Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 2
2 9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR Líf, verður borgin þá lífvæn- leg? „Ja, vonandi gengur hún í endurnýj- un lífdaga.“ Líf Magneudóttir hreppti þriðja sætið í forvali Vinstri grænna í Reykjavík um helgina. DÚBAÍ, AP Ferðamenn í Dúbaí hafa orðið fyrir vonbrigðum þegar þeir hyggjast heimsækja hæstu byggingu heims, sem opnuð var með pomp og pragt fyrir rúmum mánuði. Útsýnispallurinn hefur verið lokaður síðan á sunnudag og sömu sögu er að segja um lyft- urnar sem flytja fólk þangað upp. Skýringin er sögð vera sú að rafmagnsbúnaði sé ábótavant, en skortur á upplýsingum hefur vakið vangaveltur um hvort fleiri vistarverur stórhýsisins, sem enn stendur að mestu tómt, kunni að vera lokaðar. - gb Vandræðagangur í Dúbaí: Hæsta bygging heims lokuð AÐ MESTU TÓM BYGGING Stórhýsið í Dúbaí er ekki opið ferðamönnum. NORDICPHOTOS/AFP FJÁRMÁL Árni Páll Árnason félags- málaráðherra hyggst beita sér fyrir lagasetningu sem kemur böndum á starfsemi fyrirtækja sem veita smálán. Hann segir lán- veitingar til ungmenna með mörg þúsund prósenta vöxtum siðlausa sjóræningjastarfsemi. Frá þessu var sagt í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Árni Páll segir að því miður séu smálánin á okurvöxtum, sem fyrirtæki eins og Kredia hafa verið að veita, lögleg atvinnustarf- semi en það sé hins vegar mikil- vægur prófsteinn fyrir samfélag Íslendinga að taka fast á henni og koma böndum yfir hana. Ráðherr- ann hyggst beita sér fyrir laga- setningu í þá veru. - þþ Árni Páll Árnason: Smálán siðlaus okurstarfsemi ÁRNI PÁLL ÁRNASON Hyggst beita sér gegn smálánastarfsemi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON EVRÓPUMÁL Stofnfundur nýrra samtaka Evrópusinnaðra sjálf- stæðismanna verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu á föstudag. Samtökin bera nafnið Sjálfstæðir Evrópumenn. Á meðal þeirra sem unnið hafa að stofnun samtakanna er Bene- dikt Jóhannesson ritstjóri. Hann segir að nokkrir tugir manna hafi komið að undirbúningsvinnunni. Meðal þeirra eru Jónas Haralz hagfræðingur, Þorsteinn Páls- son, fyrrverandi forsætisráð- herra, og Ragnheiður Ríkharðs- dóttir alþingismaður. Benedikt segir að markmiðið með stofnun samtakanna sé að vekja upp jákvæða Evrópu - umræðu innan Sjálfstæðis- flokksins. Benedikt telur ekki tímabært að upplýsa hvort fleiri sitjandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins en Ragnheiður standi að baki samtökunum eða hvort vara- formaðurinn, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sé þar á meðal. „Hún veit hins vegar af þessu“, segir Benedikt. - shá Hópur sjálfstæðismanna stofnar samtökin Sjálfstæðir Evrópumenn: Stofna samtök Evrópusinna BENEDIKT JÓHANNESSON ÞORSTEINN PÁLSSON JÓNAS HARALZ RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR HEILBRIGÐISMÁL „Auðvitað eru það vonbrigði að þeir skuli ekki finna aðrar leiðir til að fást við sinn niðurskurð,“ segir Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, um þá ákvörðun SÁÁ að loka göngudeild samtakanna á Akureyri í vor. Hermann segir að SÁÁ sé vissulega að skera niður á fleiri stöðum en lokun göngudeildarinnar bitni harkalega á fólki á Akureyri. „Fyrst og fremst er þetta vont út af þeim íbúum sem hafa fengið þessa þjónustu að hún skuli ekki vera í boði lengur. Ég vona að menn leiti allra leiða til að koma í veg fyrir að þetta þyrfti að verða,“ segir bæjarstjórinn. Að sögn Hermanns hefur Akureyrarbær styrkt starfsemi SÁÁ meðal annars með fjárframlögum. Nú eigi að spara fimmtán milljónir króna með lokun göngudeildarinnar. „Við munum að sjálf- sögðu ræða við SÁÁ en það er samt alveg ljóst að við getum ekki annast þetta verkefni fyrir þá. Þetta er miklu stærri biti en svo að við getum nokkurn tíma tekið við þessu,“ segir Hermann. Bæjarstjórinn sér fyrir aukið álag á félagsþjón- ustu bæjarins eftir lokunina hjá SÁÁ. „Þeir sem fá aðstoð í gegnum viðtöl hjá SÁÁ munu væntan- lega leita eftir sambærilegum stuðningi hjá félagsþjónustunni,“ bendir hann á. - gar Bæjarstjóri Akureyrar segir bæinn ekki geta hindrað að SÁÁ loki göngudeild: SÁÁ er of stór biti fyrir okkur HERMANN JÓN TÓMASSON Bæjarstjórinn á Akureyri sér fyrir sér aukna aðsókn að félagsþjónustu bæjarins eftir lokun göngudeildar SÁÁ. MYND/KK