Fréttablaðið - 19.02.2010, Side 18
18 19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
UMRÆÐAN
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson skrifar
um greinaskrif Anne
Sibert
Þegar Íslendingar standa saman geta
þeir leyst nánast hvaða
vanda sem er. Þegar
loksins náðist sam-
staða, alla vega á yfirborðinu,
um hvernig verja ætti hagsmuni
landsins út á við í Icesave-mál-
inu breytti það stöðu landsins til
mikilla muna. Á viðkvæmasta
tímapunkti í sögu málsins tóku
hins vegar nokkrir skjólstæðing-
ar ríkisstjórnarinnar upp á því
að skrifa greinar sem voru um
margt rangar og stórskaðlegar
málstað Íslands.
Anne Sibert, fulltrúi forsætis-
ráðherra í peningastefnunefnd
Seðlabankans, skrifaði grein í
vefritið VoxEU (rödd ESB). Það
rit er eftir því sem næst verður
komist helst lesið af enskumæl-
andi embættismönnum og fræði-
mönnum í Evrópusambands-
löndum. Greinin gekk út á að
sýna fram á (með aðferðum sem
aðrir hagfræðingar hafa hafn-
að) að Ísland væri ekki of lítið til
að borga allar kröfur Breta og
Hollendinga. Síðast lét Sibert til
sín taka (á sama vettvangi) með
grein um að Ísland væri of lítið
til að vera sjálfstætt.
Með setu sinni í peningastefnu-
nefndinni þiggur Anne Sibert
laun fyrir að verja hagsmuni
Íslands. Umfram allt á hún að
gera það með því að verja gengi
krónunnar. Ekkert hefur jafn-nei-
kvæð áhrif á gengi gjaldmiðils og
veruleg aukning skuldsetning-
ar í erlendri mynt. Sama dag og
verið var að reyna að lágmarka
þá skuldsetningu birti Sibert
greinina þar sem því var haldið
fram að Ísland gæti vel greitt alla
kröfuna hvað sem liði lög-
mæti hennar.
Fáum mun detta í hug
að upplegg og tímasetning
greinarinnar geti verið
tilviljun. Hver er annars
tilgangurinn með því að
skrifa grein á vettvangi
enskumælandi embættis-
manna sem gengur þvert
gegn hagsmunum sem
verið er að verja á sama
tíma í einhverjum mik-
ilvægustu samningaviðræður
Íslandssögunnar (eins og grein-
arhöfundi er vel kunnugt)?
Enn verra er þó að margir
munu gera ráð fyrir að þegar full-
trúi forsætisráðherra birtir grein
á þessum tímapunkti í svo við-
kvæmu máli sé hún skrifuð með
vilja og vitund ráðherrans. For-
sætisráðherra sagðist aðspurð-
ur ekki hafa vitað af greininni
og tók jafnframt undir að hún
væri afar óheppileg. Eflaust er
það satt. Það hlýtur hins vegar
að vera áhyggjuefni þegar rík-
isstjórn sem hefur vanrækt að
kynna málstað Íslands út á við í
þessu mikla deilumáli er með fólk
á launum við að skrifa gegn hags-
munum landsins á versta hugsan-
lega tíma.
Þegar seta Sibert í nefndinni
var gagnrýnd í ljósi þessa taldi
hún vegið að málfrelsi sínu.
Það hefur enginn haldið því
fram að Anne Siebert megi ekki
tjá sig um hvað sem er hvar sem
er. Kjósi hún hins vegar að tjá sig
um hluti sem ganga gegn hlut-
verki hennar í peningastefnu-
nefnd Seðlabanka Íslands hentar
augljóslega einhver annar betur í
það starf. Leikmaður sem keypt-
ur væri til knattspyrnuliðs til að
styrkja vörnina kæmist ekki upp
með að sækja hvað eftir annað
á eigið mark og bera við ferða-
frelsi.
Höfundur er alþingismaður og
formaður Framsóknarflokksins.
Sibert
SANDALA DAGAR
HJÁ ECCO
Lir: svart og brúnt
Stærðir: 40 - 47
Coast
Verð áður: 14.995
Nú: 13.495
67644 51052
Lir: hví og svart
Stærðir: 36 - 41
Coast
Verð áður: 14.995
Nú: 13.495
67853 02152
Lir: brúnt og svart
Stærðir: 40 - 47
Offroad Lite
Verð áður: 15.995
Nú: 14.395
67454 51741
Lir: rau, svart, brúnt
Stærðir: 36 - 42
Offroad Lite
Verð áður: 15.995
Nú: 14.395
67453 55183
Lir: svart
Stærðir: 36 - 42
Offroad
Verð áður: 15.995
Nú: 14.395
69533 00201
Lir: svart
Stærðir: 40 - 50
Offroad
Verð áður: 15.995
Nú: 14.395
69534 00201
Við bjóðum 10%
afslátt af völdum
ECCO sandölum
*aðeins þessa helgi
Ecco Kringlunni
553 8050
Steinar Waage
Kringlunni
568 9212
Steinar Waage
Smáralind
551 8519
UMRÆÐAN
Sigmundur Ernir Rún-
arsson skrifar um sið-
ferði og viðskipti
Það er ekki brýnasta verkefni íslenskra
bankastjóra að hámarka
arðsemi til skamms tíma.
