Fréttablaðið - 19.02.2010, Side 55
FÖSTUDAGUR 19. febrúar 2010 27
Austurríkismaðurinn Christoph
Waltz, sem sló í gegn sem nasista-
foringi í Inglourious Basterds,
fer með stórt hlutverk í kvik-
myndinni Water for Elephants.
Þar leikur hann geðklofa dýrat-
emjara í fjölleikahúsi, hvorki
meira né minna. Með annað aðal-
hlutverk fer Robert Pattinson
úr Twilight-myndunum. Leikur
hann náunga sem verður ástfang-
inn af eiginkonu Waltz, leikinni
af Reese Witherspoon. Hinn áður
óþekkti Waltz getur valið úr hlut-
verkum um þessar mundir, enda
hefur hann rakað saman verð-
launum fyrir Basterds. Á meðal
annarra væntanlegra mynda
hans eru The Green Hornet og
The Talking Cure.
Waltz leikur
geðklofa
CHRISTOPH WALTZ Austurríski leikarinn
hefur samþykkt að leika í Water For
Elephants.
Alþjóðlega stuttmyndahátíðin
Northern Wave verður haldin í
þriðja sinn í Grundarfirði helg-
ina 3. til 7. mars. Sýndar verða 75
stuttmyndir og tónlistarmynd-
bönd frá tuttugu löndum, þar
á meðal norska myndin Little
Penis. Grundfirðingar munu taka
þátt í hátíðinni, meðal annars
með því að halda fiskisúpukeppni
þar sem sóknarprestur bæjarins,
Aðalsteinn Þorvaldsson, verð-
ur á meðal keppenda. Í dóm-
nefnd hátíðarinnar verða Ragnar
Bragason, Kristín Jóhannesdótt-
ir og Hilmar Örn Hilmarsson.
Klipparinn og leikstjórinn Val-
dís Óskarsdóttir mun einnig sitja
fyrir svörum. Frítt verður á alla
viðburðina. Nánari upplýsingar
má finna á síðunni Northernwa-
vefestival.com.
75 myndir í
Grundarfirði
Beyoncé Knowles telur mikil-
vægt að einkalífi sínu sé hald-
ið fjarri sviðsljósi fjölmiðlanna.
Söngkonan giftist rapparan-
um Jay-Z í leynilegri athöfn
árið 2008 og bæði vilja þau sem
minnst tjá sig um sambandið.
„Ég og Jay höfum alltaf reynt að
segja sem minnst um samband
okkar. Meira að segja eftir að við
giftumst breyttist ekkert hvað
það varðaði. Ég held að þetta
hafi komið í veg fyrir alls konar
vandamál,“ sagði Beyoncé, sem
þakkaði manni sínum þegar hún
tók á móti sex Grammy-verðlaun-
um í síðasta mánuði.
Þegja yfir
hjónabandi
BEYONCÉ Söngkonan reynir hvað hún
getur til að halda sambandi sínu fjarri
fjölmiðlum.
Ingi Þór Óskarsson úr Gettu betur-
liði Menntaskólans við Hamrahlíð
hefur ákveðið að standast áskor-
un og bjóða spyrlinum Evu Maríu
Jónsdóttur á stefnumót. Ingi Þór og
félagar etja kappi við Verslunarskól-
ann í 8 liða úrslitum Gettu betur á
laugardaginn og þar ætlar hann að
bera spurninguna fram.
„Það fer bráðum að koma að
þessu,“ segir Ingi Þór, hvergi bang-
inn. Vinir hans skoruðu á hann að
bjóða Evu Maríu á stefnumót á góð-
gerðarviku í MH síðasta haust.
Reiddu þeir fram fimmtán þúsund
krónur og rann allur ágóðinn til
Barnaspítala Hringsins. Núna er
komið að Inga að standa í stykkinu.
Fari svo að Eva þekkist boðið yrði
það vafalítið óvenjuleg sjón að sjá
hina óléttu sjónvarps-
konu á stefnumóti með
ungum menntaskóla-
nema. „Einhvern tím-
ann er alltaf fyrst,“
segir Ingi, léttur í
bragði.
Undirbúningur fyrir viðureign-
ina gegn Versló hefur gengið vel
að sögn Inga. Að sjálfsögðu stefnir
hann á sigur og vonast í fram-
haldinu til að hefna ófaranna
frá því í fyrra þegar MH
tapaði fyrir MR í úrslitun-
um eftir spennandi við-
ureign. „Við erum með
sama lið og erum búin
að bæta okkur eitt-
hvað, myndi ég segja,“
segir hann. - fb
Býður Evu Maríu á stefnumót
GETTU BETUR-LIÐ MH Lið MH
í Gettu betur: Auður Tinna
Aðalbjarnardóttir, Ingi Þór
Óskarsson og Skúli Þór
Jónasson. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÞEKKIST HÚN BOÐIÐ? Evu
Maríu verður boðið á
stefnumót á laugardag-
inn í beinni útsendingu.
Tískuhönnuðurinn Alexand-
er McQueen skrifaði sjálfs-
morðsbréf og hengdi sig síðan
í fataskáp. Þetta kemur fram í
skýrslu sem dánarstjóri í Lond-
on hefur sent frá sér. McQueen
fannst látinn á heimili sínu í
London fyrir viku, á sama tíma
og undirbúningur var í fullum
gangi fyrir vorlínu hans sem
átti að kynna í París. Sama dag
og hönnuðurinn lést fór jarðar-
för móður hans fram, sem lést
viku áður. McQueen starfaði
lengi með Björk Guðmundsdótt-
ur og minnist hún vinar síns á
hjartnæman hátt á heimasíðu
sinni, Bjork.com.
Hengdi sig í
fataskáp