað eigi að gera en
hér þarf samvinnu sjúklings og
læknis þar sem kostir og gallar eru
lagðir á vogarskálarnar.
Eiríkur Jónsson læknir er sérfræð-
ingur í þvagfæraskurðlækningum og
starfar á Landakotsspítala og Borgar-
spítalanum.
Pharmaco
Hörgatúni 2, Garðabæ, sími 565 8111
10% staðgreiðsluafsláttur fyrir
ellilífeyrisþega og öryrkja
HÁALEITIS APÓTEK
Háaleitisbraut 68, Reykjavik, sími 581 2101
VESTURBÆJAR
APÓTEK
Melhaga 20-22, Reykjavfk, sími 552 2190
GARÐS APÓTEK
Sogavegl 108, Reykjavík, sími 568 0990
Við erum í Domus Medica
LYFJABÚÐINIÐUNN
Egilsgötu 3, Reykjavík, sími 552 1133
Opið virka daga kl. 9-19
og laugardaga kl. 10-14
GRAFARVOGS APOTEK
Torginu, Hverafold 1-5, Reykjavík, sími 587 1200
Opið kl. 9-18.30 mánudaga - fimmtudaga,
kl. 9-19 föstudaga og kl. 10.30-14 Iaugardaga
APÓTEK GARÐABÆJAR
Garðatorgi, sfmi 565 1321, læknasími 565 1320
Vandað og virt tímarit
Heilbvigóismál
J4slqiftarsími 562 1414
30 heilbrigðismál 2/1995