Miklu mikilvægara er að
hámarka siðferði til langs tíma.
Þetta blasir við þegar sértæk
skuldaaðlögun fyrirtækja stend-
ur yfir. Þar verður ekki unað við
þá þversögn að fulltrúar helstu
gjaldþrota íslensks viðskiptalífs
njóti forkaupsréttar á glötuðum
eignum sínum. Og hvað segir það
aukinheldur um hrunalærdóminn
að þeir einir geta boðið best sem
tapað hafa mestu?
Nú er það ekki svo að
stjórnmálamenn eigi að
ákveða hvaða einstakl-
ingar mega reka fyr-
irtæki. Aftur á móti er
pólitísk stefnumótun í
þessum efnum afar mikil-
væg – og sömuleiðis eftir-
fylgni þingheims. Skortur
á hvorutveggju er samfé-
laginu háskalegur eins og
nöturleg dæmin sanna.
Illskiljanlegt er að nýir banka-
stjórnendur hampi þeim helst
sem verst hafa leikið íslenskt
viðskiptalíf á síðustu árum. Öllu
verra er að þeir njóti afskrifta og
ívilnana umfram almenning. Það
er eðlileg krafa að athafnamenn,
sem hafa réttarstöðu grunaðra í
bankahruninu, fái ekki óhindrað-
an aðgang að fyrri eignum sínum.
Í reynd ber að taka fyrir það.
Fyrir því hlýtur að vera meiri-
hluti á Alþingi.
Engin ástæða er til að gefa
afslátt af íslensku réttarkerfi
við siðvæðingu viðskiptalífsins.
Sakleysi gildir uns sekt er sönn-
uð. Því má vel vera að flestir þeir
kaupahéðnar sem fremstir fóru í
krosseignakapphlaupinu – og ekki
hafa fengið réttarstöðu grun-
aðra – megi sitja við sama borð
og aðrir landsmenn þegar kemur
að skiptum gæðanna, en þeir
eiga ekki að njóta forkaupsrétt-
ar. Hámörkun fjár má ekki vera
á kostnað hámörkun siðferðis. Og
svo er hitt: Almenn og opin útboð
hljóta hér að vera meginreglan.
Hitt er fullreynt í þröngu, myrk-
vuðu og líkast til mygluðu hand-
vali.
Höfundur er alþingismaður.
Hámark siðferðis
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
SIGMUNDUR ERNIR
RÚNARSSON
UMRÆÐAN
Þórir Garðarsson skrifar um
kjaradeilu
Það er algjörlega óþolandi fyrir okkur sem störfum í ferðaþjón-
ustunni að horfa upp á það hvernig
flugvirkjar misnota verkfallsvopn-
ið þessa dagana. Þeir krefjast 25%
kauphækkunar á línuna, og ef ekki
verður gengið að því stöðvast allt
flug Icelandair á mánudagsmorg-
uninn í heila viku.
Í fyrsta lagi er þessi krafa algjör-
lega úr takti við allt annað í íslensku
samfélagi um þessar mundir. For-
maður samninganefndar þeirra við-
urkennir það meira að segja fúslega
sjálfur í fjölmiðlum í gær. Hann
rökstyður þetta þannig að flug-
virkjar eigi engan þátt í einhverj-
um þjóðarsáttarsamningum og að
þjóðarsáttin sé úr takti við
raunveruleikann! Einmitt.
Þetta er kannski lausnin
á vandamálum Íslendinga
nú: Við hækkum bara laun
okkar allra um 25%, og þá
getum við öll staðið í skilum
með húsnæðislánin okkar
og Icesave! Ekki veit ég í
hvaða takti leiðtogar flug-
virkja eru, en þeir eru ekki
tengdir við raunveruleik-
ann. Auðvitað getur ein stétt ekki
fengið gríðarlega launahækkun án
þess að aðrir vilji fá það sama, og
svo koll af kolli.
Í öðru lagi er það svo, að verkfall
þessa fámenna hóps sem stöðvar
flug Icelandair, hefur mikil áhrif
á fjölda fyrirtækja og einstaklinga
sem hafa ekkert með þessa deilu
að gera. Langflestir erlendir ferða-
menn sem koma til landsins fljúga
hingað með Icelandair og
þeir munu einfaldlega ekki
komast til landsins eða frá
því. Ekki frekar en Íslend-
ingarnir sem eiga bókuð
flug.
Mitt fyrirtæki mun
missa af hundruðum við-
skiptavina í næstu viku og
miklum tekjum og hið sama
gildir um veitingastaði,
hótel og aðra þjónustuaðila
víða um landið þar sem ferðamenn
fara um og eiga viðskipti.
