Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 42
26 9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabla- Subway-bikar karla Grindavík-ÍR 90-76 (50-41) Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 29, Ómar Örn Sævarsson 12, Arnar Freyr Jónsson 10, Ólafur Ólafsson 10, Darrell Flake 10, Guðlaugur Eyjólfsson 9, Þorleifur Ólafsson 8, Björn Steinar Brynjólfsson 3. Stig ÍR: Nemanja Sovic 28, Michael Jefferson 20, Kristinn Jónasson 10, Ásgeir Örn Hlöðversson 8, Eiríkur Önundarson 5, Ólafur Þórisson 3, Steinar Arason 2, Björgvin Jónsson 2. Grindavík mætir Snæfelli í bikaúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni 20. febrúar næstkomandi. Iceland Express karla KR-Njarðvík 89-77 (44-50) Stig KR: Brynjar Þór Björnsson 33, Tommy John son 22, Fannar Ólafsson 10 (12 fráköst), Pavel Ermolinski 10 (9 fráköst, 8 stoðsendingar), Finnur Atli Magnússon 6, Darri Hilmarsson 4, Semaj Inge 2 (9 stoðsendingar), Jón Orri Kristjánsson 2. Stig Njarðvíkur: Jóhann Árni Ólafsson 19, Nick Bradford 16 (8 stoðs.), Magnús Þór Gunnarsson 16, Friðrik Stefánsson 8, Páll Kristinsson 8, Egill Jónasson 6, Hjörtur Hrafn Einarsson 4. STAÐA EFSTU LIÐA Í DEILDINNI KR 16 13 3 1495-1294 26 Keflavík 15 11 4 1363-1186 22 Snæfell 15 11 4 1416-1215 22 Stjarnan 15 11 4 1316-1234 22 Njarðvík 16 11 5 1406-1234 22 Grindavík 15 10 5 1415-1227 20 ÚRSLIT Í GÆR VETRARÓLYMPÍULEIKAR Íslensku ólympíufararnir á vetrarleikun- um í Vancouver voru formlega kvaddir í Kringlunni í gær um leið og sýningin „Innganga“ á fyrstu hæð Kringlunnar var sett en á henni verður sýndur inn- göngufatnaður íslenskra ólympíu- fara fyrr og nú. Ásgeir Sverrisson, skíðafor- kólfur og framkvæmdastjóri Tæknivara, hét um helgina millj- ón á íslensku keppendurna á vetrarólympíuleikunum takist einhverjum þeirra að bæta besta árangur íslensks keppenda á vetrarólympíuleikum. Steinunn Sæmundsdóttir á besta árangur Íslendings á vetrarleikunum en hún varð í 16. sæti af 43 keppendum í svigi á leikunum í Innsbruck árið 1976. Eysteinn Þórðarson varð í 17. sæti í svigi í Squaw Valley árið 1960. Nú er að sjá hvernig geng- ur hjá þeim Stefáni Jóni Sigur- geirssyni, Árna Þorvaldssyni, Björgvini Björgvinssyni og Írisi Guðmundsdóttur í Vancouver og hvort þau geti krækt í milljónar styrk fyrir Skíðasambandið. - óój Keppendur Íslands á ÓL: Milljón fyrir metárangur KVÖDDU Í GÆR Íris Guðmundsdóttir og aðrir í íslenska ólympíuhópnum voru formlega kvödd í Kringlunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI > Logi að leika vel í Frakklandi Körfuboltamaðurinn Logi Gunnarsson hefur staðið sig vel með franska C-deildarliðinu St. Etienne að undanförnu. Logi er búinn að vinna sér fast sæti í byrjunarliðinu með því að skora 15,2 stig og gefa 3,4 stoðsendingar að meðaltali í síðustu fimm leikjum liðsins. Logi fékk ekki mörg tækifæri til að byrja með eftir að hafa meiðst á undirbúningstímabilinu en nú er hann kominn á fulla ferð og farinn að hjálpa sínu liði upp stigatöfluna. Logi skoraði 18 stig og hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum í sigri á Vosges um helgina. KÖRFUBOLTI „Þetta var ströggl. við spiluðum ekki vel þótt það hefðu komið góðir kaflar,“ sagði Páll Axel Vilbergsson eftir að Grinda- vík vann sér inn sæti í bikarúr- slitunum með heimasigri á ÍR. Páll var stigahæstur Grindvík- inga í gær með 29 stig og skor- aði mikilvæg stig á mikilvægum augnablikum leiksins. „Við misstum dampinn aðeins í lok fyrri hálfleiks. Við vorum með hausinn í rassgatinu og þeir gerðu leik úr þessu en á endanum var þetta tiltölulega öruggt. Þetta var hörkuleikur og þannig eiga bikar- leikir að vera.