Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 4
4 9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 16° 7° -5° -1° 1° -2° 3° -2° -2° 20° 4° 14° 3° 22° -6° 2° 12° -2° Á MORGUN 5-10 m/s. FIMMTUDAGUR 3-8 m/s. 6 3 4 3 3 0 0 1 -2 5 -6 6 6 5 3 4 2 3 2 3 2 10 4 6 5 -2 -3 6 4 4 -2 -4 TÍÐINDALÍTIÐ VEÐUR Veðrið næstu dagana verður mjög svipað en það verða hæg- ar suðlægar áttir ríkjandi og yfi rleitt úrkomulítið. Helst að það verði lítils háttar væta um sunnan- og vestan- vert landið en fyrir norðan og austan verður tiltölulega bjart áfram. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður STJÓRNSÝSLA Tíu sóttu um að gegna embætti forstjóra Útlend- ingastofnunar frá og með 1. apríl næstkomandi. Á meðal umsækj- enda er Jón- ína Bjartmarz, fyrrverandi umhverfis- ráðherra og þingmaður Framsóknar- flokksins. Umsóknar- frestur rann út á fimmtu- daginn síðasta en embættið var auglýst laust til umsóknar 15. janúar. Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mann- réttindaráðherra, skipar í emb- ættið til fimm ára í senn. Umsækjendur eru auk Jónínu: Einar Örn Thorlacius, Gísli Rúnar Gíslason, Halldór Frímannsson, Halldór Eiríkur S. Jónhildarson, Kristín Völundardóttir, Kristján Baldursson, Oddur Gunnarsson, Margrét Steinarsdóttir og Ragn- heiður Ólöf Böðvarsdóttir. - shá Útlendingastofnun: Tíu sóttu um forstjórastólinn JÓNÍNA BJARTMARZ STJÓRNMÁL Afborganir af Icesave- skuldum Íslands gagnvart Bretum og Hollendingum gætu hafist fyrr en samist hefur um. Í fyrirliggjandi samningum er gert ráð fyrir að endurgreiðslur hefjist árið 2016 en vextir greiðist frá síðasta ári. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins miðar vinnan hérlendis – við að ná nýjum og hagfelldari Icesave-samningum – einkum að því að lækka kostnað Íslands. Í ljósi þess að Bretar og Hollend- ingar hafa í óformlegum við- ræðum haldið fast í kröfu sína um að fá höfuðstól skuldarinn- ar greiddan er nú horft til þess hvernig lækka megi vaxtakostn- aðinn. Kemur þar tvennt til. Annars vegar að ná hagstæðari vaxtakjörum en samist hefur um og hins vegar að hefja afborgan- ir fyrr en ráð var fyrir gert. Við það myndi höfuðstóll skuldar- innar minnka hraðar og með því sparast háar fjárhæðir. Meðferð eigna bús Lands- banka Íslands hf. er lykilatriði í þeim efnum. Er nú rætt og skoð- að hversu hratt er hægt að losa um þær án þess þó að rýra virði þeirra. Ljóst er að nokkur misseri munu líða áður en hægt verður að koma eigunum í verð enda talið nauð- synlegt að ekki ríki réttaróvissa um búið og meðferð þess. Lunginn af eigum bús Lands- bankans eru lán til erlendra aðila. Eru þau metin traust eign enda í skilum. Að auki á búið hluti í fyrirtækjum – erlendum og inn- lendum. Í gær var ákveðið á fundi stjórn- valda og stjórnarandstöðu að leita aðstoðar og ráða Lee Buchheit sem er bandarískur sérfræðing- ur á sviði þjóðarskulda. Bucheit kom fyrir fjárlaganefnd Alþing- is vegna Icesave-málsins í ágúst og reifaði þar þá skoðun sína að ekkert bæri að aðhafast gagn- vart Bretum og Hollendingum fyrr en virði eigna Landsbank- ans lægi fyrir. Stjórnvöld sögðu þá að sú leið hefði þegar verið reynd í samningaviðræðum en án árangurs. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins er líklegt að fleiri útlend- ingar verði fengnir til ráðgjafar. bjorn@frettabladid.is Rætt um að byrja að borga fyrr af Icesave Háar fjárhæðir gætu sparast við að hefja endurgreiðslu Icesave-lána fyrr en árið 2016. Í athugun er að koma eigum bús Landsbankans í verð með skjótari hætti en rætt hefur verið um. Erlendir sérfræðingar fengnir til ráðgjafar. MENNTUN Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinn- ar og fulltrúi í leikskólaráði, telur víst að biðlistar eftir leikskóla- vist hjá Reykjavíkurborg muni lengjast mikið á næstu mánuð- um vegna þeirrar ákvörðunar að breyta