Samtíðin - 01.05.1948, Blaðsíða 27
SAMTÍÐIN
23
hann allt að því 20 bækur. Hedberg
er mikill raunsæismaður og nokkur
ádeilumaður i skáldsögum sínum. 1
þessari sögu, sem telja má snjallasta
verk bans, segir hann frá ungum
sagnfræðingi, er erfir látinn frænda
sinn, sem hann hefur aldrei séð.
Sagan gerist á einum sólarhring, og
lesandanum gefur sýn gegnum holt
og hæðir mannlegrar tilveru, þar
sem bver maður finnur a. m. k.
brot af sjálfum sér. 298 bls. ób. s.
kr. 10.00, íb. kr. 13.50.
flUSSNESKA stórskáldið Leo Tol-
sloy sagði eitt sinn i vinahópi
eftirfarandi sögu al' einum forfeðra
sinna, sem var frábær liermikráka:
Eitl sinn, þegar sá hinn sami var
að herma eftir Páli keisara í kunn-
ingjahópi, bar svo við, að keisarinn
kom algerlega óvænt inn i herberg-
ið, og ón þess að hermikrákan veitti
honum minnstu athygli. Enginn
þot'ði að mæla orð frá vörum. Þeg-
ar Tolstoy eldri tók loks eftir því,
hver kominn var, mælti keisari:
„Haldið þér bara áfram, herra að-
alsmaður“.
Tolstoy lét sér hvergi bilt við
verða, en hélt áfram með tilburðum
keisarans og mælti með keisaralegri
röddu:
„Tolstoy, þú ættir skilið, að' ég
lækkaði þig í tign. En ég skil manna
bezt léttúð æskunnar, og þess vegna
hef ég ákveðið að fyrirgefa þér vfir-
sjón þína“,
Keisarinn l>rosti og mælti:
„Það er bezt, að svo sé“.
iifkíat
cjœ^umar
etu hringarHir
frá 'Jtanch
Sendum gegn póstkröfu
uni allt land.
FRAIMCH
IVilCHELSEN
úrsmíðameistari.
Laugaveg 39. Reykjavík.
Pósthólf 812. Sími 7264.
SendiS Samtíðinni bréf til birtingar.