Fréttablaðið - 30.01.2010, Page 78
50 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
HANDBOLTI Íslenska landslið-
ið hefur staðið sig frábærlega á
Evrópumótinu í Austurríki og er
búið að tryggja sér sæti í undan-
úrslitunum á sínu öðru stórmóti í
röð. Vörnin og markvarslan hefur
verið frábær stærsta hluta mótsins
en það sem stendur líka upp úr er
fjölbreytni sóknarleiksins þar sem
allir sex byrjunarliðsmenn liðsins
hafa skorað meira en fjögur mörk
að meðatali í leik. Íslenska landslið-
ið á þannig sex leikmenn meðal 26
markahæstu manna Evrópumótsins
þegar aðeins á eftir að spila örfáa
leiki á mótinu.
Íslenska landsliðið hefur skorað
mest allra liða á EM eða 32,0 mörk
að meðaltali, þar af hefur þessi
sextett, sem er byrjunarlið liðsins,
skorað 27,2 mörk í leik eða 85 pró-
sent markanna.
Arnór Atlason er markahæsti
leikmaður íslenska liðsins með 33
mörk í 6 leikjum eða 5,5 mörk að
meðaltali. Arnór hefur skorað öll
mörkin sín utan af velli og 23 af
þeim hafa verið úr langskotum.
Arnór hefur einnig skorað flest
mörk úr gegnumbrotum í íslenska
liðinu eða alls fimm.
Ólafur Stefánsson er annar
markahæsti leikmaður íslenska
liðsins með 27 mörk í 6 leikjum
eða 4,5 að meðaltali í leik. Ólafur
hefur skorað 21 af mörkum sínum
úr langskotum og 2 úr vítum.
Þeir Snorri Steinn Guðjónsson,
Róbert Gunnarsson og Guðjón
Valur Sigurðsson hafa allir skor-
að 26 mörk í 6 leikjum eða 4,3 að
meðaltali. Snorri Steinn hefur skor-
að flest mörk úr vítum (14), Guðjón
Valur hefur skorað flest úr hraða-
upphlaupum (16) og úr horni (10)
og Róbert Gunnarsson hefur skor-
að flest af línu eða 24.
Alexander Petersson er síðan
sjötti maðurinn með yfir fjög-
ur mörk en hann hefur skorað 25
mörk í 6 leikjum eða 4,2 að meðal-
tali í leik.
Fimm leikmenn íslenska liðsins
skoruðu fjögur mörk eða meira í
leik á HM í Þýskalandi fyrir þrem-
ur árum en Ísland átti þá marka-
hæsta mann mótsins í Guðjón Val
Sigurðssyni. Guðjón Valur skoraði
þá 6,6 mörk að meðaltali í leik en
þeir Ólafur Stefánsson (5,3) Snorri
Steinn Guðjónsson (5,3), Logi Geirs-
son (4,8) og Alexander Petersson
(4,8) skoruðu allir yfir fjögur mörk
að meðaltali í tíu leikjum íslenska
liðsins á mótinu.
Það er ekki skrítið að handbolta-
sérfræðingar hrósi sóknarleik
íslenska liðsins og að margir telji
okkur eiga besta sóknarlið heims.
Það er nefnilega ekki auðvelt að
stoppa íslenska liðið þegar mörkin
koma úr öllum áttum.
ooj@frettabladid.is
Mörkin úr öllum áttum á EM
Það gæti farið svo í fyrsta sinn á stórmóti að sex leikmenn íslenska landsliðsins skori 4 mörk að meðaltali í
leik. Sex markahæstu menn íslenska landsliðsins eru allir meðal þeirra 26 markahæstu á EM í Austurríki.
