Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 9. febrúar 2010 21 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Þriðjudagur 9. febrúar 2010 ➜ Tónleikar 20.00 Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari og Gréta Guðnadóttir fiðluleikari verða með útgáfutónleika í Salnum við Hamraborg í Kópavogi þar sem þær flytja verk eftir Helga Pálsson og Beethoven. 21.00 Elíza Newman heldur útgáfu- tónleika á Café Rósenberg við Klappar- stíg. Á tónleikunum koma einnig fram Pascal Pinon og Andvari. ➜ Fundir 10.30 Guðrún Helga Sigurðardótt- ir blaða- og leiðsögumaður segir frá ferðalagi sínu um Kákasus-löndin Georgíu, Armeníu, Aserbaídsjan og Nagorno-Karabakh. Fundurinn fer fram hjá Hafnarfjarðardeild Rauða krossins við Fjarðargötu í Hafnarfirði,(milli Fjarð- arins og Domino‘s). Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. 15.00 Félag um foreldrajafnrétti heldur ráðstefnu á Hótel Loftleiðum við Reykjavíkurflugvöll. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar á www.foreldrajafnretti.is. ➜ Kvikmyndir 20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir kvikmynd Lárus Ýmis Óskarssonar Den frusna leoparden (1986). Sýning- in fer fram í Bæjarbíói við Strandgötu í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar á www.kvikmyndasafn.is. ➜ Uppákomur 21.00 Listvinafélagið Sultan Eld- móður stendur fyrir dagskrá á Bakkus bar við Tryggvagötu 22. Meðal þeirra sem koma fram eru Friðrik Grétarsson kvikmyndagerðarmaður, Ragnhildur Jóhanns listakona og Maybe Next Time. Allir velkomnir. ➜ Fyrirlestrar 12.00 Þórdís Elva Þorvaldsdóttir flytur erindi um sálfræðimat brota- þola í sakamálum. Fyrirlesturinn fer fram hjá Háskól- anum á Akureyri í Sólborg við Norð- urslóð (L 201). 20.00 Sigurjón Baldur Hafsteins- son flytur erindið „Þú gerir mér ekki þá skömm! – Af fyndni Hins íslenzka reðasafns“. Fyrirlesturinn fer fram hjá ReykjavíkurAkademíunni í JL-húsinu við Hringbraut. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Spennusaga Stefáns Mána, Skip- ið, fær þrjár stjörnur í franska dagblaðinu Telerama. Gagnrýn- andi blaðsins, Martine Laval, fer fögrum orðum um „Noir Océan“ og dregur þar upp líkindi við sjálfan Wagner. Hún segir sög- una vera af næsta biblískri stærð og lofar höfundinn fyrir tök hans á öfgafullum andstæð- um góðs og ills, ástar og haturs. Blaðið Telerama er þekkt fyrir sparsemi í stjörnugjöfum sínum og þykir vel af sér vikið að fá þar þrjár stjörnur. Tvær vikur eru síðan bókin kom út í Frakk- landi og er hún sú fyrsta frá Stefáni Mána sem kemur þar út. Skipið hefur áður fengið góða dóma bæði í Danmörku og Þýskalandi. Góðir dómar í Frakklandi STEFÁN MÁNI Spennusaga Stefáns Mána, Skipið, fær þrjár stjörnur í franska dagblaðinu Telerama. Aukning á sölu tónlistar Þeir á Tónlist.is segja að lög- legt niðurhal á tónlist hafi aukist til muna á Íslandi. Þar hefur salan aldrei verið meiri en nú í byrjun ársins. Salan var 120 prósentum meiri nú í janúar en í fyrra. Sé sala síðustu þriggja ára skoðuð er aukningin um 250 prósent. Margar ástæður liggja að baki aukningunni, meðal annars sú að lögin eru nú seld án læsingar. Um 70 prósent af seldum lögum eru íslensk. Það er athyglisvert því aðeins um eitt prósent af um fjórum milljónum laga á Tónlist.is eru íslensk. Seint á síðasta ári kom út fyrsta sólóplata Ingveldar Ýrar Jóns- dóttur. Platan heitir Portrett og hefur að geyma mjög blandaða tónlist. „Hugmyndin var að reyna að gefa sem breiðustu myndina af því sem ég hef fengist við á mínum ferli,“ segir söngkonan. „Þetta er sannkallaður „cross- over“ diskur. Þarna eru bæði lög úr óperum, söngleikjum og nýleg dægurlög eins og „When I Think of Angels“ eftir KK. Eitt lagið er meira að segja alveg nýtt, „Allt- of sárt“ eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson með texta eftir Karl Ágúst Úlfsson. Þorvaldur vann plötuna með mér og tók hana upp.“ Hinar mismunandi stíltegundir kalla á mismunandi söngstíl, óperusöng og áreynslulausari dægurlagasöng. Um undirleik sér Caput Sýrland session ensamble og ræður fjölbreytnin í útsetn- ingunum; hljóðfæraleikurinn fer frá því að vera aðeins eitt píanó í fullskipaða hljómsveit. „Fram undan er að halda áfram að syngja og kenna,“ segir Ing- veldur. Hún fæst meðal ann- ars við kennslu í söngskólan- um Söngstúdíó, sem hún rekur sjálf. „Í mars ætla ég svo að halda útgáfutónleika sem verða með nýstárlegu sniði. Ég ætla að bjóða upp á leikna söngdagskrá – tónleika með leikrænu ívafi.“ - drg Portrett af Ingveldi MISMUNANDI STÍLL Fyrsta sólóplata Ingveldar Ýrar nefnist Portrett.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.