Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 9. febrúar 2010 5
FYLGISEÐILL LYFS er yfirleitt laust blað í lyfjapakkningunni.
Mikilvægi þess að notendur lyfja kynni sér vel upplýsingar á seðlun-
um verður aldrei ofmetið. Ef þörf er fyrir frekari upplýsingar er mikil-
vægt að leita til læknis eða lyfjafræðings.
Sængurkonur á Selfossi þurfa
framvegis að koma með eigin föt
og bleiur á fæðingardeild Heil-
brigðisstofnunar Suðurlands en
það er í samræmi við það sem tíðk-
ast hefur á Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi frá áramótum.
Ákvörðunin er liður í sparnaðar-
aðgerðum stofnunarinnar en
að sögn Sigrúnar Kristjáns-
dóttur yfirljósmóður fylgir því
mikill kostnaður að endurnýja
barnafatalagerinn. „Bleiukostn-
aðurinn er þó ekki jafn mikill
og á Landspítalanum enda tals-
vert minna rennsli hjá okkur. Það
safnast þó þegar saman kemur.“
Sigrún segir að breytingunni
verði komið á hægt og bítandi og
að ætlunin sé að koma skilaboð-
um inn hjá mæðraverndinni. „Við
eigum enn þá bleiu- og barnafata-
lager og munum nota fötin þar til
þau verða úr sér gengin. Þá eigum
við alltaf taubleiur á lager svo
börnin verða aldrei bleiulaus.“
Sigrún segir fólk taka breyting-
unni vel. „Sængurlegan hefur styst
og flestir eru hvort eð er búnir að
kaupa bleiur. Þá vilja margir for-
eldrar heldur klæða börn sín í
eigin föt. Mörgum finnst það per-
sónulegra og hefur talsvert borið
á því að foreldrar hafi tekið upp á
því sjálfir eftir að Landspítalinn
lagði línurnar.“ vera@frettabladid.is
Koma með eigin bleiur
Sparnaðaraðgerðir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands kalla á fyrirhyggju foreldra en þeir þurfa nú að
koma með eigin nýburaföt og bleiur á fæðingardeildina.
Netfíkn og þunglyndi helst
í hendur samkvæmt breskri
rannsókn.
Sterk tengsl eru á milli netfíknar
og þunglyndis samkvæmt nýlegri
rannsókn breskra sálfræðinga
við Leeds University. Fullyrðing-
in byggist á svörum 1.319 net-
notenda á aldrinum 16 til 51 árs.
Átján þeirra voru haldnir netfíkn
og var tíðni þunglyndis fimm sinn-
um meiri hjá þeim en hinum. Net-
fíklarnir áttu það sameiginlegt að
eyða mun meiri tíma á kynlífs-,
fjárhættu- og spjallsíðum en hinn
almenni notandi.
„Niðurstöður okkar benda til
þess að netfíkn og þunglyndi
haldist í hendur. Við vitum þó
ekki hvort kemur á undan. Laðast
þunglyndir að netinu eða veldur
netnotkunin þunglyndi? Það verð-
ur okkar næsta verkefni að komast
að því,“ segir dr. Norrison sem fór
fyrir rannsókninni. - ve
Tengsl milli
netfíknar og
þunglyndis
Tíðni þunglyndis er fimm sinnum meiri
hjá netfíklum en hjá almennum netnot-
endum.
Nýburar á fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands verða nú í eigin fötum og með bleiur sem mamma og pabbi koma
með að heiman. NORDICPHOTOS/GETTY
STA
FGA
NGA
ÁHR
IFAR
ÍK L
EIÐ
TIL L
ÍKAM
SRÆ
KTA
R
Stafgöngunámskeið hefjast 16. febrúar 2010
stafgönguþjálfi, 616 85 95.
stafgönguþjálfi, 694 35 71.
Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.
SKRÁNING & NÁNARI UPPLÝSINGAR Á:
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
M eirapró f
U p p lýsin gar o g in n ritun
í s ím a 5670300