Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 15
Skuldaaðlögun
Skuldaaðlögun er úrræði fyrir þá viðskiptavini
sem eru með skuldsetningu umfram greiðslugetu.
Lækkun niður í 110% af markaðsvirði
Skuldaaðlögun felur í sér að lántaki og Íslands-
banki gera með sér samkomulag um að laga
skuldir og eignir viðskiptavinar að greiðslugetu
hans, að því gefnu að viðkomandi hafi ákveðna
lágmarks greiðslugetu. Úrræðið getur falið í
sér eft irgjöf skulda til samræmis við greiðslugetu.
Skuldir vegna húsnæðis og bifreiða verða færðar
niður í allt að 110% af markaðsvirði og eft ir-
stöðvar annarra skulda felldar niður í lok
samningstíma, standi lántaki við samkomulagið.
Sérsniðnar lausnir
Lausnir eru mismunandi eft ir aðstæðum viðskipta-
vinar, þar sem skuldaaðlögun er lausn sem er
sérsniðin að stöðu hvers og eins einstaklings.
Önnur sértæk úrræði
Viðskiptavinum Íslandsbanka bjóðast einnig
fj ölmörg úrræði vegna tímabundinna aðstæðna
svo sem vegna atvinnumissis eða sölutregðu
eigna. Varðandi frestun greiðslna á húsnæðis-
lánum þá er annars vegar í boði tímabundin
frestun á afborgun höfuðstóls og hins vegar
frestun á bæði afborgunum höfuðstóls og
vaxtagreiðslum í allt að 12 mánuði. Frestun á
greiðslum getur komið til greina hvort sem um er
að ræða íslensk eða erlend húsnæðislán.
Komdu í næsta útibú
Íslandsbanki hvetur þá sem telja sig búa við
skuldir umfram greiðslugetu, til að koma í næsta
útibú og ræða við ráðgjafa um möguleg úrræði.
Nú býðst einstaklingum með erlend og verðtryggð
lán að lækka höfuðstól þeirra.* Við höfuðstóls-
lækkun breytist lánið í íslenskar krónur með
breytilegum óverðtryggðum vöxtum.
Lækkun erlendra lána er að meðaltali 23% en
lækkunin er breytileg eft ir myntum. Höfuðstóll
verðtryggðra lána lækkar u.þ.b. um 5%.
Höfuðstólslækkun
Hér fyrir neðan er sýnt raunverulegt dæmi um
bílasamning sem gerður var um mitt ár 2007 til
84 mánaða. Upprunaleg myntsamsetning var
50% JPY og 50% CHF. Eft ir eru 61 mánaðarleg
greiðsla sem yrðu 97 með hámarkslengingu
lánstíma.
Dæmi um höfuðstólslækkun*
Höfuðstóll 05.02.2010: 5.600.000
Lækkaður höfuðstóll: 4.200.000
Vextir og lánskjör
Afsláttur sem nemur 2,6 prósentustigum er
veittur af vöxtum fyrstu 12 mánuðina. Vextir eru
því 9,5% fyrstu 12 mánuðina m.v. núgildandi
gjaldskrá Íslandsbanka Fjármögnunar. Hægt er að
velja um að halda lánstímanum óbreyttum eða
lengja hann um ¾ af eft irstöðvatíma láns, þó að
hámarki 36 mánuði.
Greiðslujöfnun
Þeim sem vilja lækka mánaðarlega greiðslubyrði
er bent á að kynna sér greiðslujöfnun nánar á
www.islandsbanki.is/fj ármögnun
andsbanka
aklinga
Íslandsbanki hefur tekið frumkvæði meðal íslenskra fj ármála-
fyrirtækja með breiðu úrvali lausna sem sniðnar eru að þörfum
heimilanna. Markmið okkar er að létta byrðar viðskiptavina með
sanngjörnum úrræðum og vandaðri þjónustu.
Íslandsbanki hvetur alla viðskiptavini
til að koma í næsta útibú og ræða við
ráðgjafa um þær lausnir sem bjóðast.
Engin ein lausn hentar öllum.
Við hvetjum viðskiptavini okkar til
að kynna sér málin vandlega og taka
ákvörðun að vel athuguðu máli.
Nánari upplýsingar og ítarleg svör
er að fi nna á www.islandsbanki.is
og í næsta útibúi Íslandsbanka.
* Þegar talað er um lán er bæði átt við bílalán og bílasamninga. Þegar talað er um
höfuðstól er bæði átt við höfuðstól bílalána og samningsviðmið bílasamninga.
Greiða niður
yfi rdráttinn
Yfi rdráttarlán er dýrt lánsform sem ætti aðeins að
nota tímabundið. Íslandsbanki býður viðskipta-
vinum sínum að gera samkomulag um markvissa
niðurgreiðslu á yfi rdrætti á allt að tveimur árum
og lækka vaxtakostnaðinn svo um munar, eða
niður í 10,5% m.v. núverandi vaxtakjör.
Hagstæð sparnaðarleið
Að greiða niður yfi rdráttarlán er meðal
hagstæðustu sparnaðarleiða sem völ er á. Vextir á
yfi rdráttarláni eru hærri en vextir á sparnaðar-
reikningum og því í fl estum tilvikum skynsamlegt
að setja niðurgreiðslu á yfi rdráttarláni í forgang.
Höfuðstólslækkun
bílalána og -samninga