BANDARÍKIN, AP Læknirinn Con- rad Murray var í gær ákærð- ur fyrir manndráp af gáleysi vegna andláts poppstjörnunnar Michaels Jackson. Hann er sagður hafa sýnt gáleysi þegar hann gaf söngv- aranum svæfingarlyf í æð að kvöldi 24. júní til þess að tryggja honum nætursvefn, eins og hann hafði reyndar gert oft áður. Morguninn eftir tókst Murray ekki að vekja Jackson. Lögmenn Murrays segja hann lýsa yfir sakleysi sínu og þeir ætli að halda uppi harðri mál- svörn fyrir hann. - gb Læknirinn Conrad Murray: Ákærður vegna dauða Jacksons Herforingi ákærður Kanadíski ofurstinn Russell Williams, sem er yfirmaður flotaherstöðvarinnar í Trenton í Ontario, var handtekinn á sunnudag og hefur verið ákærður fyrir að myrða tvær konur og nauðga tveimur öðrum. KANADA Lík í lendingarbúnaði Lík fannst í lendingarbúnaði banda- rískrar farþegaþotu eftir að hún lenti í Tókíó í Japan. Vélin kom frá New York, en ekki hafði tekist að bera kennsl á líkið í gær. JAPAN Stríðsglæpaákæru vísað frá Alþjóðlegi sakadómstóllinn í Haag vísuðu á bug ákærum á hendur Bahar Idriss Abu Garda, uppreisnarmanni í Darfúrhéraði í Súdan, sem hafði verið sakaður um að hafa skipulagt og tekið þátt í árás sem varð tólf alþjóðlegum friðargæsluliðum að bana árið 2007. HOLLAND STJÓRNMÁL Stuðningsmenn fram- bjóðenda í forvali VG fyrir borgar- stjórnarkosningarnar, meðal ann- ars Sóleyjar Tómasdóttur, buðust „ítrekað og sístematískt“ til að koma með kjörseðla heim til kjós- enda og skila þeim svo fyrir þá í forvali VG, sem lauk á laugardag. Formaður kjörstjórnar sagði hins vegar við son Þorleifs Gunnlaugs- sonar, nokkru fyrir kosningarnar, að slíkt væri óleyfilegt. Svo segir Þorleifur Gunnlaugs- son borgarfulltrúi, sem kærði þessa aðferð til kjörstjórnar VG í Reykjavík á kjördag og ítrekaði síðast í gær. Þorleifur vill að utan- kjörfundaratkvæði verði dæmd ógild og upplýst um hver raunveru- legur atkvæðafjöldi var. Þorleifur bendir á að það hefði getað haft áhrif á kosninguna ef hann hefði beitt sömu meðulum, en einn stuðningsmaður frambjóð- anda í forvalinu hafi boðist til að fylla út seðil fyrir mann í Svíþjóð, og koma til skila. Kjörstjórn svaraði Þorleifi í gær og segir að ekkert bendi til þess að reglur póstatkvæðagreiðslu hafi verið brotnar. Hún hafnar kröfum hans. Formaður kjörstjórnar, Stef- án Pálsson, segir að það sé vissu- lega óleyfilegt að fylla út atkvæði fyrir aðra, en engin dæmi séu um að slíkt hafi verið gert. Hann við- urkennir að hafa sagt í hugsun- arleysi að óleyfilegt væri að fara heim til kjósenda og skila atkvæða- seðlinum fyrir þá. „Ég verð þá að biðjast innilegr- ar afsökunar á því ef ég hef vald- ið einhverjum misskilningi,“ segir Stefán. Þetta hafi verið netspjall að nóttu til og hann hafi ekki talið sig vera að svara formlegu erindi sem formaður kjörstjórnar: „Þetta er ekki brot. Reglurnar eru mjög opnar, það er vandinn.“ Í kæru Þorleifs býðst hann til að nafngreina brotlegan stuðnings- mann Sóleyjar. Einnig talar hann um kennara við Háskóla Íslands, sem hafi farið heim til nemanda með atkvæðaseðil. Blaðið hefur fengið staðfest að umræddur kenn- ari er Silja Bára Ómars- dóttir, en hún vildi ekki tjá sig um málið í gær, eða um hvort þetta samrým- ist reglum Háskólans. Spurður hvort kjör- stjórnin hafi rannsakað meint brot, segir Stef- án að farið hafi verið yfir öll utan- kjörfund- arblöð og undir- skriftir. En útilokað sé að leita af sér allan grun. Ekki hafi verið haft sam- band við meintan brotlegan stuðn- ingsmann, en Stefán hafi upplýs- ingar um að viðkomandi gangist ekki við brotinu. Þorleifur Gunnlaugsson segir það skaðlegt fyrir flokkinn, ef litið er framhjá kosningasvindli. Málið snúist um heiðarleika í stjórnmál- um. Hann íhugar nú næstu skref sín í málinu. klemens@frettabladid.is Telur litið framhjá kosningasvindli Stuðningsmenn Sóleyjar Tómasdóttur beittu aðferðum í forvali VG sem öðrum frambjóðanda var sagt að væru óleyfilegar. Formaður kjörstjórnar biðst afsök- unar á því. Þorleifur Gunnlaugsson segir þetta vera kosningasvindl. FRAMBJÓÐENDUR OG FORMAÐUR KJÖRSTJÓRNAR Hart var barist í forvali VG í Reykjavík á laugardaginn. Sóley Tómasdóttir náði fyrsta sætinu af Þorleifi Gunnlaugssyni. Það munaði um 40 atkvæðum. Stefán Pálsson er formaður kjörstjórnar. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.