Fréttablaðið - 26.02.2010, Síða 52
20 26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Sverrir Hermannson, fyrrverandi
bankastjóri og ráðherra, stendur á átt-
ræðu í dag. Sverrir verður að heiman
á afmælisdaginn og þegar blaðamað-
ur náði af honum tali var hann rétt að
koma inn frá því að skafa bílinn. „Ég
ætla bara að stinga af bæjarleið,“ segir
hann en gefur ekkert frekar upp hvar
afmælisdeginum verður eytt.
Sverrir ólst upp í Ögurvík við Ísa-
fjarðardjúp hjá foreldrum sínum, Her-
manni Hermannssyni og Salóme Rann-
veigu Gunnarsdóttur. Fjölskyldan flutti
til Ísafjarðar þegar Sverrir var fimmt-
án ára, þar sem hann tók landspróf.
Þaðan lá leiðin í Menntaskólann á Akur-
eyri og svo í viðskiptafræði við Háskóla
Íslands.
„Við höfðum allt til alls í Ögurvík.
Faðir minn átti nokkrar kindur og kýr
og saltaði fisk á haustin. Það var salt-
fiskur á borðum fimm daga vikunnar á
æskuheimili mínu og ég hlakkaði allt-
af jafnmikið til að borða. Svo fengum
við hafragraut og súrt slátur á kvöld-
in, þetta var kjarngott fæði. Ég hef
átt skemmtilega ævi og er óskaplega
heppinn með mína fjölskyldu.“
Fjölskylda Sverris er stór. Þau hjónin,
Greta Lind Kristjánsdóttir giftu sig árið
1953 en hún kvaddi síðastliðið haust.
Saman eignuðust þau hjónin fimm
börn og eru barnabörnin nú orðin 13 og
barnabarnabörnin 5. Sverrir og Greta
bjuggu sér heimili í vesturbæ Reykja-
víkur þar sem Sverrir býr enn.
„Ég hef aldrei sofið nótt fyrir aust-
an læk. Ég á mér sumarbústað innst í
Skutulsfirði þar sem er mikil fuglapara-
dís en mín áhugamál eru fuglar him-
insins og fiskar lagarins. Þegar ég dvel
þar er ég kominn af stað klukkan sjö á
morgnana að skoða fuglalífið. Ég reyni
að ganga á hverjum degi og Seltjarnar-
nes er mitt útivistarsvæði hér syðra.“
Stjórnmálin eru stór kafli í starfs-
ferli Sverris en hann sat árum saman á
þingi áður en hann settist í ráðherrastól
og svo bankastjórastól. Hann segist þó
ekki sakna stjórnmálanna að ráði. „Nei
það get ég ekki sagt eins og nú er komið
sögu. Mér finnst margt vera öðruvísi en
maður hefði vænst, en hægara er um að
tala en í að komast.“ heida@frettabladid.is
SVERRIR HERMANNSSON: VERÐUR ÁTTRÆÐUR Í DAG
Höfðum allt til alls í Ögurvík
HLAKKAÐI ALLTAF TIL AÐ BORÐA Sverrir Hermannson var alinn upp á saltfiski og hafragraut
með slátri í foreldrahúsum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Valgerður Guðlaug
Jónsdóttir
Suðurgötu 12, Keflavík,
áður Geitagili í Örlygshöfn,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn
12. febrúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey, að
ósk hinnar látnu. Þeim, sem vilja minnast hennar, er
bent á Krabbameinsfélag Íslands. Sérstakar þakkir til
starfsfólks á deild D á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Jón Ingi Gunnsteinsson
Kjartan Gunnsteinsson Unnur Berglind Svavarsdóttir
Keran Stueland Ólason Birna Mjöll Atladóttir
Þórey Óladóttir Ómar Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg systir og frænka,
Oddný Friðrikka
Sigmundsdóttir
Austurbrún 4, Reykjavík,
andaðist á Landakoti hinn 18. febrúar sl. Útförin fer
fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. mars kl. 15.00.
Hrefna Sigmundsdóttir og aðstandendur.
Fréttablaðið býður nú upp
á birtingu æviminninga á
tímamótasíðum blaðsins.
