Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.01.2010, Qupperneq 59

Fréttablaðið - 30.01.2010, Qupperneq 59
LAUGARDAGUR 30. janúar 2010 31 hálfu. Katrín segir þetta hefðbund- in vinnubrögð flokksformannsins. „Þetta er hans stíll. Hann legg- ur sig allan undir sama hvaða mál eiga í hlut. Þetta gerði hann með Icesave og líka skattkerfisbreyt- ingarnar. Ég er ekki viss um að það sé rétt að kalla það mistök því þegar vel gengur eru allir glað- ir. Þegar við lögðum af stað með minnihlutastjórnina fyrir ári sögð- umst við ætla að leysa þetta. Það höfum við reynt en engan óraði fyrir að ári síðar yrði málið enn óleyst.“ Ömurlegt er orðið sem Katr- ín velur Icesave-málinu. En þó að enginn íslenskur skattgreið- andi vilji borga skuldir sem hann stofnaði ekki til segist hún telja að langflestir séu sammála um að það verði að leysa málið. Óviss um lagalegu ábyrgðina En hvað vill hún sjálf? „Mín skoðun er sú að við berum ábyrgð á stjórnvöldum á hverjum tíma. Stjórnvöld á þeim tíma tóku ákvarðanir sem skapa þessa stöðu nú. Við hljótum að bera einhverja ábyrgð á því sem gerðist en ég er hins vegar ekki viss um að við berum lagalega ábyrgð. En málið hefur aðrar hliðar; siðferðislegar og hagrænar og að teknu tilliti til þessa alls komst ég að þeirri nið- urstöðu að segja já við málinu í tvígang í þinginu.“ Katrín telur fyrri ríkisstjórn hafa átt að bregðast við öðru vísi en hún gerði þegar Bretar beittu hryðjuverkalögunum. „Þá áttum við að fara í hart en við misstum þá af tækifæri til að fara með það mál fyrir dómstóla. Eftir það hef ég stutt það heils hugar að leysa þetta með samningum.“ Stjórnarandstaðan hefur hald- ið uppi látlausri gagnrýni á ríkis- stjórnina í Icesave-málinu. Katrín segir umræðuna hafa verið stór- yrta en viðurkennir af heiðarleika að líklega hefði hún orðið það, sama hverjir hefðu verið í stjórn- arandstöðu. Hún fordæmir hins vegar allt tal um landráð og að fólk hafi gætt hagsmuna erlendra ríkja, telur það fyrir neðan allar hellur. Erfitt ástand í VG En gagnrýnin hefur ekki aðeins komið úr fylkingum stjórnar- andstöðunnar, þingmenn Vinstri grænna eru jú sumir hverjir harð- ir andstæðingar Icesave-samn- inganna og laganna um þá. Og Ögmundur hætti í ríkisstjórninni. Katrín er sammála því að málið hafi leikið VG afar grátt. „Þessi djúpstæði ágreiningur innan okkar raða hefur verið mjög erfiður. Sum okkar telja að við höfum verið á réttri leið en aðrir eru algjörlega ósammála.“ Truflar þetta önnur mál í flokkn- um? „Já það gerir það. ESB-málið hefur líka verið okkur erfitt. Og veran í ríkisstjórn hefur svo sem verið okkur erfið út af fyrir sig. Eftir tíu ár í stjórnarandstöðu þar sem við gátum verið með skýra afstöðu í öllum málum þurfum við að gera málamiðlanir. Lítið dæmi er þessi mikli niðurskurður til menningar sem ég í prinsippinu er algjörlega á móti.“ Það er kannski hrokafullt að spyrja en hentar það flokki eins og VG að vera í ríkisstjórn? „Þetta er ekki hrokafull spurn- ing. Það má alveg spyrja hvort það er veikleiki eða styrkleiki að þing- menn greiði ekki allir atkvæði sem einn og þetta hefur oft verið rætt í þingflokknum. Það getur stundum verið styrkleiki að vera sammála um að vera ósammála en þetta er auðvitað óhefðbundið í samanburði við til dæmis hinn hefðbundna valdaflokk íslenskra stjórnmála, Sjálfstæðisflokkinn. Á þeim bæ væri svona lagað fjarstæðukennt. En ég held að í öllu falli séum við vel stjórntæk þó við stundum ann- ars konar stjórnmál.“ Stjórnin metur stöðuna Hver verður staða ríkisstjórnar- innar ef Icesave verður fellt í þjóð- aratkvæðagreiðslu? „Ég sé ekki fyrir mér að við segjum sjálfkrafa af okkur eins og sumir telja. Ekki frekar en að við munum sjálfkrafa halda áfram þó Icesave verði samþykkt. Það þarf að meta stöðuna hvernig sem fer.“ Við sitjum í stofunni hjá Katrínu í Vesturbænum. Yngri drengurinn hennar er með hlaupabólu og finnst gott að hafa mömmu sína hjá sér. Það er fátítt að menntamálaráð- herra sé heima hjá sér um hábjart- an virkan dag. „Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem ég sem ráðherra er heima hjá veiku barni. Maðurinn minn sinnir því venjulega en í dag er hann að kenna uppi á Bifröst.“ Vinnurðu annars sjö daga vik- unnar? „Stundum en það er meira um að ég vinni mjög langa fimm daga vik- unnar. Ég reyni alla vega að vera heima hjá mér á sunnudögum.“ Að þessu sögðu kveðjumst við. Síðari hálfleikur í leik Íslendinga og Norðmanna á Evrópumótinu í handbolta er að hefjast. Ráðherra íþróttamála þarf jú að fylgjast með. ➜ VARÐ RÁÐHERRA Á AFMÆLISDEGINUM SÍNUM Katrín er fædd 1. febrúar 1976. Hún varð því ráðherra á 33 ára afmælisdeginum sínum fyrir rétt tæpu ári. Katrín er með próf í íslensku og íslenskum bókmenntum. Hún sinnti margvíslegum störfum á sviði menningar og kennslu áður en hún var kjörin á þing 2007. Hún var formaður Ungra vinstri grænna 2002-2003 og hefur verið varaformaður VG frá 2003. Hún var varaborgarfulltrúi í Reykjavík 2002-2006. Marki Katrínar er Gunnar Örn Sig- valdason og eiga þau synina Jakob og Illuga. afsláttur 30 70 til prósent íþróttaskór útivistarfatnaður sportfatnaður barnafatnaður reiðhjól HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND www.utilif.is mei ri afsl áttu r
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.