Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 36
BAKÞANKAR Önnu Margrétar Björnsson 20 9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Settu nú sælgætishálsfest- ina aftur á sinn stað. Ekki fullur! Jæja, ég sá þig ganga áfram í innkeyrslunni! Óó Nei sko, óó, hvílíkur léttir. hvað er að sjá? Hann var eins og greifingja- hundur með fjórar litlar lappir. Ég vil ekki heyra um þetta! Eins og greifingjahundur með fjórar litlar lappir! Ég get svo svarið fyrir það. Í síðustu viku leit minn út eins og einn af Stubbunum sem er með þennan hlut á höfðinu. Þú ættir að taka mynd af þínum. Hahahaha! Ég veit að þú tókst mynd af þínum. Að sjálfsögðu gerði ég það! Þetta var Tinkie Winkie! Aumingja ég. Aumingja þú? Þú ert búinn að vera mánuð í sumarfríi, þú ert ekki með nein mynt- körfulán og þarft ekki að borga af bíl og hefur í raun enga ábyrgð eins og fullorðna fólkið hefur. Þetta er rétt hjá þér! Aumingja þú. Mér þykir fyrir því, en svarið er nei. Það er engin glóra í því að kaupa hluti af því að mann langar í þá. Það er samt miklu skyn- samlegra en að kaupa hluti sem mann langar ekkert í. En mig langar í þetta! LÍKAMAR karls og konu byrja eins hjá fóstri og eru ekkert svo gersam- lega frábrugðnir eftir allt saman. Þær endingargóðu staðhæfingar sem gilda enn um kynin verða því enn undarlegri þegar þessi staðreynd er rifjuð upp. Nú hef ég ætíð talið mig „kvenlega“ konu ef einhver mögulegur mælikvarði er settur á slíkt. Það er að segja, ég er með sítt hár, mála mig og geng í pilsum. En ef ég kaupi tískublað fyrir konur eins og mig er það alltaf uppfullt af alls kyns rusli sem ég myndi aldrei bjóða nein- um upp á að lesa. Gömul og gróin alþjóðleg tímarit eru enn að birta greinar sem fjalla um hvernig maður eigi að fullnægja karlmanni á allan hátt, hvers vegna karl- menn eigi erfitt með að bindast, hvers vegna karlmenn haldi framhjá og hvernig maður eigi að halda í karlmann þegar maður er nú einu sinni búinn að ná í hann. HVAÐA kjaftæði er þetta eiginlega? Mér finnst þá „karla“-tímaritin miklu skemmtilegri því það virð- ist að karlar hafi mun víðara áhugasvið en við konurnar! Sú markaðsvæðing sem snýr að okkur mýkra kyninu hefur farið í taug- arnar á mér alveg síðan að ég kastaði bleikum smáhestum úr plasti í haug með aflimuðum Barbie-dúkkum í æsku. Ég hata þessar skelfilegu sjálfshjálparbæk- ur skrifaðar fyrir ungar konur og fylgja í kjölfarið á bók eftir snilling sem ákvað einu sinni að konur væru frá Venus og karlmenn frá Mars og við gætum því engan veginn skilið hvort annað. VERSTA bók sem ég hef nokkurn tímann lesið naut mikilla vinsælda og heitir Hann er ekki nógu skotinn í þér. Þar er konum í alvörunni ráðlagt að hringja ekki í karlmann í þrjá daga eftir deit. Hvaða góða samband karls og konu gæti mögulega verið byggt á slíkri vitleysu? Ég verð að játa að hlutir sem eru mark- aðssettir fyrir konur fara bara gersam- lega fyrir ofan garð og neðan hjá mér. Ég er ekki ein af þeim konum sem vildu að þær lifðu í Sex and The City-þætti þar sem lífið einkennist af sushi og hvítvíni með vinkonum í hádeginu og karlmenn eru annaðhvort hjásvæfur eða geimver- ur. Mér kom þetta allt til hugar þegar sjö ára sonur minn ákvað að hann gæti ekki leikið lengur við bestu vinkonu sína (en þau deila öllum mögulegum áhugasvið- um) vegna þess að honum var bent á af skólafélögunum að hún væri jú stelpa. Kannski er ég þá strákur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.