Hafið samband í síma
512 5490-512 5495 eða sendið
fyrirspurnir á netfangið
timamot@frettabladid.is
Æviminning
Gísli Eirík
ur Helgaso
n
Laugateigi 7
2, Reykjavík
Gísli Eirík
ur Helgaso
n fæddist
í
Reykjavík
1. janúar 1
931. Hann
lést á Hraf
nistu í Ha
fnarfirði 1
2.
janúar síð
astliðinn.
Foreldrar
hans
voru Guðr
ún Jónsdót
tir frá Þing
eyri
í Dýrafirði
f. 1917, d.
1988, og H
elgi
Gíslason fr
á Ísafirði,
f. 1915, d.
1970.
Gísli Eirík
ur bjó fyrs
tu æviár sí
n í
Reykjavík
en fluttist
eftir það v
estur
til Ísafjarð
ar með for
eldrum sín
um
og systkin
um.
Systkini G
ísla Eiríks
eru Jón
Hannes, f.
1933, Sigrí
ður Ása, f.
1936 og G
uðmundur
, f.
1941.
Eiginkona
Gísla Eirí
ks er Marg
rét Magnú
sdóttir hjúk
r-
unarfræði
ngur, f. 4.
apríl 1937
. Þau geng
u í hjóna-
band árið
1960. Börn
Gísla Eirí
ks og Mar
grétar eru:
1) Magnús
kennari, f
. 1.5. 1972
, kvæntur
Guðbjörgu
Björnsdótt
ur kennara
, f. 30.11. 1
971. Börn
þeirra eru
Margrét, f.
17.2. 1997
og Björn J
óhann, f. 2
0.1. 1999.
2) Helgi tæ
knifræðin
gur, f. 18.6
. 1975, í sa
mbúð með
Jórunni Dr
öfn Ólafsdó
ttur leiksk
ólakennar
a, f. 15.2.
1975. Þeir
ra dóttir e
r Þórunn Á
sta, f. 24.12
. 2001. 3)
Guðrún læ
knir, f. 14.
11. 1979, í
sambúð m
eð Þór
Halldórssy
ni stjórnm
álafræðing
i, f. 6.6. 19
80.
Gísli Eirík
ur lauk sk
yldunámi
á Ísafirði e
n hélt suð
ur
til Reykjav
íkur 17 ára
gamall til
að nema h
úsasmíði.
Húsasmíð
ar urðu æv
istarf hans
. Framan a
f starfsæv-
inni vann
hann á Tré
smíðaverk
stæðinu Fu
ru en eftir
að
hafa fengi
ð meistara
réttindi í i
ðn sinni st
ofnaði han
n
sitt eigið f
yrirtæki, G
ísli, Eiríku
r, Helgi, se
m hann át
ti
og rak þar
til fyrir fá
einum áru
m.
Stangveið
i var aðalá
hugamál G
ísla Eiríks
alla tíð
og sinnti h
ann meða
l annars tr
únaðarstö
rfum fyrir
Stangveið
ifélag Reyk
javíkur.
Útför Gísla
Eiríks fer
fram í dag
kl. 13.00 í
Fossvogskir
kju.
G
1
gason
fæddist í
. Hann
firði 12.
drar hans á Þingeyri 8, og Helgi5, d. 1970. ár sín í
að ve tur m sínum
dur, f.
úkr-
-
u:
u
ð
ur
ð
Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar
1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar
síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá
Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason
frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu
æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til
Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum.
Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður
Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941.
Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna-
band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru:
1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu
Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru
Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999.
2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með
Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2.
1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3)
Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór
Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980.
Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður
til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði.
Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv-
inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að
hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann
sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti
og rak þar til fyrir fáeinum árum.
Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð
og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir
Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, uppeldisfaðir, afi og
langafi,
Jóhannes G.
Hermundarson (Gósi)
húsasmíðameistari, Gránufélagsgötu
23, Akureyri,
lést aðfaranótt miðvikudagsins 24. febrúar. Jarðarförin
fer fram í Akureyrarkirkju föstudaginn 5. mars kl.
13.30.
