Fréttablaðið - 30.01.2010, Qupperneq 4
4 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
LÖGREGLUMÁL Efnahagsbrotadeild
Ríkislögreglustjóra gerði húsleit á
fjórum heimilum og á einni starfs-
stöð í gær vegna gruns um stór-
felld gjaldeyrissvik með þrettán
milljarða króna. Fjórir Íslendingar
eru grunaðir og nokkur hundruð
milljónir hafa verið kyrrsettar.
Rannsóknin var gerð í samvinnu
við Fjármálaeftirlitið og Seðla-
bankann og var kynnt á blaða-
mannafundi í gær.
Rannsóknin snýr að félaginu
Aserta AB, sem skráð er í Sví-
þjóð. Talið er ljóst að Íslendingarn-
ir fjórir standi að baki fyrirtæk-
inu: Markús Máni Michaelsson,
fyrrverandi landsliðsmaður í
handbolta, Gísli Reynisson, Ólaf-
ur Sigmundsson og Karl Löve
Jóhannsson. Þeir eru 28 til 46
ára. Þrír fyrstnefndu mennirn-
ir störfuðu áður hjá Straumi og
hafa nýverið flutt lögheimili sitt
til Bretlands til að stunda þar við-
skipti. Karl er skráður forstjóri
Aserta.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins voru þeir Karl, Gísli og
Markús Máni handteknir í gær-
morgun. Ólafur hafði verið úti
á landi en var væntanlegur til
Reykjavíkur í gærkvöld. Fyrir-
hugað var að færa hann til yfir-
heyrslu.
Lögregla hafði fylgst með ferð-
um fjórmenninganna um skeið, en
Karl, Gísli og Ólafur hafa dvalið hér
á landi undanfarnar vikur. Í fyrra-
dag kom Markús Máni til landsins
og þá lét lögreglan til skarar skríða.
Í dag verður ljóst hvort farið verð-
ur fram á varðhald eða farbann eða
mönnunum sleppt.
Fjórmenningar grunaðir um
milljarðabrask með gjaldeyri
Fjórir braskarar og um hundrað viðskiptavinir þeirra eru taldir hafa hagnast um milljarða á ólöglegum
gjaldeyrisviðskiptum. Þrír voru handteknir í gærmorgun og til stóð að handsama þann fjórða í gærkvöldi.
Málið er aðeins eitt átta
mála sem Fjármálaeftirlitið
hefur þegar vísað til lög-
reglu. Sum hinna málanna
sjö eru einnig umfangs-
mikil og kynnu að leiða til
aðgerða líkt og þeirra sem
ráðist var í í gærmorgun.
Til viðbótar því hefur Fjár-
málaeftirlitið sautján meint
brot á lögum um gjaldeyris-
viðskipti til rannsóknar um
þessar mundir, og verður
hugsanlega einhverjum
þeirra vísað til lögreglu.
Þá hefur Seðlabankinn
einnig fengið tilkynningar
um fleiri mál af þessu tagi,
sem hugsanlega verður
vísað til rannsóknar hjá
Fjármálaeftirlitinu.
FJÖLDI MÁLA Í
RANNSÓKN
MIKIL AÐGERÐ Ingibjörg Guðbjartsdóttir, Helgi Magnús Gunnarsson og Gunnar Þ. Andersen,
forstjóri FME, greindu frá rannsókninni í gær. Um þrjátíu manns tóku þátt í aðgerðunum
sem hófust í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Meint ólögmæt viðskipti fóru
þannig fram að Aserta keypti
krónur á aflandsmarkaði fyrir
viðskiptavini hér á Íslandi og
kom þeim til Íslands. Heildar-
inn streymi innlendra króna frá
Aserta fram hjá gjaldeyrishöft-
unum nam þrettán milljörðum,
eða sjö prósentum af allri veltu á
gjaldeyrismarkaði hérlendis.
Munurinn á aflandsgenginu og
gengi Seðlabanka Íslands getur
verið 15 til 40 prósent, sem þýðir
að hagnaðurinn af viðskiptun-
um nam líklega tveimur til fimm
milljörðum. Hann skiptist á milli
eigenda Aserta og viðskiptavin-
anna í hlutfalli sem ekki liggur
fyrir.
Rannsóknin beinist einnig að
viðskiptavinunum, sem eru um
hundrað talsins, allir hérlend-
is, bæði einstaklingar og fyrir-
tæki. Ekki mun vera um stór og
þekkt fyrirtæki að ræða. Stærstu
einstöku viðskiptin námu tæpum
milljarði. Helgi Magnús Gunnars-
son, saksóknari efnahagsbrota,
segir þó ekki víst að sótt verði fast
að smærri viðskiptavinunum.
Ingibjörg Guðbjartsdóttir frá
Seðlabankanum segir að svo
umfangsmikil brot á lögum um
gjaldeyrishöft séu líkleg til að hafa
mikil áhrif á viðleitni yfirvalda til
að halda gengi krónunnar stöðugu.
Nú væri þó svo gott sem búið að
hindra brot af þessu tagi.
Helgi Magnús segir að allt
verði gert til að meintur hagnað-
ur af brotunum verði tiltækur til
upptöku ef til sakfellingar kemur.
Þegar hefur verið lagt hald á
eignir að andvirði margra hundr-
aða milljóna, á reikningum og í
fasteignum. Allt að tveggja ára
fangavist getur legið við brotum á
lögum um gjaldeyrisviðskipti, en
auk þess er hugsanlegt að brotin
megi flokka sem peningaþvætti og
skattsvik. stigur@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
16°
7°
0°
-4°
2°
-1°
-2°
-3°
-3°
20°
2°
14°
-2°
25°
-13°
2°
13°
-4°
Á MORGUN
Hæg vestlæg eða
breytileg átt.
