Fréttablaðið - 30.01.2010, Page 10
30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
ALÞINGI Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra segist von-
góð um að breytingar á stjórn-
arráðinu verði gerðar á vorþingi
og samþykkt að sameina sjávar-
útvegs-, landbúnaðar- og iðnað-
arráðuneyti í nýtt atvinnuvega-
ráðuneyti.
Kveðið er á um þessar breyt-
ingar í samstarfsyfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar. Jón Bjarnason
landbúnaðarráðherra hefur hins
vegar lýst andstöðu við þessar
breytingar. Flokksráð Vinstri
grænna samþykkti á fundi nýlega
að varhugavert væri að draga úr
vægi landbún-
aðar- og sjáv-
arútvegs innan
stjórnsýslunn-
ar.
Þórunn Svein-
bjarnardótt-
ir, þingmaður
Samfylkingar,
tók málið upp
á Alþingi í gær,
spurði hvað liði
undirbúningi
á breytingunni og hvatti ríkis-
stjórnina til að vinna „sem einn
maður að þessu máli“.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra sagði að enginn
bilbugur væri á ríkisstjórninni
í þessum efnum en þau sjónar-
mið hefðu heyrst innan Vinstri
grænna, að fara ætti hægar í sak-
irnar. Ekki stæði til að draga úr
vægi atvinnugreina við breyting-
arnar heldur efla atvinnulífið.
Vinna við frumvarp um málið sé
langt komin í forsætisráðuneyt-
inu, vonandi verði það að lögum
á vorþingi. - pg
Forsætisráðherra segir sameiningu ráðuneyta enn í undirbúningi:
Stefnt að stofnun atvinnuvega-
ráðuneytis á vorþingi
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Hafðu samband
sími
Arion banki frestar
öllum uppboðsbeiðnum
út árið 2010
Arion banki mun fresta öllum uppboðsbeiðnum
vegna íbúðalána til sýslumanna út árið 2010.
Þannig gefst fleiri viðskiptavinum okkar færi á að
greiða úr málum sínum.
Íbúðalán
Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér fjölmargar lausnir okkar í lánamálum.
Hjartamiðstöðin
Tilkynning – H
jartalæ
knar
Hef hafið störf í Hjartamiðstöðinni,
Holtasmára 1, 6. hæð í Kópavogi.
Tímapantanir eru í síma 550 3030 eða á
www.hjartamidstodin.is
Holtasmára 1 • 6. hæð • 201 Kópavogi • Sími 550 3030 • www.hjartamidstodin.is
Helgi J. Óskarsson
hjartalæknir
Landvarðanámskeið
Umsóknum skal skilað fyrir 5. febrúar 2010
til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24
eða í tölvupósti á umhverfisstofnun@ust.is
Í umsókn þarf að koma fram nafn, kennitala,
heimilisfang, sími og netfang. Skilyrði er að
umsækjendur séu fæddir 1990 eða fyrr.
Skemmtileg störf í náttúru Íslands 18. febrúar til 21. mars
Kennt er um helgar og á
kvöldin á virkum dögum,
sjá dagskrá á
umhverfisstofnun.is
Námskeiðið er 110 tímar
og gjald kr. 120.000
BANDARÍKIN, AP Michael Bloomb-
erg, borgarstjóra í New York,
hefur snúist hugur og hvetur nú
leiðtoga Demókrataflokksins til
að sjá til þess að réttarhöld yfir
föngum frá Guantanamo-búðun-
um á Kúbu verði ekki haldin í
New York, eins og Barack Obama
Bandaríkjaforseti hafði tilkynnt.
Vaxandi andstaða er fyrir því
að réttarhöldin verði haldin þar
í borg, og nú virðist ríkisstjórn
Obama vera að láta undan þeim
þrýstingi.
Bandaríska fréttastofan AP
fékk þetta staðfest hjá tveimur
embættismönnum stjórnarinnar,
sem vilja þó ekki láta nafns síns
getið.
Obama hafði tilkynnt að réttar-
höldin yfir Khalid Sheikh Muham-
med og fjórum öðrum mönnum,
sem grunaðir eru um að hafa
skipulagt árásirnar á Bandarík-
in 11. september 2001, verði hald-
in í New York. Dómsalurinn, sem
þau réttarhöld færu fram í, er
á Manhattan-eyju, skammt frá
þeim stað þar sem Tvíburaturn-
arnir stóðu.
Obama hafði strax við upphaf
forsetatíðar sinnar fyrir rúmu ári
lofað því að Guantanamo-búðun-
um yrði lokað innan árs. Það
hefur tafist og ekki er að sjá hve-
nær Obama getur efnt það loforð,
ef nokkurn tímann.
gudsteinn@frettabladid.is
Vilja ekki sjá fanga
frá Guantanamo
Vaxandi andstaða er í New York við að réttarhöld yfir föngum frá Guantanamo
verði haldin þar. Borgarstjórinn biðlar til leiðtoga Demókrataflokksins.
GUANTANAMO Borgarstjóri New York vill ekki að réttarhöldin verði haldin á
Manhattan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP