Fréttablaðið - 30.01.2010, Qupperneq 31
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
janúar 2010
FRAMHALD Á SÍÐU 6
Fyrir nokkrum árum tók einn reyndasti
kvikmyndagerðarmaður landsins, Ari
Kristinsson, ákvörðun um að taka undir
sig heljarinnar stafrænt stökk eða deyja
ella með fi lmunni. Síðan hefur hann
verið í fararbroddi kvikmyndatöku-
manna sem nýta sér nýjustu tækni til að
skapa nýja heima fyrir áhorfendur að
hverfa inn í. Ari segir hljóðláta byltingu
hafa átt sér stað í kvikmyndagerð.
KVIKMYNDIR HÓLMFRÍÐUR HELGA SIGURÐAR-
DÓTTIR
Þ
essa dagana situr Ari Kristinsson yfir eftir-
vinnslu á nýrri kvikmynd eftir Grím
Hákonarson, Sumarlandið. Fyrir nokkrum
árum hefði sú vinna farið fram einhvers
staðar í útlöndum. Þar hefði Ari setið
dögum og jafnvel mánuðum saman í herbergi með
ókunnugum manni og borið litaspjöld saman við film-
ur á ljósaborði. Nú er filman horfin af sjónarsviðinu
og stafræna tæknin tekin yfir. Þetta er bylting, segir
Ari. „Núna eru kvikmyndir að hluta til búnar til eftir
á. Þar af leiðandi tekur maður myndirnar með allt
öðru hugarfari. Á meðan þetta var allt á filmu varðstu
að klára þetta allt á tökustað. Nú þarftu að sjá til þess
að grunnatriði séu í lagi. Mörg smáatriði og auka-
atriði geturðu lagað seinna. Það hefur orðið bylting í
kvikmyndabransanum sem ég held að fólk almennt
geri sér enga grein fyrir. Ég er svo sem ekki hissa á
því, enda áttar stór hluti þeirra sem er að gera
kvikmyndir sig ekki á henni heldur.“
Hann játar að það geti verið skrýtið fyrir mann
sem hefur notað filmu mestallt sitt líf að sumt líti
beinlínis illa út á tökustað. „Jú, það getur verið dálítið
óþægilegt. En þegar ég efast verð ég að trúa á mínar
fyrri tilraunir. Það sparar heilmikinn tíma í mynda-
töku að vinna þetta svona. Atriði í heild er kannski
tekið upp á mörgum mismunandi og jafnvel mjög
ólíkum dögum, til dæmis við misjöfn birtuskilyrði.
Í litgreiningartölvunni er svo hægt að fá allt til að
falla saman. Þannig að allt líti út fyrir að vera tekið
við sömu skilyrði.“
Stafræna stökkið eða dauði
Ari notaði filmu þar til honum fannst stafræna tækn-
in komin á þann stað að hægt væri að ná sömu gæðum
eða betri en á filmuna. Fyrsta stafræna myndin sem
hann gerði var barnamyndin Duggholufólkið, sem
hann leikstýrði sjálfur. Þegar svo kom að því að
skjóta nýjustu mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar,
Mömmu Gógó, kom ekki annað til greina í Ara huga
en að fara stafrænu leiðina. Það tók hann nokkurn
tíma að sannfæra Friðrik Þór um að sleppa filmunni.
„Friðrik var dálítið smeykur við þetta til að byrja
með. Tækninni fleygir svo hratt fram að hún hafði
þróast töluvert frá því ég gerði Duggholufólkið. Nú
notaðist ég við svokallaða RED-tækni. Munurinn á
þessari tækni og þeirri sem ég notaði við Duggholu-
fólkið er að þá þurfti ofsalega stórt harðdiskapláss
til að geyma upplýsingarnar á. Latibær var þá eini
staðurinn á landinu sem átti nægilega stórt harð-
diskasafn og ég fór í samstarf við þá. RED-forritið
þjappar myndinni saman án þess að skemma hana,
þannig að hún tekur miklu, miklu minna pláss. Ég
var ánægður með að Friðrik væri tilbúinn að taka
BYLTING ÍSLENSKRAR
KVIKMYNDAGERÐAR
Semur tónlist
fyrir Íslenska
dansflokkinn
Ólafur Arnalds og
Alan Oyen vinna verk
um endalok ástarinnar.
SÍÐA 2
Íslendingar sýna
í Berlín
Björk Viggósdóttir með
hljóðverk í spennandi lista-
miðstöð í Mitte-hverfinu.
SÍÐA 2