Fréttablaðið - 19.02.2010, Qupperneq 8
8 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
1.Hvaða stórleikari er á ferða-
lagi um Vestfirði þessa dagana?
2. Við hvaða götu stendur
menningarstofnunin Hannes-
arholt?
3. Hvað er Iceland Healthcare,
sem er við Ásbrú í Reykjanes-
bæ?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
SGS krefst...
... þess að öryggi fjölskyldna í
efnahagsvanda sé tryggt. Rétturinn
er fólksins, ekki rukkaranna.
Nánari upplýsingar á www.asi.is
DÚBAÍ, AP Lögreglan í Dúbaí full-
yrðir nú að ísraelska leyniþjónust-
an Mossad hafi skipulagt morðið
á einum af leiðtogum palestínsku
Hamas-hreyfingarinnar á hótel-
herbergi í Dúbaí í síðasta mánuði.
Átján manns hafa nú verið
nefndir og sakaðir um aðild að
morðinu. Tvær konur eru í hópn-
um. Áður hafði lögreglan í Dúbaí
birt nöfn, myndir og vegabréfs-
númer ellefu manna, sem sagðir
voru grunaðir um aðild að morð-
inu.
Alþjóðalögreglan Interpol lýsti
síðan í gær eftir þessum ellefu
mönnum og biður lögreglu um
heim allan að handtaka þá hvar
sem til þeirra næst.
„Rannsóknir okkar hafa leitt í
ljós að Mossad á aðild að morðinu
á al-Mabhouh,“ sagði Dahi Khalfan
Tamim, yfirmaður í lögreglunni í
Dúbaí, við þarlent dagblað.
„Allir þættir málsins benda ein-
dregið til aðildar Mossad,“ sagði
hann.
Hamas-hreyfingin hafði áður
fullyrt að menn á vegum ísra-
elsku leyniþjónustunnar Mossad
hefðu myrt Mahmoud al-Mabhouh.
Ísraelar segja að hann hafi verið
lykilmaður í smygli á vopnum til
Hamas-hreyfingarinnar á Gasa-
svæðinu.
Hinir grunuðu voru með vega-
bréf frá Bretlandi, Írlandi, Frakk-
landi og Þýskalandi. Fullvíst þykir
að vegabréfin séu fölsuð, enda
hefur komið í ljós að í það minnsta
sjö nafnanna eru fengin frá ísra-
elskum ríkisborgurum, sem ekki
er talið að eigi neina aðild að morð-
unum.
Sendiherrar Ísraels í Bretlandi
og á Írlandi voru í gær kallaðir
á fund stjórnvalda í báðum þess-
um löndum, en ísraelsk stjórnvöld
vilja hvorki játa né neita því hvort
leyniþjónustan Hamas hafi staðið
þarna að verki.
Mahmoud al-Mabhouh var 49
ára þegar hann var myrtur á hót-
elherbergi sínu í Dúbaí 19. janúar.
Hann var einn af stofnendum hern-
aðararms Hamas-hreyfingarinn-
ar, sem ber ábyrgð á hundruðum
árása á Ísrael og ísraelska borg-
ara, þar með fjölmörgum sjálfs-
vígssprengjuárásum.
Al-Mabhouh var þó ekki þekkt-
ur meðal Palestínumanna. Hann
hefur búið erlendis undanfarna tvo
áratugi, en er talinn hafa stundað
smygl á flugskeytum til Hamas-
hreyfingarinnar á Gasasvæðinu.
Um þrjú þúsund manns komu
saman í Gasaborg á miðvikudag til
að minnast hans og heita hefndum.
gudsteinn@frettabladi.is
Fullvissa um
aðild Mossad
Lögreglan í Dúbaí segist nú nánast fullviss um aðild
Mossad á morði Palestínumanns á hóteli í síðasta
mánuði. Ellefu manns eru nú eftirlýstir af Interpol.
HEITA HEFNDA Liðsmenn Hamas hengja stóra mynd af al-Mabhouh upp á vegg í
bænum Beit Lahiya á Gasaströnd þegar þúsundir manna komu saman að minnast
hans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGGÆSLA „Þegar skólayfirvöld
grípa til ógnandi og yfirþyrmandi
aðgerða af þessu tagi með aðstoð
lögreglu bitnar það þegar upp er
staðið verst á þeim nemendum
sem ekkert hafa til saka unnið.“
Svo segir í samþykkt stjórn-
ar Heimdallar sem furðar sig á
þeirri mynd sem forvarnastarf í
framhaldsskólum er að taka á sig,
þar sem einn til tveir framhalds-
skólar biðja lögreglu um að gera
allsherjar fíkniefnaleit á nemend-
um á hverju ári.