Anna Hermannsdóttir
Hermundur Jóhannesson Þórunn Gunnarsdóttir
Friðný Jóhannesdóttir
Helgi Jóhannesson Stefanía G. Sigmundsdóttir
Guðrún Jóhannesdóttir
Hjalti Jóhannesson Fjóla Kristín Helgadóttir
Lilja Sigurlína Jóhannesdóttir Unnar Jónsson
Ólafur Gunnarsson Svanlaug Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.Ástkæri eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Kristján Örn Kristjánsson
Hólagötu 37, Njarðvík,
lést á Landspítalanum í Reykjavík þriðjudaginn
23. febrúar. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
þriðjudaginn 2. mars klukkan 13.00.
Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir
Kristján Örn Kristjánsson
Ellert Stefán Birgisson Á. Lísa Guðmundsdóttir
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir Pétur Ingi Kolbeins
Þorsteinn Hermann Kristjánsson
og barnabörn.
Útför okkar elskulegu móður, tengda-
móður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
Sveinbjargar Heiðrúnar
Arnmundsdóttur
sem lést að morgni 16. febrúar sl., verður gerð frá
Hallgrímskirkju mánudaginn 1. mars kl. 13.00.
Þeir sem vildu minnast hennar er bent á Sveinusjóð
– sem stofnaður var til uppbyggingar sumarbúðastarfi
KFUM og KFUK í Ölveri. Kennitala 420369-6119.
Reikningsnúmer 0701-05-302000. Einnig er tekið við
minningargjöfum í þjónustumiðstöð KFUM og KFUK
við Holtaveg eða í síma 588 8899.
Fyrir hönd aðstandenda,
Inga Þóra Geirlaugsdóttir Jón Dalbú Hróbjartsson
Kári Geirlaugsson Anna J. Guðmundsdóttir
Hörður Geirlaugsson Sigrún Gísladóttir
Þuríður Erna Geirlaugsdóttir
Laufey G. Geirlaugsdóttir Sigurbjörn Þorkelsson
Geirlaug B. Geirlaugsdóttir Kristján Þ. Harðarson
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
Stefán Veigar Steinsson
Arnarhvoli, Dalvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann
16. febrúar sl. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju
laugardaginn 27. febrúar nk. kl. 13.30.
Símon Páll Steinsson Sigurlaug Stefánsdóttir
Sigurlína Steinsdóttir Samúel M. Karlsson
og systkinabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og
barnabarn,
Hörður Heimir
Sigurðsson
Birkibergi 32, Hafnarfirði,
sem lést á endurhæfingardeild Landspítala á
Grensási, 21. febrúar sl., verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju, mánudaginn 1. mars kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta „Á rás
fyrir Grensás“ njóta þess.
Margrét Elísabet Harðardóttir Andrés Þórarinsson
Sigurður Kristinn Einarsson Guðbjörg Guðmundsdóttir
Einar Örn Sigurðsson Elín Björk Ragnarsdóttir
Daníel Freyr Andrésson Kolbrún Edda Haraldsdóttir
Þórarinn G. Andrésson Emil Þór Sigurðsson
Óðinn Sigurðsson
Hörður Rögnvaldsson
Elínbjörg Guttormsdóttir
Hulda Hjálmarsdóttir
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ
1972.
„Þegar ég reyni að hvetja
fólk í kringum mig til að
hjóla, fæ ég iðulega í haus-
inn einhver komment um
að veðrið hér sé svo slæmt
að ógerningur sé að hjóla.“
Gísli Marteinn borgarfulltrúi
í Reykjavík vill gera Reykja-
vík að hjólaborg líkt og Kaup-
mannahöfn og Amsterdam.
Magnús Scheving er fæddur í
Reykjavík árið 1964 og vann
Evrópumeistaratitilinn í þolfimi
árið 1994. Hann var valinn
íþróttamaður ársins síðar
sama ár. Magnús vann aftur
Evrópumeistaratitilinn í þolfimi
árið 1995. Magnús er höfundur
að barnasjónvarpsþáttunum
um Latabæ og fer með hlutverk
ofurhetjunnar og íþróttaálfsins í
þáttunum. Boðskapur þáttanna
er að hvetja krakka til að hreyfa
sig og borða grænmeti, sem
er kallað „íþróttanammi“ í
þáttunum. Þar grípur Magnús
til þolfimiæfinga.
ÞETTA GERÐIST: 26. FEBRÚAR 1994
Evrópumeistari í þolfimi