Fréttablaðið - 30.01.2010, Síða 12
12 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
UNDIR HITALAMPA Þrír jarðkettir stilltu
sér upp undir hitalampa í snjónum,
þegar frostið var komið niður í tíu
gráður í dýragarðinum í Worms í
Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Karlmaður um sextugt
hefur verið dæmdur fyrir stór-
fellt skattalagabrot í tólf mán-
aða skilorðsbundið fangelsi og til
greiðslu sektar upp á 54 milljónir
króna sem rennur til ríkissjóðs.
Maðurinn var ákærður fyrir
meiri háttar brot gegn skattalög-
um og lögum um bókhald í tengsl-
um við rekstur þriggja einka-
hlutafélaga um lengri tíma. Hann
var daglegur stjórnandi og eini
stjórnarmaður hlutafélaganna
þriggja. Brotin framdi hann á
árunum 1999 til 2005.
Hann játaði sök fyrir dómi og
var meðal annars litið til þess við
ákvörðun refsingar. - jss
Stórfellt skattalagabrot:
Rúmlega 50
milljónir í sekt
ÍRAN „Ef við sýnum veikleika nú
þá verður framtíðin verri,“ sagði
Ahmed Jannati, einn af harðlínu-
klerkunum í Íran við föstudags-
bænir í gær. „Það er ekkert rúm
fyrir íslamska miskunnsemi.“
Jannati er áhrifamikill í land-
inu og flytur oft aðalpredikun
við bænahald á föstudögum, sem
eru helgidagar í viku múslima.
Ummæli hans í gær þykja ótvíræð
vísbending um að fleiri stjórnar-
andstæðingar verði teknir af lífi á
næstunni.
Tveir menn voru teknir af lífi
á fimmtudag, en þeir voru báðir
handteknir í mótmælum sem fram
fóru í kjölfar umdeildra forseta-
kosninga síðasta sumar. Fjölmenn
mótmæli brutust út í kjölfar kosn-
inganna.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International hafa fordæmt aftök-
urnar á fimmtudag og segja rétt-
arhöldin yfir þeim ekki hafa upp-
fyllt lágmarkskröfur um réttláta
málsmeðferð.
„Aftökurnar eru þær fyrstu
svo vitað sé sem tengjast mót-
mælunum um allt landið í kjölfar
kosninganna,“ segir í yfirlýsingu
samtakanna, sem óttast að fleiri
mótmælendur verði teknir af lífi.
„Að minnsta kosti níu aðrir eru á
dauðadeild í Íran eftir álíka sýnd-
arréttarhöld.“ - gb
Amnesty International fordæmir aftökur mótmælenda í Íran:
Búast má við fleiri aftökum
MÓTMÆLI Í TEHERAN Fjölmenn mót-
mæli brutust út á síðasta ári og hafa
blossað upp af og til síðan.
NORDICPHOTOS/AFP
Skíðabox
St i l l ing hf . · S ími 520 8000
www.st i l l ing. is · s t i l l ing@sti l l ing. is
VIÐSKIPTI Landsbankinn, NBI,
gerði nokkrar árangurslausar til-
raunir til að selja málningarvöru-
verslunina Slippfélagið nálægt
upplausnarvirði áður en tilboði
eigenda Málningar í reksturinn
var tekið fyrir tæpum hálfum
mánuði, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins.
Nokkuð hefur borið á gagn-
rýni vegna sölunnar og hefur
Lilja Mósesdóttir, formaður við-
skiptanefndar Alþingis, lýst yfir
áhyggjum af ógagnsæi fyrir-
tækjasölu bankanna. Þá hefur
Fréttablaðið heyrt í einstaklingi
sem telur sig hlunnfarinn enda
ekki fengið að bjóða í fyrirtæk-
ið.
Landsbankinn tók Slippfélag-
ið yfir í fyrrahaust. Skipamáln-
ing frá Hempel hefur í tæp sex-
tíu ár numið um helmingi af
veltu Slippfélagsins og réð það
miklu um framtíð fyrirtækisins.
Á meðal krafna Hempel var að
Landsbankinn seldi ekki Slipp-
félagið í opnu söluferli. Þetta er
sambærileg krafa og áður hefur
verið sett fram, svo sem í tengsl-
um við yfirtöku á Vífilfelli, sem
er með umboð frá Coca Cola, og
Toyota-umboðinu.
Fyrri eigendur Slippfélagsins
ætluðu að leggja fram tilboð í
reksturinn. Félag þeirra, Ísalind,
varð hins vegar gjaldþrota áður
en af því varð.
Botninn tók úr rekstrargrund-
velli Slippfélagsins nokkru fyrir
síðustu áramót þegar Hempel
sleit samningum við fyrirtækið.
Nokkrir sölumenn Slippfélags-
ins tryggðu sér umboðið og fluttu
með sér yfir til Flügger á Íslandi.
Þessi þróun setti verulegt strik í
reikninginn og hefur Fréttablað-
ið heimildir fyrir því að í kjölfar-
ið hafi verðmæti Slippfélagsins
hrapað í bókum bankans.
Ljóst var að staða Slippfélags-
ins versnaði mikið við að missa
umboðið frá Hempel, jafnvel
óvíst að fyrirtækið gæti stað-
ið við skuldbindingar sínar. Til-
boðsferlinu var því flýtt og sjö
aðilum boðið að borðinu og bjóða
í Slippfélagið nálægt upplausn-
arvirði. Tilboðin voru öll undir
væntingum ef frá er talið tilboð
Málningar.
jonab@frettabladid.is
VERSLUN SLIPPFÉLAGSINS Danski málningarvöruframleiðandinn Hempel gerði
samning við Slippfélagið um framleiðslu á málningarefnum árið 1951 en sleit þeim
um síðustu áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Slippfélagið
átti allt sitt
undir Hempel
Hempel í Danmörku var á móti opnu söluferli með
Slippfélagið en sleit samningum til áratuga á ög-
urstundu. Verðmæti félagsins hrundi og gerði NBI
nokkrar tilraunir til að koma því í hendur annarra.