Samtíðin - 01.06.1943, Side 19

Samtíðin - 01.06.1943, Side 19
SAMTÍÐIN 15 og Birgir læsti bankanum sínum, sem hann nefndi reyndar sparisjóðinn sinn, þegar við genguin þaðan. Iiveldsólin ljómaði gullgræna hlöðuþekjuna. Birgir leit til hennar, hýru auga, um öxl og mælti: — Hún lætur lítið vfir sér og á ekki erindi í skýrslu. TH ESSI ÚTVABPSFRÉTT barst mér til eyrna næsta nýársdags- kveld: í g'ær andaðist Birgir, hóndi i Leyningi — sveitin nafngreind -— sjötugur að aldri, einn af fulltrúum gamla timans, gildur hóndi sagður, en sérlundaður. Ég aflaði mér frekari vitneskjú um fnáfall Birgis með atbeina sím- ans og fékk fullvissuna á vængjum vindanna. Birgir andaðist í fjóshlöðunni. Honum þótti dveljast þar lengur en líklegt þótti við að taka fjósheyið. N'aj- hans þá vitjað. Hann var í þeim stellingum, gamli maðurinn, að liann hallaði herðum að hringu þeirrar töðubrikur, sem hann var að taka af og hafði liana að bakhjarli — framliðinn. Birgir hóndi í Leyningi andaðist sitjandi eins og Skalla-Grímur. Kennarinn: — Hvorum megin í líkamanum er hjartað? Drengurinn: — Að innanverðu. Þeir, sem nota .xMitb&ÓJplJUAjCL einu sinni, nota hana aftur. REYNIÐ AÐ SVARA eftirfarandi spurníngum, en svörin eru á hls. 25. 1. Hver fann X-geislana? 2. Hve margir hryggjarliðir eru í manni? 3. Hvaða íslenzkt skáld hefur skrifað þessar setningar: „í fardög- um spretta hinar ágælu jurtir lands- ins sem örast, og það er jafnvel kom- in slægja í ræktartúnin, sauðkindin farin að fá hold utan á beinin og reisa hnakkann, en hið augnalausa andlit dauðýflisins í mýrinni sokkið í grasi, já, þá er gaman að lifa, þá er kominn tími til að gifta sig: öll músahreiðrin i tættunum liafa verið upprætt, og það er húið að hyggja nýjan bæ.“(?) 4. Hvaða skáld samdi Ijóðleikinn Brand? 5. Hvað þýðir orðið: haustgríma? Læknirinn: — í þrjár vikur lief ég lialdið, að mannskrattinn væri með gulu, og fyrst í dag hef ég upp- götvað, að þetta er Kínverji. Forstjórinn: — Þér komið nokk- uð seint í dag. Skrifarinn: — Ég datt hérna á tröppunum! Forstjórinn: — Þér hafið varla þurft þrjii kortér til þess að standa upp aftur. Skólavörðustíg 10, Rvík. Sími 1944, Pósthólf 843.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.