MÁNUDAGUR
Frekar hægur vindur.
3 -1
-2
1 0
1
-1
-2
-3
-3
1
-1
-3
-4
-3
-2
-4
-1
-3
-10
2
6 5
7
7
6
4
3
2
1
1
-2
BJART VÍÐA Það
verður bjart eða
nokkuð bjart víða
á landinu í dag en
þó síst á Norðaust-
ur- og Austurlandi.
Það má búast
við frosti nánast
um allt landi en
þar sem vindur
verður víðast hvar
hægur verður lítil
vindkæling. Allra
austast má þó gera
ráð fyrir að blási
nokkuð.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Alls urðu 906 fyr-
irtæki gjaldþrota á síðasta ári,
rúmlega 21 prósenti fleiri en
árið 2008, þegar þau voru 748
talsins. Þetta kemur fram í frétt
á vef Hagstofu Íslands.
Gjaldþrotin á síðasta ári eru
langtum fleiri en í góðærinu.
Gjaldþrot voru alls 529 árið 2005
og 561 árið 2006. Gjaldþrot í
fyrra voru því um 71 prósenti
fleiri en árið 2005.
Eins og árið 2008 voru flest
gjaldþrot í fyrra hjá fyrirtækj-
um í byggingarstarfsemi og
mannvirkjagerð, alls 256 talsins,
og í heild- og smásölu alls 167.
- bj
Gjaldþrot fyrirtækja í fyrra:
Fjölgaði um
fimmtung
GENGIÐ 29.01.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,2631
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,37 127,97
205,49 206,49
177,74 178,74
23,873 24,013
21,602 21,73
17,340 17,442
1,4110 1,4192
197,81 198,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
EFNAHAGSMÁL „Ég fékk engin hald-
bær svör þegar ég bað um rök-
stuðning fyrir þessari ákvörðun
bankans,“ segir Tryggvi Þór Her-
bertsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins. Fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins kölluðu til fundar í
efnahags- og skattanefnd í gær
til að fá skýringar á þeirri aðgerð
bankans að hækka vaxtaálag á
grunnvöxtum erlendra lána til fyr-
irtækja úr innan við tveimur í fjög-
ur prósent.
Tryggvi segir að ákvörðunin sé
réttlætt með því að kostnaður sé að
hækka hjá bankanum. Það standist
hins vegar ekki skoðun. „Ég benti
þeim á að þetta muni auka vanskil
fyrirtækja og leiða einhver þeirra
í gjaldþrot. Það myndi síðan auka
afskriftir hjá bankanum þegar fram
liði.“
Landsbankinn er langsamlega
stærsti viðskiptabanki íslenskra
fyrirtækja. Vel yfir helmingur
allra sjávarútvegsfyrirtækja lands-
ins eru til dæmis þar í viðskiptum
en heildarskuldir greinarinnar eru
550 milljarðar. Tryggvi tekur dæmi
af fyrirtæki sem skuldar tíu millj-
arða í erlendri mynt. Hækkun vaxta-
álagsins þýðir um 300 milljóna álög-
ur fyrir viðkomandi fyrirtæki sem
geti skilið á milli þess að fyrirtæki
haldi áfram rekstri eður ei.
Tryggvi segir aðgerð bankans
taktlausa í samhengi við þau skila-
boð sem koma frá stjórnvöldum og
hagsmunaaðilum um stöðu fyrir-
tækjanna. - shá
Gagnrýnir Landsbanka fyrir hækkun vaxtaálags á erlendar skuldir fyrirtækja:
Lamandi fyrir mörg fyrirtæki
TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON Segir
ákvörðun Landsbankans illa rökstudda
og byggða á skammsýni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BÍLAR Gallar í eldsneytisgjöf sem
komið hafa í ljós í Toyota-bílum
valda því að Toyota í Evrópu
hefur ákveðið að kalla þessa bíla
inn. Talið er að kalla þurfi inn
fimm þúsund bíla hér á landi en
allt að 1,8 milljónir bíla í Evrópu.
Gallinn hefur lýst sér meðal
annars í því að eldsneytisgjöf
lyftist hægar í upphafsstöðu eða
festist í inngjafarstöðu. Tilkynnt
hefur verið um 26 tilvik í Evrópu
en engin slys hafa orðið vegna
þessa að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Í henni segir einnig að Toyota
muni hafa samband við eigendur
bílanna fljótlega en eigendur bíla
sem hafa áhyggjur af virkni elds-
neytisgjafar í bílum sínum eru
hvattir til að hafa samband. Um er
að ræða átta gerðir af Toyta-bif-
reiðum, framleiddum á tímabilinu
febrúar 2005 til janúar 2010. - sbt
Gallar í eldsneytisgjöf:
5.000 Toyota-
bílar innkallað-
ir hér á landi
TOYOTA YARIS Meðal bíla sem eru
innkallaðir eru Yaris-bílar framleiddir á
tímabilinu nóvember 2005 til nóvember
2009.
Hvetur ríki til að hjálpa
Ngozi Okonjo-Iweala, framkvæmda-
stjóri Alþjóðabankans, kvaddi sér
hljóðs á viðskiptaráðstefnunni í
Davos í Sviss og hvatti risafyrirtæki
til að fjárfesta í lágtekjulöndum svo
hjálpa megi tugum milljóna manna
að komast upp úr fátæktargildru
heimskreppunnar.
SVISS