Fréttablaðið - 30.01.2010, Síða 11

Fréttablaðið - 30.01.2010, Síða 11
LAUGARDAGUR 30. janúar 2010 11 SJÁVARÚTVEGUR Jón Bjarnason, sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra, heimilaði í gær veiðar á 130 þús- und tonnum af loðnu samkvæmt tillögu Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla fyrir vertíðina. Þar af koma rúmlega 90 þúsund tonn í hlut íslenskra loðnuskipa samkvæmt milliríkjasamningum um nýtingu loðnustofnsins við Ísland. Hafrannsóknastofnunin hefur nú mælt loðnustofninn um 530 þús- und tonn en sem kunnugt er hefur stofnunin staðið að umfangsmikilli loðnuleit að undanförnu. Gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að 400 þús- und tonn séu skilin eftir til hrygn- ingar. Gera má ráð fyrir að 90 þúsund tonna afli geti gefið um tíu millj- arða króna í útflutningsverðmæt- um en ráðherra mælir með að veið- um og fullvinnslu þessa afla verði hagað með þeim hætti, að sem mest- ur þjóðhagslegur ábati skapist. Mæling Hafrannsóknastofnun- ar í byrjun árs sýndi stofninn undir 400 þúsund tonnum. Ekki náðist að kanna allt fyrirhugað leitarsvæði sökum íss sem var fyrir vestan- verðu Norðurlandi. Því þótti mik- ilvægt að endurtaka mælingar. Í liðinni viku var rannsóknaskip- ið Árni Friðriksson við mælingar á stærð stofnsins úti fyrir Aust- ur- og Norðurlandi ásamt Súlunni EA, sem verið hefur til aðstoðar við kortlagningu loðnu á svæðinu. Fannst loðna allt frá svæðinu út af Austfjörðum og norður um. - shá Hrygningarstofn loðnu metinn 530 þúsund tonn og flotinn getur hafið veiðar: Loðnukvótinn 130 þúsund tonn UMHVERFISMÁL Hver Reykvíking- ur henti að meðaltali 185 kílóum af óflokkuðu sorpi á síðasta ári. Það er um fimmtungi minna en árið 2006, þegar hver íbúi henti 233 kílóum að meðaltali. Í umfjöllun um sorphirðu á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að áhugi íbúa á sorpflokkun og breytt neyslumunstur sé líkleg- asta skýringin á þessari breyt- ingu. Um 2.500 bláar tunnur eru nú í notkun í borginni. Í þær má henda pappír og fernum. Sorphirða Reykjavíkur sótti tæplega 22 þúsund tonn á síðasta ári, samanborið við rúmlega 25 þúsund tonn árið 2008. - bj Minna óflokkað sorp í ruslið: Henda 185 kíló- um á mann Í RUSLIÐ Borgarbúar hentu alls 22 þúsund tonnum á síðasta ári, um 60 tonnum á dag. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA BORGARMÁL Hanna Birna Kristj- ánsdóttir borgarstjóri og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuð- borgarsvæðis- ins, undirrituðu í gær tveggja ára samstarfs- samning á sviði öryggis- og for- varnamála. Með samn- ingnum er stefnt að fækk- un innbrota, eignaspjalla og umferðarslysa í borginni um fimm til tíu pró- sent milli ára með regluleg- um mælingum, viðeigandi við- brögðum, eft- irfylgni og eft- irliti. Lögregl- an verður með aðsetur í þjónustumiðstöðvum borgarinnar og mun í samstarfi við starfsmenn miðstöðvanna vinna að forvörnum og fjölskyldu- þjónustu auk umferðarfræðslu. LRH sendir borgaryfirvöldum upplýsingar um þróun afbrota og umferðarslysa á ársfjórðungsfresti samkvæmt samningnum. - shá Samstarf lögreglu og borgar: Samstarf um fækkun afbrota EFNAHAGSMÁL Afgangur af vöru- skiptum við útlönd í fyrra var alls 87,2 milljarðar króna. Þetta er 96,1 milljarðs króna viðsnún- ingur frá árinu 2008, þegar vöru- skipti voru neikvæð um 8,9 millj- arða króna, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Í fyrra voru fluttar út vörur fyrir 497,1 milljarð króna, en inn- flutningur nam alls 409,9 millj- örðum króna. Heildarverðmæti vöruútflutnings í fyrra var 20,6 prósentum minni en árið áður, sé reiknað á föstu gengi. Mestur samdráttur varð í inn- flutningi á bílum og flutninga- tækjum, 51 prósent milli ára. - bj Vöruskipti við útlönd í fyrra: 96 milljarða viðsnúningur Sekt fyrir líkamsárás Tæplega tvítugur piltur hefur verið dæmdur í 140 þúsunda króna sekt fyrir að ráðast á mann í félagsheimili á Suðurlandi. Árásarmaðurinn var einnig dæmdur til að greiða fórnar- lambinu 150 þúsund í skaðabætur. DÓMSTÓLAR FR ÉTTA B LA Ð IÐ /Ó SK A R KOMIÐ INN TIL LÖNDUNAR Það styttist í að loðnuskipin tínist inn til hafnar drekkhlaðin loðnu. HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR STEFÁN EIRÍKSSON STYRKTU STÖÐU ÞÍNA Á NÝJU ÁRI! KYNNTU ÞÉR FLEIRI SÓKNARFÆRI Á www.opnihaskolinn.is NÁMSBRAUTIR OG LENGRI NÁMSKEIÐ Nám til prófs í verðbréfaviðskiptum hluti III 3. febrúar Námsbraut í markaðsfræði í verki Skapaðu verðmæti með áhrifaríkum markaðslausnum 15. febrúar Námsbraut í alþjóðaviðskiptum Breytt heimsmynd – Ísland í sókn 15. febrúar Rekstrar- og fjármálanám 16. febrúar Vefstjórnun 22. febrúar Almennir bókarar 2. mars Námsbraut í markþjálfun (Coaching) 8. apríl Námsbraut í ferðamálum og þjónustu Fangaðu tækifæri vaxandi atvinnugreinar 8. mars STYTTRI OPIN NÁMSKEIÐ Þjónusta og framkoma Fyrir fólk í gestamóttöku 4.febrúar Framkoma og tjáning 8. febrúar Grunnatriði verkefnastjórnunar 8. febrúar Telephone English 15. febrúar Skapandi kennsluhættir 15. febrúar Tímastjórnun 17. febrúar Samningatækni 22. febrúar Greining ársreikninga 25. febrúar Innri endurskoðun á tímamótum 4. mars E-mail English 15. mars FagMennt Opna háskólans í HR býður öflug og fjölbreytt námskeið sem styrkja stöðu þína og stuðla að nýjum sóknarfærum. Kynntu þér námsframboð Opna háskólans vorið 2010. VERTU ... ... ÖFLUGRI Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Opna háskólans í HR í síma 599 6387. Skráðu þig núna á www.opnihaskolinn.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.