Samtíðin - 01.10.1939, Qupperneq 12
8
SAMTIWN
Leland Stowe :
Svo mælti
Adolf Hitler
fy ANN 26. SEPT. 1938 stóð
Adolf Hitler í Iþróttahöllinni
í Berlín og gaf heiminum eftirfar-
andi yfirlýsingu:
„£údetalaudið er síðasla land-
svæði í Evrópu, sem ég mun gera
kröfu til að ná yfirráðum yfir.“
Hér skulu enn fremur tilfærð
nokkur ummæli Hitlers frá síðustu
árum:
1 ágúst 1933 sagði hann:
„Meðan ég er ríkiskanslari, skal
ekkert stríð verða, nema á okkur
verði ráðist af öðrum þjóðum.“
Þann 30. janúar 193k sagði liann:
„Þýska stjórnin er fús til og stað-
ráðin í að hlíta að öllu leyti Loear-
no-sáttmálanum.“
/ maí 1935 sagði hann (í viðlali
við Edward Price Bell, er Bell hafði
spurt, hvort Þjóðverjar mundu fara
í stríð vegna tilkalls til nokkurra
landa):
„Nei. Við höfum hátíðlega liafn-
að öllum slíkum áformum. Þýska-
land þjóðernis-jafnaðarstefnunnar
mun aldrei óvirða sjálft sig og
svikja mannkynið með því að rjúfa
samning, sem það liefir undirskrif-
að af fúsum vilja.“
En 7. mars 1936 sendi Hitler þýsk-
ar hersveitir inn í Rínarhéruðin og
rauf þannig gersamlega Locarno-
sáttmálann.
Þann 21. maí 1935 sagði Hitler:
„Þýskaland óskar hvorki né hef-
ur i hyggju að blanda sér í innan-
ríkismálaefni Austurrikis né inn-
lima það Þýskalandi.“
Þann 12. febrúar 1938 sagði Hit-
ler (við Schusclmigg, kanslara
Austurríkis, i viðræðu, sem þeir átlu
i Berclitesgaden):
„Hvað á alt þetta málæði um
sjálfstæði ykkar að þýða? Hér er
ekki um það að ræða, hvort Austur-
ríki eigi að halda sjálfstæði sínu
eða ekki. Það er aðeins eilt, sem
komið getur til umræðu: Óskið þér,
að innlimun lands yðar fari fram
með blóðsúthellingum eða án
þeirra? Takið hvorn kostinn, sem
vður líkar hetur.“
Þann 7. mars 1936 sagði hann:
„Tékkóslóvakía hefir altaf farið
að dæmi Póllands og fylgt þeirri
venju, að fara sjálf með málefni
sin. Þýskaland óskar ekki eftir að
ráðast á þessi ríki. — — -—- Eftir
þriggja ára starf, álít ég, að ég geti
í dag litið svo á, að baráttunni fyr-
ir jafnrétti Þýskalands sé lokið. Við
óskum ekki eftir neinum landvinn-
ingum i Evrópu.“
(Úr New York Herald Tribune).
Á þeim örðugu tímum, sem nú fara í
hönd, er Samtíðinni mikil þörf á því, að
allir áskrifendur hennar
reynist henni tryggir og skilvísir. Einnig
eru það nú eindregin tilmæli vor, að vin-
ir ritsins reyni að safna því nýjum skil-
vísum áskrifendum. Munið, að Samtíðin
flytur árlega 320 bls. af völdu efni úr
bestu erlendum blöðum og tímaritum, og
að áskriftargjaldið e>- aðeins 5 k r ó n u r.
Vér þökkum fyrirfram þá velvild, sem
vér erum sannfærðir um, að ritinu verð-
ur sýnd.