Samtíðin - 01.06.1943, Qupperneq 24

Samtíðin - 01.06.1943, Qupperneq 24
20 SAMTÍÐIN Börn flatheskjunnar mega þessi nýju skáld vel Iieita, og þau geta verið góð á sína vísu, og auðvitað er þeim velkomið að vera þar, sem þau vilja, og vinna eins og þau vilja. Þau verða bara aldrei jafn mikils virði eins og börn klungursins fyrir sína þjóð og sína tungu. Hitt er svo auðvitað rétt, að allir, sem yrkja rímuð ljóð, eru ekki miklir menn á því sviði. Sannast þar, að misjafn er sauður í mörgu fé, en við þvi er ekki hægt að gera sem betur fer. Mennirnir verða aldrei allir jafnir, listamennirnir ekki heldur. Skyldi annars nokkur maður læra órímuðu Ijóðin? Það er mikill kostur við hin, að þau eru jafnan lærð mik- ið. Það styttir mönnum stundirnar að hafa þau yfir, ekki sízt alþýðumann- inum við sín daglegu störf, og við það tileinka menn sér einnig þá hugsun eða kenningu, sem í þeim felst. Með þeim hætti greipist hæði efnið og formið inn i meðvitund þjóðarinnar og býr þar jafnvel öldum saman. Vel má líkja þessum tveim tegund- um Ijóðskálda við mann, sem ríður með björgum fram, björgum þjóð- lífsins. Annar hefur litskúf í liendi og málar mynd, hugsun á hamraveginn. Hinn liefur meitil og hamar i hendi. Hann meitlar sína mynd, sína hugs- un í bergið. Myndirnar, hugsanirnar, eru báðar jafn góðar. Hvor mun end- ast lengur, og því hafa meira gildi fyrir alda og óborna? Lengi lifi „börn ldungursins“. Gísli Helgason. t Gefið vinum yðar eins eða fleiri ára áskrift að Samtíðinni. Lýsissamlag íslenzkra botnvörpunga Símar: 3616, 3428 Simn.: Lýsissamlag Reykjavík. • Stærsta og fullkomnasta kaldhreinsunarstöð á íslandi. • Lýsissamlagið selur lyfsölum, kaupmönnum og kaupfélögum fyrsta flokks kaldhreinsað með- alalýsi, sem er framleitt við hin allra heztu skilyrði. Þjóðfræg vörumerki Tip Top-þvottaduft Mána-stangasápa Paloma — óviðjafnanleg handsápa.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.