Samtíðin - 01.06.1943, Side 31
SAMTÍÐIN
27
hverjir harla kærir vinir, er ég átti
kost á að kynnast þeim á geðþekkara
vettvangi en innan veggja Mennta-
skólans. Bjarni Sæmundsson dró nú
allt í einu feitt slrik yfir alla náttúru-
fræði og minntist aldrei framar á
neitt slíkt við mig. Hins vegar hitt-
umst við aldrei svo á förnum vegi,
að hann tæki ekki að ræða um mál-
fræði, sögu og bókmenntir, og stund-
um láttum við löng simasamtöl um
þau fræði. Bjarni losaði sig um þess-
ar mundir við kennsluna í Mennta-
skólanum, gerðist um leið ungur í
annað sinn og tók að sinna fræði-
mennsku með óskiptum kröftum. Ég
var honum samferða lieim frá Khöfn.
er hann kom frá því að þakka liá-
skólanum þar i borg fyrir maklega
veitla doktorsnafnbót. Þá liöfðum
við gott tóm til samræðna á gamla
„Gullfossi“ í heila viku, frá þvi er
Bjarni vakti mig kl. 7 árdegis og
fram yfir kvöldverð, stundum með
litlum hvildum. Þá miðlaði liann mér
óspart af auði hinnar margvíslegustu
þekkingar sinnar, þessi fjölvitri og
niargreyndi heiðurs- og eljumaður,
sem aldrei unni sér hvíldar frá því
mikla nytjastarfi að færa öðrum
mönnum aukna þekkingu á þeim
fræðum, sem liann mat mest.
Þegar ég blaða í þessari nýju bók,
sgm geymir ferðapistla Bjarna Sæ-
niundssonar, áður dreifða um ýmis
íslenzk blöð, þar sem sérfáir höfðu
aðgang að þeim, og auk þess nokkra
nierka pistla, er hvergi hafa áður
birzt, finnst mér ég kenna geðþekkr-
ar návistar hins látná höfundar. Mér
er sem ég heyri hann sjálfan segja
þessar setningar mar-gar hverjar,
BRJÓNASTOFAN
Laugavegi 20, Reykjavík.
Sími 4690.
Þeir, sem eru ánægðir með
PRJÓNAFATNAÐINN,
hafa keypt ha'nn hjá
M A L í N.
Vélaverkstæði
Sig. Sveinbjörnssonar
Skúlalún 6
R e y k j a v í k
Sími 5753.
Framkvæmir:
Vélaviðgerðir
Vélasmíði
Uppsetningar á vélum
og verksnriðjum.
Gerum við og gerum upp
bátamótora.
Smiðum enn fremur:
Síldarflökunarvélar
ískvarnir
Rörsteypumót
Holsteinavélar