Samtíðin - 01.06.1943, Blaðsíða 17

Samtíðin - 01.06.1943, Blaðsíða 17
SAMTlÐIN 13 liennar var Rósa, kona Guðmundar Höllusonar í Búrfelli. Svo er nier sagt, að minnsta kosti. Ég brosti og þagði við þessu. — Svo að Víglundur var í kosn- ingasnatti. Mikil rassaköst eru i þeim manni! — Hann er umsvifamikill, skulum við segja! — Mældir þú þar miklar flatneskj- ur og vel af liendi leystar? — Ekki eru þær til fyrirmyndar, verð ég að segja. En þær nema all- mörgum dagsverkum á skýrslu! Birgir blés við. — Hann býr nú á aimarri jörð líka, þó að Stóru-Brávellir séu langir og breiðir. — Svo, það vissi ég ekki. Ilvaða jörð? — Hann býr einnig á benni Kreppu. Ég leit spurnaraugum á Birgi. Hann situr líka að gæðum Kreppu- lánasjóðs, býr í þeirri vilpu! — Svo að skilja. Þar er Viglundur ekki einn um hituna. -— Ekki enn að visu, og þó lield ég liann liafi leikið á jiví sviði einstakt bragð. Eg spurði enn með augunum. — Jú, hann kom til granna síns, áður en bann fékk fimmtíu þúsund króna eftirgjöf lögum samkvæmt, og bað hann nágrannann að lána sér þúsund krónur, um stundar sakir. Svo notaði liann sér að láta þessa uppbæð falla að mestu með öðruip skuldum. Þessa brellu lék hann af yfirlögðu ráði. Það veit ég með vissu! Ég þagði við þessu. Hvað gat ég sagt? En allt í einu losnaði um mál- bein mitt: — Hvað hefir orðið af öllu þessu fé? — Hvað hefir orðið af því? Það er von, að þú spyrjir. En get- um má leiða um þá eyðslu. Ef til vill befur Víglundur keypt sér at- kvæði báttvirtra kjósenda. Hann kann að liafa styrkt flokkinn með fé. Það er hugsanlegt, að á bann bafi fallið ábyrgðir þar í liöfuðstaðnum. Og svo er heimilissukkið. Rósamunda er evðslukló, og búskapur gengur á- valll á tréfótum, þar sem liúsbónd- inn er aldrei heima. Börnin hafa gengið í skóla og verið svo að segja iðjulaus beima. Skilurðu nú? Birgir tók viðbragð og mælti í annarri og mýkri tóntegund: — Nú er meira en mál að bjóða þér betri mat en þenna. Þú getur nú melt þessa bita, meðan ég tala við kyenþjóðina, kyngt munnvatninu og kveikt í tóbakspípu, ef þú reykir. EGAR ÉG var búinn að matast, mælti Birgir og lét brýrnar siga: —■ Ég var ekki alveg búinn að leysa ofan af skjóðunni áðan. Það er mér alveg óskiljanlegt, hvernig íslenzkir bændur geta falið Viglundi á Völlun- um og bans líkum að Iiúa fyrir land- ið og þjóðina. Það gengur yfir mig. En sleppum nú því. Úr því að ég liefi engar jarðabætur að sýna þér, get ég lofað þér að þefa úr þvi heyhári, sem ég ællaði að fleygja í hestinn þinn, ef þér sýncbst að liýsa hann. Hefirðu gaman af að líta inn í fjóslilöðima mína? Ég játaði því, og við gengum út að fjósldöðu. Bóndi lauk Iienni upji mcð

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.