NÆSTA SÓKN PLÖNUÐ Guðmundur Guðmundsson fer yfir sóknarleikinn með þeim Snorra Steini Guðjónssyni, Róberti Gunnars-
syni og Ólafi Stefánssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ DIENER
LEIKMENN MEÐ 4 MÖRK Í
LEIK Á SÍÐUSTU MÓTUM:
EM 2010
Arnór Atlason 5,5 mörk í leik (33/6)
Ólafur Stefánsson 4,5 (27 mörk/6 leikir)
Snorri Steinn Guðjónsson 4,3 (26/6)
Róbert Gunnarsson 4,3 (26/6)
Guðjón Valur Sigurðsson 4,3 (26/6)
Alexander Petersson 4,2 (25/6)
ÓL 2008
Snorri Steinn Guðjónsson 6,0 (48/8)
Guðjón Valur Sigurðsson 5,4 (43/8)
EM 2008
Guðjón Valur Sigurðsson 5,7 (34/6)
Ólafur Stefánsson 4,8 (19/4)
Snorri Steinn Guðjónsson 4,7 (28/6)
HM 2007
Guðjón Valur Sigurðsson 6,6 (66/10)
Ólafur Stefánsson 5,3 (53/10)
Snorri Steinn Guðjónsson 5,3 (53/10)
Logi Geirsson 4,8 (48/10)
Alexander Petersson 4,8 (48/10)
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs-
son segir gott að vita til þess að
íslenska handboltalandsliðið sé í
þeirri stöðu að geta skemmt þjóð-
inni á þeim erfiðu tímum sem nú
ganga yfir.
„Miðað við þær áhorfstöl-
ur sem maður hefur séð hlýtur
það að þýða að fólki líður vel og
sé ánægt á meðan við erum að
standa okkur vel,“ sagði Guðjón
Valur.
„Okkur tekst kannski ekki að fá
Breta og Hollendinga til að slaka
á kröfum sínum í Icesave-málinu
en við teljum það mikil forrétt-
indi að geta sett sig í hlutverk
skemmtikrafts sem getur gefið
fólki gleði í þann stutta tíma sem
við erum að spila handbolta. Við
erum ekki að gera þetta aðeins
fyrir okkur.“
Vonandi verður gleðin áfram
við völd í dag en Ísland mætir
Frakklandi í undanúrslitum EM í
handbolta klukkan 13.00. - esá
Guðjón Valur Sigurðsson:
Gaman að
skemmta fólki
GUÐJÓN VALUR Ánægður með stuðning-
inn frá þjóðinni. MYND/DIENER
> Sauma þurfti tvö spor í Sverre
Það var hart tekist á í leik Íslands og Noregs á EM í hand-
bolta í fyrrakvöld. Baráttan var mest á milli varnarmanna
íslenska liðsins og þess norska línumanns sem var inn á
hverju sinni. Baráttan var oft afar harkaleg og þurfti að
sauma tvö spor í hnakka Sverre eftir að hann fékk oln-
bogaskot frá Bjarte Myrhol í leiknum. Það kemur þó ekki
að sök og verður Sverre að óbreyttu í eldlínunni með
íslenska landsliðinu gegn
Frökkum í dag.
Björgvin Páll Gústavsson hefur átt frábæru gengi að fagna á Evr-
ópumeistaramótinu í handbolta eins og svo margir aðrir leikmenn
íslenska landsliðsins. „Þetta hefur verið mjög furðulegt mót,“ sagði
Björgvin Páll um eigin frammistöðu. „Styrk-
leikar mínir hafa orðið að mínum veik-
leikum og svo öfugt. Ég hef til dæmis ekki
náð mér á strik í vítaköstunum hér úti og átt í
vandræðum með snúningana inn úr hornunum.
Ég hef yfirleitt verið hvað bestur í að takast á við
það í gegnum tíðina. Það er því gott að vita að
ég á helling inni en mér finnst að ég hafi verið að
spila aðeins undir getu. Ég vona að ég toppi svo á
réttum tíma.“
Björgvin Páll hefur áður gefið út að hann ætlar sér í hóp
fremstu handboltamarkvarða heimsins.
