Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 20
 9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 „Ég mun keppa í svigi og stór- svigi í flokki sitjandi en í honum keppa bæði konur og karlar á sér- hönnuðum skíðasleða, svokölluð- um mono-skíðum,“ segir Erna sem fæddist með klofinn hrygg. „Keppendur sitja þá í stól og eru á einu skíði en eru einnig með skíðastafi sem eru með litlum skíðum undir.“ Erna, sem er 22 ára, kynntist skíðaíþróttinni fyrst þegar leið- beinendur frá Challenge Aspen voru með námskeið í Hlíðar- fjalli árið 2000 en það var í sam- starfi við Íþróttasamband fatl- aðra og Vetraríþróttamiðstöð Íslands. „Ég hef alla tíð stund- að skíðaíþróttina með góðum stuðningi frá foreldrum mínum en pabbi minn lærði á skíði sam- hliða og studdi mig við æfingar á Egilsstöðum.“ Hvaða árangri gerirðu þér vonir um að ná á vetrarólympíu- leikunum í Vancouver sem hefjast 12. mars? „Það er erfitt að segja,“ segir Erna. „Eigum við ekki að segja að það sé mikilvægast að taka þátt. Ég er fyrsti kepp- andinn sem tekur þátt í vetrar- ólympíuleikum fatlaðra fyrir hönd Íslands og að sjálfsögðu ætla ég að gera mitt besta og vera landi og þjóð til sóma. Þetta er búið að vera mikið ævintýri. Hér í Winter Park eru keppendur frá ýmsum löndum og æfingar verið langar og strangar. Nú er ég í 18. sæti heimslistans í svigi og stór- svigi og auðvitað vil ég gera betur á vetrarólympíuleikunum.“ Erna segir að það sé Íþrótta- samband fatlaðra sem sendi hana á leikana en það og Vetraríþrótta- miðstöð Íslands hafa haft mikið og gott samstarf sín á milli og við Challenge Aspen í Colorado og NDCD á Winter Park í Color- ado. „Þetta samstarf hefur meðal annars gert mér kleift að stunda æfingar erlendis.“ Telurðu að þátttaka þín muni hvetja aðra með skerðingu til þess að stunda skíðaíþróttina? Það er ósk mín að það muni hvetja þá til þess. Skíðaíþróttin hefur veitt mér rosalega mikið frelsi og er frábær afþreying. Ég hélt að ég gæti þetta aldrei. Nú tel ég að það sé bara örlítil trú á sjálf- an sig, traust og geta sem þurfi til. Næsta námskeið sem nokkrir af ofangreindum samstarfsaðil- um ætla að halda verður í Hlíðar- fjalli 12. til 14. febrúar næstkom- andi. Ég hvet alla eindregið til að prófa,“ segir Ólympíufarinn Erna Friðriksdóttir. unnur@frettabladid.is Skíðaíþróttin veitti ólympíufaranum frelsi Erna Friðriksdóttir er fyrsti Íslendingurinn sem tekur þátt í vetrarólympíuleikum fatlaðra en hún keppir í alpagreinum og hefur æft stíft undanfarna mánuði í Winter Park í Colorado-ríki í Bandaríkjunum. Erna í nýja keppnisgallanum við æfingar í Winter Park í Colorado. MYND/ÚR EINKASAFNI Erna tekur þátt í vetrarólympíuleikum fatlaðra í Vancouver. Can-Am Outlander 400HO EFI 1.684.000 kr. Can-Am Outlander 650 MAX XT 2.690.000 kr. Can-Am Outlander 800R MAX LTD 3.290.000 kr. Can-Am Outlander 400 Max XT 1.990.000 kr. REYKJAVÍK Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 Íslenskar að stæður krefj ast krafts, en dingar og liðleika. C an-Am fjórhj ólin hafa ein na kraftmestu v élarnar í hve rjum stærða rflokki, eru hönn uð fyrir erfið ar aðstæður og gerð til að látið sé reyna á þ au. Komdu í Elli ngsen og f inndu krafti nn í Can-Am

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.