Samtíðin - 01.10.1939, Qupperneq 13
SAMTIÐIN
9
FRÆGIR SAMTÍÐARMENN
Daladier
Hinn niikli harmleikur, sem nú fer fram i Evrópu, beinir
hugum allra að mönnum þeim, sem hér eru birtar myndir af.
Édouard Daladier, forsætisráðherra Frakka, er fæddur 1884.
Hann var upphaflega kennari. Árið 1919 komst hann á þing sem
fulltrúi róttæka flokksins. Hann var nýlendumálaráðh. 1924—
25, hermálaráðh. í okt. 1925 og kenslumálaráðh. 1925—26. Frá
des. 1930— jan. 1931 var Daladier ráðh. opinberra framkvæmda.
1932 varð hann hermálaráðh. í ráðuneyti Paul Boncours og for-
sætisráðh. 1. jan. 1933, en ráðuneyti hans fór
frá i okt. sama ár. Hermáíáráðh. í ráðuneyt-
um þeirra Sarrauts og Chautemps, forsætis-
ráðh. 31. jan.—8. febr. 1934, hermálaráðh. 1936
og í mars 1938, forsætisráðh. síðan í apríl 1938
og nú auk þess hermála- og utanríkisráðherra.
Adolf Hitler,
leiðtogi (Fúh-
rer) og ríkis-
kanslariÞýska-
lands, er fædd-
ur i Braunau í
Austurríki árið
1889.HitIer var
upphafl. iðnað-
arm. Fór 1912
til Múnchen og Chamberlain
gerðist þar aug-
lýsingateiknari
o. fl. Sjálfboðaliði í her Þjóð-
verja i stríðinu 1914—18. Var
H. þá gerður undirforingi. Ár-
ið 1919 varð hann 7. meðlimur
þýska vérkamannaflokksins og
síðar form. hans. 9. nóv. 1923
mistókst þeim félögum uppreisn
í Múnchen, og lenti H. þá í
fangelsi. Beit hann þá bók sína,
„Mein Kampf“. Flokk sinn end- Hitler
urreisti hann 24. febr. 1925. H.
varð þýskur ríkisborgari 1932.
Ríkiskanslari Þýskalands varð liann 30. jan.
1933, en rikisleiðtogi við lát Hindenburgs, 2.
ág. 1934, samkv. lögum, er sameinuðu rikis-
kanslara- og forsetaembættið.
Ignacy Moscicki, forseti Póllands, er fæddur
1867. Hann er efnafræðingur að mentun. Árið
1897 varð hann aðstoðarm. við rafmagnsfræði-
deild háskólans í F’’ribourg, en árið 1912 próf.
i rafmagnsfr. við háskólann í Lemberg. M. hef-
ur gert ýmsar merkilegar uppfyndingar og veitt Moscicki
verksmiðjum forstöðu. Hann var kosinn for-
seti Póllands 1. júní 1926 og endurkosinn 1933
fyrir árabilið 1933—40. Við andlát Pilsudskis og með nýrri
stjórnarskrá 1935 öðlaðist Moscicki verulega aukin völd.
Molotov, forsætis- og utanrikisráðherra Sovét-Rússlands, er
fæddur 1890. Hann hefur lært hagfræði. Æviferill hans var mjög
byltingakendur, þar til hann öðlaðist valdaaðstöðu. Síðan 1926
hefur M. verið meðl. í framkv.ráði alþjóðasambands komniún-
ista. Hann undirritaði af hálfu Rússa liinn fræga vináttusamn-
ing við Þjóðverja, skömmu áður en Evrópu-styrjöldin skall á.
Hafa fáar undirskriftir vakið aðra eins furðu á þessari öld. Molotov
Neville Chamberlain, forsætisráðherra Breta,
er fæddur árið 1869. Á árunum 1890—97 var
hann búsettur á Bahamaeyjunum, en gerðist
þvi næst kaupmaður í Birmingham og var
borgarstjóri þar á árunum 1915—16. I heims-
styrjöldinni, sem hófst 1914,
var hann um skeið forstjóri
hins borgaralega herskyldu-
ráðs. Kosinn þingm. í Birming-
ham 1918, póstmálaráðh. í ráðu-
neyti Bonar Law’s 1922—23,
heilbrigðismálaráðh. nokkurn
hluta árs 1923, póstmálaráðh. í
fyrra ráðuneyti Stanley Bald-
win’s (1923—24), en síðan fjár-
málaráðli. f öðru ráðun. Bald-
win’s var Chamberlain heil-
brigðismálaráðh. (1924—29).
Fjármálaráðh.
varð hann í
ráðun.MacDon-
ald’s 1931 og
áfram í ráðun.
Baldwins. For-
sætisrúðherra
Breta hefir Ne-
ville Chamber-
lain verið frá
því í maí árið
1937.