Samtíðin - 01.04.1946, Blaðsíða 6

Samtíðin - 01.04.1946, Blaðsíða 6
2 SAMTÍÐIN FAGLRT MANMLÍF Fyrsti hluti ævisögu séra Árna Þórarinssonar frá Stórahrauni. Ný bók eí'tir Þórberg er alltaf stórviðburður í beimi bókmenntanna, en þó mun engrar bókar eftir Þórberg hafa verið beðið með jafn mik- illi eftirvæntingu og bókar hans um séra Árna. Það á ekki við að fjasa lengur um ritsnilld Þórbergs. Þau sannindi, að fáir eða engir hafa komizt framar en bann í meðferð islenzks máls og stíls, eru orðin svo ævagömul. Þó blandast engum hugur um það, sem þessa bók les, að enn er honum að fara fram, og er þá mikið sagt. Bókin er í 33 köflum: I þennan heim -— Föðurætt Guðmundur dúllari Móðurætt — Ættrækni — Foreldrar mínir Bernska mín í Götu — A Stórahrauni Flóðið mikla — Sakamenn og refsingar Fyrirmenn — Hvíta skyrtan — Fólkið i Austurbænum Matthías Gíslason — Signj" — Ég byrja að þræla Meiri þrældómur — Mataræði — Fatnaður Upijeldi — Menntun mín •— Bækur Óvenjur — Fyrinnyndir — Tveir merkismenn Skemmtanir — Þjóðhátíðin 1874 — Barnagaman Bréfamenn — Kambsránsmenn — Nokkrar minningar 1 fyrsta sinn til Reykjavíkur — Undan þrældómi Séra Árni Þórarinsson mun vera einn af stálminnugustu mönnum og svo fróður, að einsdæmi er. Þegar Árni segir frá, setur alla liljóða, sem nálægt honum eru. Árni er nú kominn yfir áttrætt, en frásagnargáfa hans er enn við góða heilsu. Fagurt mannlíf kostar 50 krónur i bókabúðum. Mtelgafeth Aðeelsteeeii SU - Síatti 1653

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.