innritunarreglum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010. Breyttar reglur gera ekki ráð fyrir að ný börn séu tekin inn í leikskólana fyrr en í haust, að hennar sögn. Því megi ljóst vera að bið barnafólks eftir leikskóla- plássi lengist. „Það er alveg á hreinu að þessi 130 börn sem nú bíða verða orðin fleiri hundruð þegar kemur fram á sumarið,“ segir Oddný. Hún bendir á að árið 2010 verði í Reykjavík 1.791 barn eins árs og 1.658 nái þá tveggja ára aldri. Oddný lagði fram fyrirspurn á fundi leikskólaráðs á miðviku- dag og spurði hvort meirihlutinn hygðist endurskoða þá ákvörðun að seinka innritun leikskólabarna fram yfir sumarleyfi starfsfólks í hagræðingarskyni. Í fyrirspurn- inni segir að gjörbreytt staða sé að koma upp sem sjáist á að dag- foreldrar anni vart eftirspurn öfugt við það sem var síðla síð- asta árs þegar meirihluta dagfor- eldra vantaði börn í vistun. - shá Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar telur stefna í óefni í leikskólamálum í borginni: Biðlistar lengjast að óbreyttu ODDNÝ STURLUDÓTTIR Telur að breyttar innritunarreglur í leikskóla muni lengja biðlista og koma foreldrum og fyrirtækjum illa. BANDARÍKIN, AP Bandarísku geim- ferjunni Endeavor var skotið út í geiminn frá Canaveral-höfða í Flórída í fyrrinótt. Ferðinni er heitið til alþjóð- legu geimstöðvarinnar, þar sem George Zamka og áhöfn hans munu koma fyrir nýjum búnaði. Innan fárra vikna snýr ferjan svo aftur til jarðar. Geimferjur Bandaríkjanna eru annars að syngja sitt síðasta. Líklega verða aðeins farnar fjórar ferðir í við- bót á þessu ári, en síðan verður hætt að nota þær. Upphaflega átti að skjóta ferjunni upp á sunnu- dag, en geimskoti var þá frestað vegna þess hve lágskýjað var. - gb Geimferjan Endeavor: Þaut út í geim- inn enn á ný Á UPPLEIÐ Geimferjan Endeavor yfirgaf jörðina í fyrrinótt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP John Murtha látinn Bandaríski fulltrúadeildarþingmaður- inn John Murtha, einn áhrifaríkasti demókrati þingsins, lést í gær 77 ára að aldri. Hann er meðal annars þekktur fyrir kjördæmapot og harða gagnrýni sína á Íraksstríðið. Bana- meinið tengist gallblöðruaðgerð í síðasta mánuði, sem fór úrskeiðis. BANDARÍKIN SJÁVARÚTVEGUR Norsku loðnuskipin luku veiðum á sunnudag og til- kynntu þau 27.745 tonna afla, sem er fáum tonnum innan við útgef- inn kvóta. Norsku skipin komu á miðin 2. febrúar en af 79 skipum sem höfðu veiðileyfi kom 31 skip til veiða. Alls var 25 skipum leyft að veiða í einu og voru því sex skip á biðlista þar til önnur skip voru búin að veiða og farin til löndunar. Erill hefur verið hjá Landhelgis- gæslunni vegna norsku skipanna. - shá Loðnuveiðin fyrir austan: Norskir hafa lokið veiðum SAMGÖNGUR Vegagerðin og Vest- mannaeyjabær ræða þessa dag- ana um gjaldskrá og ferðaáætlun Herjólfs í Landeyjahöfn. Áætlað er að ferðir hefjist 1. júlí en vonir standa til að bókanir hefjist um miðjan febrúar. Mikið hefur borið á milli hug- mynda Vegagerðarinnar og Eyja- manna. Eyjafrettir.is segja hins vegar frá því að Elliði Vignisson bæjarstjóri sé vongóður um ásætt- anlega niðurstöðu fyrir Eyja- menn. Elliði vonast til að um miðj- an febrúar verði hægt að byrja að bóka í Herjólf bæði á þjóðhátíð, goslokahátíðina og almennt í ferð- ir í sumar. - shá Siglingar í Landeyjahöfn: Hægt að bóka innan skamms ICESAVE Á fundi stjórnar og stjórnarandstöðu í gær var ákveðið að leita til Lee Buchheit, bandarísks sérfræðings á sviði þjóðarskulda. Líklega verður leitað til fleiri útlendinga til ráðgjafar. NORDICPHOTOS/GETTY GENGIÐ 08.02.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 231,354 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,41 129,03 199,93 200,91 175,78 176,76 23,610 23,748 21,494 21,620 17,287 17,389 1,4349 1,4433 197,61 198,79 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.