Ég skora á forsvarsmenn flug-
virkja að hætta þessu rugli og ganga
frá samningum sem eru í takti við
raunveruleikann. Og ég skora á Ice-
landair að sýna þessum hópi sann-
girni og forða verkfalli.
Höfundur er sölu- og markaðs-
stjóri Iceland Excursions.
Eiga allir að heimta 25% hækkun?
UMRÆÐAN
Finnur Sveinbjörnsson
skrifar um úrvinnslu-
vanda banka og lífeyr-
issjóða
Við stofnun Arion banka í október 2008 yfirtók
hann fjölda lána til ein-
staklinga og fyrirtækja
frá gamla Kaupþingi. Margir lán-
takar glíma við fjárhagslega erfið-
leika og Arion banki vinnur að því
að finna lausn á vanda sem flestra
fyrirtækja og einstaklinga. Bank-
inn hefur kynnt margháttuð úrræði
fyrir einstaklinga og hafa mál yfir
1.000 heimila þegar verið afgreidd.
Þá hefur bankinn leyst úr vanda
margra smárra og meðalstórra
fyrirtækja á liðnum mánuðum með
fjölbreyttum lausnum í nánu sam-
starfi við eigendur og stjórnendur
þeirra.
Í fyrra setti Arion banki sér verk-
lagsreglur um lausn á skuldavanda
fyrirtækja, til að flýta fyrir úrlausn
mála og tryggja samræmdar og
gagnsæjar aðgerðir. Þá réð stjórn
bankans umboðsmann viðskipta-
vina sem tekur þátt í mótun verk-
lagsreglna, fylgist með úrvinnslu
mála og bregst við ábendingum
viðskiptavina. Eins hefur óháð,
opinber eftirlitsnefnd sem starfar
á grundvelli nýsettra laga um sér-
tæka skuldaaðlögun eftirlit með
þessari vinnu. Í sömu lögum um
sértæka skuldaaðlögum er gerð
krafa um efni verklagsreglna á því
sviði. Því er nú verið að endurskoða
verklagsreglur bankans um lausn á
skuldavanda fyrirtækja í samvinnu
við önnur fjármálafyrirtæki.
Sum af þeim skuldaúrvinnslu-
málum sem Arion banki glímir
við, eins og aðrir íslenskir bank-
ar og lífeyrissjóðir, eru flókin og
mikil verðmæti í húfi fyrir bank-
ann og þjóðarbúið. Í sumum til-
vikum kemur fjöldi innlendra
og erlendra banka við sögu sem
hafa mismunandi hagsmuna að
gæta auk umsvifamikilla
skuldabréfaeigenda eins
og íslenskra lífeyrissjóða.
Stundum eru tryggingar
bankans lélegri en ann-
arra lánveitenda. Bankinn
þarf ávallt að gæta þess að
starfa samkvæmt lögum
og reglugerðum og fylgja
ákvæðum lánasamninga.
Þótt reiði ríki í samfé-
laginu má það ekki tefja
endurreisn íslensks efnahagslífs og
valda því að miklum verðmætum
verði fórnað. Af almennri umræðu
og í þingsölum mætti ætla að bank-
inn geti tekið einhliða ákvarðan-
ir, án tillits til laga og reglna eða
aðstæðna í hverju máli fyrir sig. Sú
stefna bankans að hafa viðskipta-
lega hagsmuni að leiðarljósi, til að
fá sem mest upp í skuldir hefur
verið gagnrýnd. Uppi hafa verið
raddir um að bankinn eigi að ráðast
í endurskipulagningu á rekstri fyr-
irtækja án samvinnu við stjórnend-
ur þeirra. Stjórnendur Arion banka
hafa hins vegar talið það einmitt
siðferðilega skyldu hans að reyna
að heimta sem mest upp í skuldir
og forða enn frekara tjóni en þegar
er orðið. Eins og forsætisráðherra
hefur nefnt er einn mikilvægasti
lærdómurinn af bankahruninu ein-
mitt að bankar eigi að hafa eðlilega
viðskiptalega hagsmuni að leiðar-
ljósi í rekstri sínum.
Arion banki er að taka á erfið-
um málum. Það eiga fleiri eftir
að gera. Fjölmargir lánveitendur,
þ.á m. íslenskir lífeyrissjóðir, munu
á næstunni standa frammi fyrir
erfiðum ákvörðunum. Þar takast á
sjónarmið um hámörkun á endur-
heimtum og hvort semja eigi við til-
tekna einstaklinga. Þau mál munu
hugsanlega snúast um skerðingu
á lífeyrisréttindum landsmanna.
Bankar og lífeyrissjóðir geta ekki
og eiga ekki að taka að sér hlutverk
ákæruvalds og dómstóla. Aðrar
stofnanir hafa það hlutverk.
Höfundur er bankastjóri
Arion banka.
Tekið á erfiðum málum
FINNUR
SVEINBJÖRNSSON
ÞÓRIR
GARÐARSSON