„Um þúsund nemendur Tækni-
skólans urðu þannig fyrir barð-
inu á þessari nýju forvarnaaðferð
í síðustu viku þegar skólanum
þeirra var fyrirvaralaust læst
um hábjartan dag og lið lögreglu,
tollvarða og hunda gerði leit í
skólanum.“
Telur stjórnin að ef rökstuddur
grunur hafi verið um fíkniefna-
sölu í skólanum hefði vel mátt
bregðast við þeim vanda með sér-
tækum lögregluaðgerðum. - jss
Heimdallur um fíkniefnaleit:
Ógnandi og
yfirþyrmandi
aðgerðir
Sviptur ökurétti ók út af
Rúmlega þrítugur maður hefur verið
ákærður í Héraðsdómi Suðurlands
fyrir að aka, sviptur ökurétti og undir
áhrifum amfetamíns, þar til hann ók
út af í Svínahrauni.
DÓMSTÓLAR
DÓMSMÁL Héraðsdómur hefur
dæmt KR Sport, rekstrarfélag
knattspyrnudeildar KR, til að
greiða þrotabúi Samsonar tæpar
sex milljónir króna sem runnu til
félagsins árið 2007.
Skiptastjóri fór fram á að fá
tæpar ellefu milljónir endurgreidd-
ar, en dómari kemst að þeirri nið-
urstöðu að fimm milljóna króna
greiðsla sem rann á milli félag-
anna hafi verið styrkur og því ætti
ekki að rifta henni.
Forsvarsmenn Samsonar, eigna-
haldsfélags Björgólfs Guðmunds-
sonar, skýrðu afganginn, tvær
greiðslur sem samanlagt námu um
5,9 milljónum, þannig að greiðsl-
urnar hefðu verið lán, sem
ætti að breytast í styrk
þegar knattspyrnulið KR
ynni næsta bikar. Það gerð-
ist í október 2008, þegar KR
varð bikarmeistari.
Á hinn bóginn má
rifta svokölluðum
gjafagerningi ef
gjöfin var afhent á
síðustu sex mánuð-
um fyrir frestdag,
það er þann dag
sem dómara berst
beiðni um greiðslu-
stöðvun, í þessu tilviki
7. október 2008.
Deilan snerist um hvort
féð var afhent sem gjöf í júní 2007,
eða daginn sem KR-ingar urðu
bikarmeistarar, þremur dögum
áður en beiðni barst um greiðslu-
stöðvun Samsonar. Dómari
kemst að þeirri niður-
stöðu að gjöfin hafi ekki
verið reidd af hendi fyrr
en hún breyttist úr láni í
styrk í október 2008, og
því beri að rifta gjörn-
ingnum. - sh
Styrkgreiðslu eignarhaldsfélags Björgólfs Guðmundssonar til KR rift:
KR endurgreiði sex milljónir
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDS-
SON Er mikill velgjörð-
armaður KR og styrkti
félagið oftsinnis.
FRÉTTABLAÐIÐ /E. ÓL
HÚSNÆÐISMÁL Heildarútlán Íbúða-
lánasjóðs í janúar námu 2,1 millj-
arði króna. Þar af voru um 700
milljónir króna vegna almennra
lána og um 1,4 milljarðar vegna
annarra lána.
Heildarútlán sjóðsins stóðu
nánast í stað á milli mánaða. Sam-
setning þeirra hefur þó breyst því
almenn útlán lækkuðu um 50 pró-
sent. Meðalútlán almennra lána
var um 7,4 milljónir í janúar. Það
er tæplega 16 prósenta lækkun frá
fyrra mánuði. Breytilegir vextir
á leiguíbúðalánum voru lækkaðir
í janúar úr 5,40 í 4,90 prósent og
miðast við útreikninga vaxta frá
og með 1. janúar 2010. - kóp
Útlán Íbúðalánasjóðs:
Standa í stað
milli mánaða
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
VEISTU SVARIÐ?