“ Grindvíkingar voru taldir sigur stranglegri fyrir leik enda á heimavelli og eru tíu stigum fyrir ofan Breiðhyltinga í deildinni. Þeir fóru kröftuglega af stað og fyrstu tíu stigin voru þeirra. Páll Axel Vilbergsson skoraði þriggja stiga körfu rétt fyrir lok fyrsta leikhluta og staðan 21-13 að honum loknum. Gestirnir náðu góðum kafla skömmu fyrir hálf- leik og staðan var 50-41 þegar leik- menn héldu til búningsherbergja. ÍR-ingar héldu svo upptekn- um hætti í þriðja leikhluta og þegar þeir höfðu minnkað forystu Grindvíkinga niður í fjögur stig tók Friðrik Ragnarsson leikhlé til að skerpa á leik sinna manna. Hann var augljóslega ekki sátt- ur. Staðan var 64-60 fyrir síðasta fjórðunginn. Grindvíkingar reyndust hins vegar of stór biti fyrir Breiðhylt- ingana á lokakaflanum og sigur þeirra var aldrei í hættu í síð- asta leikhluta, lokatölur 91-78. Ómar Sævarsson átti góðan leik fyrir Grindvíkinga, skoraði 12 stig og tók 23 fráköst og reyndist sínum fyrrum samherjum erfiður. Nemanja Sovic var stigahæstur hjá ÍR með 28 stig. Áfram halda hrakfarir ÍR- inga en þeim hefur gengið mjög illa upp á síðkastið. Annað er að segja um Grindvíkinga sem eru á beinu brautinni, hafa unnið sterka sigra í deildinni og nú bíður þeirra úrslitaleikur í bikarnum þar sem Snæfell verður mótherjinn. „Það verður áskorun að mæta Snæfelli í þessum úrslitaleik. Ég sá leik þeirra gegn Keflavík þar sem þeir virkuðu mjög ferskir. Mér líst vel á þetta. Við erum nokkuð bratt- ir eftir gott gengi að undanförnu,“ sagði Páll Axel. „Við munum samt ekki mæta í Höllina bara til að skemmta áhorfendum, við ætlum að vinna þetta.“ Gunnar Sverrisson, þjálfari ÍR, sá marga ljósa punkta í leiknum en liðinu hefur gengið illa að und- anförnu. „Fyrir leikinn talaði ég við mína menn og kom þeim í gír- inn með því að minnast á lýsend- urna á Rúv í leik Keflavíkur og Snæfells. Þeir voru alveg búnir að afskrifa þennan leik og töluðu bara um leik KR og Njarðvíkur,“ sagði Gunnar. „Ég var mjög vongóður í þriðja leikhluta. Við höfum lagað varnar- leikinn frá síðustu leikjum rosa- lega. Svo var slæmt að Hreggvið- ur [Magnússon] meiddist strax á fyrstu sekúndu og gat ekki spil- að. En menn stóðu sig rosalega vel. Við vissum að þetta yrði erfitt enda erfiður völlur að heimsækja,“ sagði Gunnar. „Það hafa verið miklar breyting- ar hjá mínu liði, bæði í leikmanna- og þjálfaramálum. Ég er mjög stoltur af frammistöðu manna í kvöld. Þeir sýndu hvernig ÍR á að spila varnarleik.“ elvargeir@frettabladid.is Grindavík í Höllina eftir smá basl Grindavík vann ÍR 91-78 í undanúrslitum Subway-bikarsins í gærkvöldi og komst í bikarúrslitaleikinn í fimmta sinn. Grindavík hafði forystu allan tímann en þurfti að vera á tánum því ÍR-ingar gáfu ekkert eftir. 21 FRÁKAST Ómar Sævarsson var sínum gömlu félögum í ÍR erfiður í undanúrslita- leiknum í gær en hann tók alls 21 frákast í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KR-ingar með Brynjar Þór Björnsson í fararbroddi unnu tólf stiga sigur á Njarðvík, 89-77, í Iceland Express-deild karla í DHL-Höllinni í gær. Njarðvíkingar hafa því tapað fjórum síðustu leikjum sínum í deild og bikar. Eftir miklar sveiflur og jafna stöðu fyrir lokaleikhlutann fóru KR-ingar illa með Njarðvíkurliðið í lokaleikhlutanum sem þeir unnu 19-7. Brynjar Þór skoraði 33 stig og skaut KR-liðið í gang í báðum hálfleikjum eftir að gestirnir úr Njarðvík höfðu byrjað hálfleikina vel. Njarðvík komst í 11-6 og 55-44 en í bæði skiptin svaraði Brynjar með þristum og fjögurra stiga sókn. „Ég hitti vel í kvöld sem betur fer og það var ekki verra að gera það í sjónvarpsleik,” sagði Brynjar Þór Björnsson við Guðjón Guðmundsson í útsendingu Stöðvar 2 Sport í gær. „Þetta er besti leikurinn minn í vetur og hann kom ekki á slæmum tíma,” sagði Brynjar sem hitti úr 10 af 14 skotum sínum í leiknum, þar af 7 af 11 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. KR