Fréttablaðið - 19.02.2010, Qupperneq 22
19. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR4
Að vekja undrun konu sinnar getur
verið mikil áskorun, sérstaklega
eftir löng sambönd, en slíkt þarf
ekki að vera mikil fyrirhöfn, stórt
í sniðum eða dýrt.
Bókin gleður
Ef konan þín les mikið skaltu kom-
ast að því hvaða bók eða bækur
hana hefur lengi langað að lesa en
ekki komist í að redda sér. Farðu á
bókasafnið og leigðu umrædda bók
áður en konudaginn ber upp. Láttu
renna í bað um morguninn, og
komdu bókinni fyrir á litlu hliðar-
borði ásamt kertaljósum og skildu
eftir falleg skilaboð á bókamerki
(helst um að þú ætlir að sjá til þess
að hún muni hafa næði
til að lesa eins og hún
vilji í dag).
Stund við skjáinn
Skipulegðu bíókvöld
með æðislegum göml-
um, svart-hvítum og
klassískum kvik-
myndum. Poppaðu á
gamla háttinn í potti
(enda er það miklu
betra), keyptu dökkt
súkkulaði og myndir sem
eru vel við hæfi á svona
kvöldi eins og til dæmis
Casablanca eða Gone with
the Wind.
Ástarbréf til elskunnar
Ef konan þín þarf að vinna þennan
dag, sitja yfir námsbókum eða er
önnum kafin einhverra hluta vegna
þannig að þú sérð ekki fram á að
geta útbúið einhvern „dagskrár-
lið“ henni til heiðurs skaltu skrifa
gamaldags, handskrifað ástarbréf
sem þú laumar í nestið hennar,
bækurnar eða veskið þegar hún
sér ekki til.
Bakkelsi í morgunsárið
Ef þú ert á fyrstu vikum tilhuga-
lífsins og þið kærastan ekki á sama
stað aðfaranótt konudags skaltu
baka gott brauð að morgni og birt-
ast óvænt með það
á tröppunum hjá
henni ásamt osti
og marmelaði í
körfu og app-
elsínusafa. Mjög smart og ekki of
væmið á viðkvæmu stigi fyrstu
kynna.
Einfaldleiki í fyrirrúmi
Einföldustu atriði geta verið óskap-
lega notaleg. Þannig er fátt betra
en láta einhvern annan greiða
mjúklega á sér hárið með bursta
og er því ágætis konudagstrix.
Hengdu post-it miða hér og
þar um húsið, á baðherberg-
isspegilinn þar sem stendur að
sjálfsögðu hve falleg hún er, á
eldhússkápinn þar sem þú dásam-
ar matinn hennar og svo framveg-
is. (Ekki setja samt miða á eldhús-
vaskinn til að segja henni að hún
sé góð í uppvaskinu). - jma
Einföld og ódýr rómantík
Konudagurinn er tilvalinn til leggja elju við að reyna að koma konunni sinni á óvart. Verkefnið þarf ekki
að vera dýrt en krefst mun frekar frumleika, sérstaklega þegar pör þykjast geta reiknað hvort annað út.
Á hverfanda hveli kemur við hjörtu
kvenna um allan heim.
AFSKORIN BLÓM gleðja hvort
sem er á konudegi eða öðrum
dögum ársins.
Á laugardagskvöldið geta Akureyringar og gest-
komandi skellt sér á svokallað Milanga, sem er
tangódansiball, í Ketilhúsi en ballið byrjar klukkan tíu
um kvöldið.
„Ballið byrjar klukkan tíu, að argentínskum
hætti, en í Argentínu er byrjað að dansa tang-
óinn seint svo fólk geti fyrst borðað og notið
matarins,“ segir Vigdís Arna Jónsdóttir, sem
skipuleggur tangóballið og verður jafnframt með
tangótíma á laugardeginum og sunnudeginum.
„Við höfum verið með Konudagstangóhátíð þrjú
ár í röð en nú í ár verður ekki hátíð sem slík held-
ur ball og danstímar. Öllum er velkomið að koma
á ballið og þeir sem vilja skella sér í tíma geta
til dæmis kíkt inn á heimasíðuna lifsinsleikur.
net,“ segir Vigdís Arna en líklegt er að æfinga-
kennsla verði klukkan níu, klukkutíma áður
en ballið byrjar.
Áhugasamir um danskennsluna geta
einnig hringt í Vigdísi Örnu í síma 864
3054. „Tangó hefur haslað sér góðan völl
á Íslandi og hér á Akureyri hefur myndast
ágætur kjarni í kringum dansinn.“ - jma
Tangóball að argentínskum
hætti í Ketilhúsinu
MILANGA VERÐUR HALDIÐ Í KETILHÚSINU Á AKUR-
EYRI ANNAÐ KVÖLD.
Notalegt freyðibað við kertaljós og með góða bók við höndina gerir góðan dag enn betri.
Gefðu konunni Maxwell nuddpúða sem þú getur notað sjálfur!
• LÍTILL OG ÞÆGILEGUR
• HÆGT AÐ NOTA Á ALLAN LÍKAMANN
• LOSAR UM VÖÐVABÓLGU OG HARÐSPERRUR
• ENDURNÆRIR HÁLS, AXLIR, BAK OG FÆTUR
• STERKUR OG ENDINGARGÓÐUR
• TVEGGJA ÁRA VERKSMIÐJUÁBYRGÐ
LOGY EHF - B E R J A R I M I 6 - 112 R E Y K J AV Í K - S Í M I 6 61-2 5 8 0 O G 5 8 8 -2 5 8 0
SENDUM Í PÓSTKRÖFU EÐA KEYRUM HEIM Á REYKJAVÍKURSVÆÐI
WWW.LOGY.IS
Opnum kl. 8 á sunnudagsmorgun
Denise
Prjónasettin
Gott verð - lífstíðarábyrgð