Fréttablaðið - 30.01.2010, Page 66
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
38 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Margir stórkostlegir list-
málarar voru gróflega
misskildir í lifanda lífi.
Ég passa fullkomlega
inn í þann hóp.
Ég verð lofaður og
dáður löngu eftir
dauða minn.
Ef ég næ að
útmá öll spor.
Ég er að
safna skeggi!
Ókei.
Fínt.
Ég mun ekki raka
mig, sama hvað þú
segir.
Þessi mótþróafulla
uppreisn hefði meiri
þýðingu ef þú styddir
ekki svo hjartanlega við
bakið á mér.
Afsakið,
elskan.
Ef einhver hefði sagt mér fyrir
tíu árum að einn daginn yrði
ég kominn á fætur klukkan sex
að morgni á frídegi og væri
hamingjusamur með það, þá
hefði ég sagt að sá hinn sami
væri klikkaður.
Gleðileg jól,
ástin.
Það á enn eftir að
lagfæra nokkrar
villur í tölvubún-
aðinum, slæmir
hlutir eru að
henda gott fólk...
MIÐASALAN ER OPIN 13-17
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
Samstarfsaðili:
MIÐASALA Á WWW.LEIKFELAG.IS
MIDASALA@LEIKFELAG.IS
ÓTRÚLEG LEIKTILÞRIF!
ÓTRÚLEG SPENNA!
ÓTRÚLEGAR TÆKNIBRELLUR!
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í SÍMA 4 600 200!
4 LEIKA
RAR 13
9 HLUT
VERK
F É L A G Í S L E N S K R A
B Ó K A Ú TG E F E N D A
BÓKAMARKAÐUR 2010
Árlegur Bókamarkaður Félags
íslenskra bókaútgefenda verður
Í Perlunni 19. febrúar til 7. mars
næstkomandi.
Útgefendur sem vilja bjóða
bækur sínar á markaðinum er
bent á að hafa samband við
Félag íslenskra bókaútgefenda
sem fyrst, eða eigi síðar en
5. febrúar nk., í síma 511 8020
eða á netfangið baekur@simnet.is
Aðeins verður tekið á móti bókum
sem komu út 2008 eða fyrr.
Nú er orðið ljóst að ef ísbjörn gengur á land á Íslandi þá verður hann skotinn.
Viðbragðsáætlunin er ekki flóknari en það
og við getum hætt að tala um sérhönnuð búr
og deyfilyf. Þetta er hugsanlega skýrasta
viðbragðsáætlun sem til er á landinu. Ef þú
sérð ísbjörn, þá skaltu skjóta hann í haus-
inn. Flott. Þetta er þá komið á hreint.
NÚ þurfum við að snúa okkur að smíði við-
bragðsáætlunar ef annarri skepnu í útrým-
ingarhættu skolar á land; útrásarvíkingn-
um. Útrásarvíkingar voru algengastir hér
á landi í kringum aldamót og allt til ársins
2008. Þá snarminnkaði stofninn í kjölfar
þess að beitilandið nánast hvarf. Þeir sem
lifðu af héldu flestir til annarra landa þar
sem enn má finna fóður, en útrásarvík-
ingar nærast á peningum, skuldabréfum,
verðbréfum og öðrum verðmætum pappír.
ÚTRÁSARVÍKINGA má þekkja á klæða-
burði þeirra. Þeir eru yfirleitt klæddir í
falleg jakkaföt, í sléttum skyrtum og
með stórglæsileg bindi. Ég vil benda
fólki á að mikilvægt er að halda ró
sinni þegar útrásarvíkingur verð-
ur á vegi manns. Mikilvægt er að
styggja hann ekki með tali um
liðna tíð og í engum tilvikum
ætti fólk að biðja hann um pen-
inga. Útrásarvíkingurinn er
fljótur upp ef á honum er brot-
ið og er hann oft með her svokallaðra „lög-
fræðinga“ með í för. Þeir eru sérstaklega
hættulegir – séu þeir hungraðir.
GEÐ útrásarvíkingsins ræðst mikið til af
ástandi á fjármálamörkuðum. Ekki nálgast
hann ef Úrvalsvísitalan er veik. Þá bítur
hann. Ef grænar tölur einkenna fjármála-
markaði ætti útrásarvíkingurinn hins
vegar að vera mjög gæfur. Í einhverjum til-
vikum ætti að vera í lagi að nálgast hann,
klóra honum bak við eyrun og leyfa honum
að éta klink úr lófa. Ef útrásarvíkingur-
inn byrjar að sleikja lófann er mikilvægt að
slíta sig frá honum – hann er þekktur fyrir
að grípa allan lófann, sé honum réttur fing-
ur.
EKKI er mælt með því að halda útrásar-
víkinga sem gæludýr og þeir henta einnig
illa við búskap. Þeim lyndir illa við önnur
dýr og þeir sem hafa geymt þá í hesthús-
um segja að það endi yfirleitt með því að
þeir reyni að kaupa hrossin. Vel hefur hins
vegar reynst að geyma þá með svínunum,
en líffærum og atferli útrásarvíkingsins
svipar mjög til svína.
ÉG vona að þið getið notað þessar upp-
lýsingar, ef útrásarvíkingi skolar á land í
ykkar sveit. Ef allt bregst er gott að vita af
búrinu sem átti að geyma ísbirni, en ætti að
rúma tíu til tólf útrásarvíkinga.
Viðbragðsáætlun