var búið að tapa þremur leikjum fyrir Njarðvík á tíma- bilinu en nú náðu Íslandsmeistararnir að sýna mátt sinn og megin. „Njarðvík er með gríðarlega sterkt lið og þeir verða sterkir þegar Bradford kemst betur inn í þetta,” segir Brynjar og hann talaði um mikilvægi sigursins fyrir liðið enda toppsætið að veði. „Við ætluðum að halda okkur á toppnum. Við spiluðu ógeðslega illa á fimmtudaginn og það var flott að koma til baka og vinna Njarð- vík,” sagði Brynjar en Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkur, var heldur fámáll við Guðjón Guðmundsson eftir leik. Njarðvíkingar hafa nú tapað fjórum leikjum í röð og það er ljóst að það bíður Sigurðar erfitt verk að reyna að koma liði sínu aftur í gang. Pavel Ermolinski var í byrjunarliði KR í gær í stað Semaj Inge og gældi Pavel við þrennuna með 10 stigum, 9 fráköstum og 8 stoðsendingum. Inge kom á móti með mikinn kraft inn af bekknum. Hann fékk mikið hrós frá fyrirliðanum Fannari Ólafssyni í leikslok sem taldi hann hafa verið manninn á bak við sigurinn þó svo að hann hafi ekki skorað mikið en Semaj var með 2 stig og 9 stoðsendingar í gær. BRYNJAR ÞÓR BJÖRNSSON: SKORAÐI 33 STIG Í TÓLF STIGA SIGRI Á NJARÐVÍK Í DHL-HÖLLINNI Í GÆR Ekki verra að hitta vel í sjónvarpsleik HANDBOLTI Björgvin Þór Hólm- geirsson tryggði Haukum 25- 24 sigur á FH í æsispennandi Hafnarfjarðarslag í Kaplakrika í gærkvöldi. FH var lengstum með forustuna en Íslandsmeistararn- ir voru eins og áður í vetur með sterkari taugar í lokin. Slagurinn um Hafnarfjörð fór fram í gær fyrir fullu húsi í Kapla- krika. Liðin voru samstiga nán- ast allan leikinn en heimamenn í FH leiddu þó leikinn mestmegn- is af leiknum. Hauka-liðið komst fyrst yfir eftir fjörutíu mínútna leik og svo fylgdust liðin að allt fram á lokastundu. Pálmar Pét- ursson var frábær í markinu hjá FH-ingum og varði tuttugu og tvö skot. Lítið gekk upp hjá félaga hans FH-ingnum og landsliðs- manninum Ólafi Guðmundssyni í gær en hann lét lítið fyrir sér fara og skoraði aðeins fjögur mörk úr ellefu skotum. „Frábær leikur og tvö jöfn lið en því miður dettur þetta þeim megin enn og aftur. Það var eng- inn munur á liðunum. Liðið hjá okkur lítur vel út og við erum að bæta okkur og eigum eftir að bæta okkur meira. Ég er auðvitað hund- fúll að hafa tapað en samt sem áður ánægður með margt í okkar leik,“ sagði Einar Helgi Einarsson, þjálfari FH, svekktur í leikslok. Björgvin Þór Hólmgeirsson var allt í öllu hjá Hauka-liðinu og átti góðan leik og var marka- hæstur í liði Hauka með níu mörk. Hann dró lið sitt áfram og lét vaða óhræddur á markið. Leikur liðsins varð svo betri eftir því sem leið á leikinn og vörnin góð hjá gestunum. Það var svo Björgvin Þór Hólmgeirsson sem tryggði Haukum sigurinn á loka- sekúndu leiksins með glæsilegu skoti. „Björgvin var betri en eng- inn í dag. Hann var frábær og skoraði mörg mikilvæg mörk,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. „Þetta var hörkuleikur, við gerðum reyndar mörg mistök og vorum lengi í gang og sóknarlega að klikka alltof mikið. Ég var ánægður að við sýndum styrk og héldum einu marki í hálfleik. Í seinni hálfleik fannst mér við svo hafa frumkvæðið og stóð- um vel varnarlega,“ sagði Aron Kristjánsson brosmildur. Áhorfendur fengu skemmtun fyrir peninginn eins og alltaf þegar þessi lið mætast. Þessar viðureignir eru ávallt sérstakar og hápunktur vetrarins í Hafnar- firði og það varð engin breyting þar á í gær. - rog Íslandsmeistarar Hauka unnu 25-24 sigur á nágrönnum sínum í FH í æsispennandi Hafnarfjarðarslag í gær: Björgvin Þór tryggði Haukum sigurinn ÞJÁLFARINN SÁTTUR Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, fagnar hér sigrinum á FH í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.