Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 48
DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 Mest lesið VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Gestkvæmt hjá Framsókn Það vakti athygli vegfarenda á Hverfisgötu í gær þegar Geir H. Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, sást ganga inn í höfuðstöðvar Framsóknarflokks- ins ásamt Ingu Jónu Þórðardóttur, eiginkonu sinni. Pólitísk sinnaskipti voru þó ekki í loftinu, því þangað lögðu þau hjón leið sína, líkt og fjölmargir aðrir, til að skrifa í minningarbók sem þar liggur frammi um Steingrím Hermanns- son, fyrrverandi for- sætisráðherra. Útför Steingríms verður gerð frá Dómkirkj- unni klukkan 14 í dag. Gísli og Gyllenhaal Gísla Erni Garðarssyni brá stuttlega fyrir í auglýsingu kvikmyndarinnar Prince Of Persia: Sand of Time sem sýnd var á besta tíma í auglýs- ingahléi Ofurskálarinnar en það er úrslitaleikurinn í ruðningsdeild Bandaríkjanna, NFL. Leikurinn er einn allra stærsti sjón- varpsviðburðurinn í Bandaríkjunum og fékk Gísli meira að segja að fara með eina setningu í auglýsingunni en stórleikarar á borð við Ben Kingsley og Alfred Molina sáust ekki. - fgg ½-vitatorg Fram hefur komið í fréttum að Pétur Guðmundsson, stjórnar- formaður Eyktar og Höfðatorgs, sé á móti því að breyta nafni Höfðatúns í Katrínartún líkt og skipulagsráð Reykjavíkur hefur lagt til. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, hefur sagt koma til greina að skipta götunni í tvennt. Sjómenn henda gaman að öllu og vilja breyta nafni Höfðatorgs vegna þess að það skyggi á ljós innsiglingarvita Reykjavíkurhafnar á Stýrimannaskólanum. Þeir segjast ýmist kalla húsið hálfvitann (skrifa það ½-vitann) eða vanvitann vegna þessa. Kannski hafa þeir nokkuð til síns máls. www.isafold. is Sími 595 0300 Reynsla132árí ÞAU FLUGU TIL SEATTLE MEÐ ICELANDAIR Árni Þorvaldsson, Björgvin Björgvinsson, Íris Guðmundsdóttir og Stefán Jón Sigurgeirsson keppa í alpagreinum á vetrarólympíuleikunum sem hefjast í Vancouver á föstudag, 12. febrúar. Þau flugu í gær með Icelandair til Seattle en þaðan er örstutt að ferðast til Vancouver. Við hjá Icelandair erum stolt af að styðja íslenskt afreksfólk til dáða og óskum skíðaköppunum góðs gengis í hörkubaráttu á heimsmælikvarða. ÁFRAM ÍSLAND! VIÐ STYÐJUM ÍSLENSKT AFREKSFÓLK Á ÓLYMPÍULEIKUNUM SEATTLE MINNEAPOLIS / ST. PAUL HALIFAXBOSTONNEW YORK JFK TORONTO ORLANDO SANFORD ÍSLAND REYKJAVÍK HELSINKI ÞRÁNDHEIMUR STOKKHÓLMUR OSLÓ BERGEN STAVANGER KAUPMANNAHÖFN BERLÍN FRANKFURT AMSTERDAM MÜNCHEN DÜSSELDORF MÍLANÓ PARÍS BARCELONA MADRID MANCHESTER LONDON BRUSSEL GLASGOW Fréttablaðið er með 212% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í nóvember 2009 – janúar 2010. Allt sem þú þarft... MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 73,8% 23,7% 1 Enn leitað að Sunnubúðarræningjanum 2 Fannst meðvitundarlaus 3 Brotist inn í 23 bíla Orkuveitunnar 4 87 þúsund árásir með bjórglösum árlega 5 Leiðindaskjóða fékk á kjaftinn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.