„Það var eitthvað sem ég ákvað þegar ég var fjórtán ára
gamall. Ég ætla mér í hóp fimm bestu markvarða heims og
mér finnst ég vera á góðri leið þangað. Að ná þessum árangri
með landsliðinu er eitt skrefið í því ferli. Ég mun halda áfram
að vinna að þessu og það er svo aðeins tímaspursmál hvenær þetta
verður að veruleika.“
Björgvin verður 25 ára á árinu og því á hann enn mörg ár eftir í bolt-
anum. „Ég held að ég sé langyngstur allra þeirra markvarða sem eru
komnir í undanúrslit með sínum landsliðum. Steinar Ege, sem stend-
ur í norska markinu, er 38 ára. Ég álít því að ég eigi um 20 góð ár í
boltanum til viðbótar,“ sagði hann og hló að þeirri tilhugsun
að hann gæti enn verið að spila þegar Evrópumeistara-
mótið fer fram árið 2030.
Ísland mætir liði Frakka í dag en með því liði leikur einn
besti markvörður heimsins, Thierry Omeyer.
„Hann er einn af fimm bestu markvörðum heims í dag.
[Kasper] Hvidt hefur einnig verið í fremstu röð. Þá er
[Arpad] Sterbik hjá Spánverjunum líka í þessum
hópi,“ sagði Björgvin. „En minn uppáhaldsmark-
vörður hefur alltaf verið Thomas Svensson. Við
höfum svipaðan persónuleika og erum svipaðir
markverðir. Hann hefur líka þjálfað mig mikið og
veitt mér mikinn stuðning og innblástur.“
HANDBOLTI Vigni Svavarssyni fannst
auðvitað súrt í brotið að hafa misst
af Ólympíuleikunum í Peking þar
sem liðið náði silfurverðlaununum
frægu. Hann gat ekki spilað með
á leikunum þar sem hann átti við
meiðsli að stríða.
„Jú, auðvitað var það svekkj-
andi á sínum tíma en ég hristi það
af mér á tveimur dögum,“ segir
hann og neitar því ekki að honum
þætti það spennandi tilhugsun að
fá að taka þátt í öðru ævintýri með
íslenska landsliðinu nú.
„Ég er spenntur eins og allir
aðrir í liðinu við að fá að takast á
við þetta verkefni. Það er draumur
fyrir mig að fá að upplifa undanúr-
slit í stórmóti. Þannig er það örugg-
lega líka fyrir hina leikmennina,“
sagði Vignir við Fréttablaðið í gær.
Hann segir að liðið hafi fagnað vel
þegar ljóst varð að það væri komið
í undanúrslit en að menn hafi verið
fljótir að kippa sér aftur á jörð-
ina.
„Við vorum vissulega glaðir
en vorum þó ekki að tapa okkur í
fagnaðarlátunum. Þetta fór eins og
við ætluðum okkur og við nutum
þess um kvöldið. Sumir fóru út af
hótelinu til að fá sér að borða en
við vorum þó allir komnir snemma
í háttinn til að vera tilbúnir fyrir
verkefni dagsins.“
Sem kunnugt er tapaði Ísland
fyrir Frakklandi í úrslitum Ólymp-
íuleikanna og hefur verið með
sterkustu þjóðum í heimi undanfar-
in ár. „Frakkar eru með hrikalega
gott lið og þessir leikmenn hafa
spilað lengi saman. Þetta verður
því mikil áskorun fyrir okkur en
ég hlakka mikið til að takast á við
hana.“ - esá
Vignir Svavarsson línumaður missti af Ólympíuleikunum en er með á EM:
Frakkar eru með hrikalega gott lið
VIGNIR SVAVARSSON Átti erfitt uppdráttar í upphafi móts en leik feykivel gegn Norð-
mönnum. MYND/DIENER
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON LANDSLIÐSMARKVÖRÐUR: Á VONANDI 20 GÓÐ ÁR EFTIR Í BOLTANUM
Á helling inni og toppa vonandi á réttum tíma
sport@frettabladid.is