Samtíðin - 01.02.1943, Blaðsíða 24
20
SAMTÍÐIN
„Já, þú. Við livern heldurðu, að
ég sé að tala?“
„Mig“, svara ég hreinskilnislega.
„Nú. Mikið var, að þú fannst það.
Svaraðu þá spumingu minni afdrátt-
arlaust. Hvar varstu í gærkvöldi?“
„Ég?“ Ég tek mig á og bæti við tii
frekari skýringar:
„Ég var heima hjá honum Helga
Skúlasyni. Við vorum. að spila,“
Glott hennar verður enn djöful
legra, og það vottar fyrir hræðileg-
um, sigurfagnandi glampa i augum
hennar: „Einmitt.‘‘
Svo hlær hún eins og vitfirringur.
„Nú er ég hrædd um, að þér hafi
brugðizt bogalistln.“
Hún rekur Morgunhlaðið upp að
nefinu á mér og öskrar af lífs og
sálar kröftum inn i eyrað á mér.
„Lestu. Lcslu þetta, beinið þitt.“
Með skjálfandi angistaraugum les
ég eftirfarandi tilkynningu:
„Hér með tilkynnist vinum og
vandamönnum, að minn heitt e!sk-
aði eiginmaður, Helgi Skúlason,
andaðist að heimili okkar, Trölla-
fossgötu 8, síðdegis í gær. Jarðar-
förin verður ákveðin síðar.
Friðhjörg K. Skúlason."
Eg viðurkenni l'úslega, að, mér
komu orðin „heitt elskaði eiginmað-
ur“ einkennilega fyrir sjónir. Helgi
sálugi var einn af heztu vinum mín-
um, pg ég þekki Friðbjörgu líka.
En það er aukaafriði. Hitt er meira
um vert, að ég veit ekkert, hvað
skeði á heimili mínu eftir þetta.
Skyldi einhvern langa lil að fá nán-
ari upplýsingar al' framhaldinu, þá
er þær eflaust að finna i sjúkraskýrsl-
um Landsspitalans,
Vinnuskilyrðin tryggja yður
(z7r/jófa
og-
góda
vínnu,
Þau eru bezt í rafmagnsfaginu á
Vesturgötu 3
Bræðurnir Ormsson
Höfum
bezt úrval af
hvers konar fáanlegum
blómu m
liinnig blóma- og matjurtafræ og
smekklegar leirvörur (keramik).
GARÐASTR.2 SÍMI 1899 *