Samtíðin - 01.05.1948, Side 21
SAMTÍÐIN
17
er ckki í])ijii(/l mcð of margum dæm-
tim í einu. Af þess liáttar fræðslu
gætu böm vafalaust haft bæði
(jagn og gaman, og hún gæii laðað
þaa lil meira náms og varanlegrar
málfegrunar, þegar fram líða stuiid-
tr. Vel gefin börn <jætu þá sjálfsagl
stundum leiðrétt mál sums eldra
fólksins. I)æmi eru til slíks, þótt ekki
verði þau tilgreind hér.
Illu heilli munu margir foreldrar
a<j annað fulltiða fólk vera næsta
hirðulaus um mótlfar það, sem hafl
er fyrir börnum o<j unglingum þessa
lands. Skólana sjálfg skyldi maður
þó eiga að undanskilja. Strangt og
■staglsamt nám, eigi síður í málfræði
en öðrum námsgreinum, vekur
le.iða, leti og jafnvel óhug í stað
átnægju og áliuga. Afleiðing þess,
held ég, að sé leti og kæruleysi
þeirra manna, sem vilja spilla máli
voru, t. d. með því að útrýma y og ý
úr rilmálinu, rita orðin eftir fram-
burði, auka við lalmælin og tepru-
lega framburðinn i stað þess að aga
hvort tveggja og leiðrétta áorðnar
málvillur. Málfræðingar vorir og
aðrir þeir, er tungu vorri unna, æitu
að gera meira að því en mí tíðkast
að örva alþjóð til þess að sýna ís-
lenzkri tungu rækt bæði í ræðu og
rili. Ég vil að endingu skora á Rikis-
lítvurpið, að það lóiti málfræðing
sinn gera meira í þættinum: „Spurn-
tngar og svör um íslenzkt mál“ en
það eitt að svara spurningum, er
honum berast. Þær eru margar
hverjar svo nauða ómerkilegar, að
varla er orðum að þeim eyðandi.
V. G.
CJKOTASÖGUR þurfa ekki alltaf að
** vera um nirfla, enda eru Skotar
síður en svo nízkir. Þetta eru mestu
höfðirigjar, rétt eins og Islendingar.
Hér er ein skotaskrítla, þar sem ekki
er minnzt á kvildnzku:
Donald gamli átti að skipta dánar-
búi með nokkrum baptistum. Þegar
því var lokið, bauð einn baptislinn
upp á hrcssingu í veitingahúsi. Nú
hötuðu þessir baptistar allt áfengi
eins og pest og pöntuðu mjólk yfir
alla línuna. En veitingamaðurinn
vissi, að Donald gamla þótti sopinn
góður og laumaði vænum whisky-
sjúss í mjólkurglasið hans. Donald
horl'ði góða stund með ódæma fyrir-
litningu á mjólkurglas sitt og dreypti
loks á því. En ekki var hann fyrr
búinn að því en hann saup vel á,
strauk sér um brjóstið og mælti:
„Ö, hvílík blessuð kýr!“
Garðeigandinn (við strák, sem cr
að stela eplum frá honum): „Komdu
strax niður úr trénu, strákormur,
eða ég skal tala við hann föður
þinn.“
Strákur: „Talaðu bara við hann
pabba: hann er lika hérna uppi i
trénu."
„Af hverju élurðu sósuna með
hnífnum?"
„Gaffallinn lekur."
Leitið upplýsinga um
vátryggingu hjá:
Nordisk Brandforsikring A/S.
Aðalumboð á Islandi, Vesturgötu 7.
Reykjavík. Sími 3569. Pósthólf 1013.