Fréttablaðið - 28.04.2010, Síða 14
28. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
PENÉLOPE CRUZ ER 36 ÁRA Í DAG.
„Mikilvægasta lexían sem ég hef lært
í þessum bransa er að segja nei. Ég
hef sagt nei við alls kyns freistingum
og ég er ánægð með það.“
Spænska leikkonan Penélope Cruz hlaut
mikla athygli sem ung leikkona í mynd-
um á borð við Jamón, Jamón, La Niña
de tus ojos og Belle époque. Hún hefur
einnig leikið í bandarískum myndum
á borð við Blow, Vanilla Sky og Vicky
Cristina Barcelona.
Óperukór Hafnarfjarðar fagnar tíu ára afmæli með tónleik-
um í Hafnarborg í kvöld en auk þess er von á hljómplötu með
haustinu. Elín Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona stjórnar
kórnum og lýsir tilurð hans á þessa leið:
„Kórinn varð til eftir að ég hætti með Rangæingakórinn
í Reykjavík sem ég stjórnaði í tíu ár. Í kjölfarið stofnaði ég
Söngsveit Hafnarfjarðar og fylgdu mér nokkrir meðlimir
Rangæingakórsins. Fljótlega eftir að ég auglýsti eftir fólki
var ég svo komin með fimmtíu manna fullskipaðan kór.“ Elín
Ósk segist strax hafa verið búin að móta sér skoðun á því
hvernig kórinn ætti að vera. „Hugmyndin var frá upphafi að
vera ekki hefðbundinn kór heldur að syngja eingöngu óperu-
, óperettu- og vínartónlist. Þá var ég strax ákveðin í því að
konurnar myndu alltaf koma fram í flottum galakjólum og
karlarnir í smóking. Kjólarnir eru flestir litríkir með mikl-
um pilsum sem tryggir ánægju fyrir jafnt augu sem eyru
áhorfenda.“
Stuttu eftir stofnun kórsins segir Elín að kórmeðlimir hafi
sammælst um að hann yrði kallaður Óperukór Hafnarfjarð-
ar enda kórmeðlimir eingöngu að syngja óperutónlist. „Við
stöndum líka fyllilega undir nafni enda höfum við sungið
heila óperu á sviði,“ segir Elín Ósk og vísar til uppfærslu
kórsins á Cavalleria Rusticana á sviði Íslensku óperunnar
árið 2007.
Elín Ósk segir aldrei lognmollu í kringum kórinn og að
hann hafi ferðast víða bæði innanlands og utan. „Við feng-
um til að mynda stórkostlegar móttökur í glæsilegri fíl-
harmoníu-höll í Sófíu en auk þess höfum við troðið upp í
Kanada, Toronto og Montreal svo dæmi séu nefnd,“ segir
Elín Ósk og tekur fram að á ferðalögum kórsins ytra hafi
hann lagt sig fram um að kynna íslenska tónlist og íslenska
þjóðbúninginn.
Í dag eru um fimmtíu manns í kórnum og æfir hann einu
sinni í viku. Til að komast inn þarf fólk að vera söngvant
og segir Elín Ósk það bónus ef það hefur lært söng. „Síðan
erum við svo heppin að hafa haft konsertpíanistann Peter
Máté með okkur alla tíð.“
Á tónleikunum í kvöld verða meðal annars flutt lög af
væntanlegri hljómplötu kórsins sem hefur að geyma gam-
alt og nýtt efni frá kórnum ásamt sígunaljóðum óp. 103 eftir
Brahms. Þá verður boðið upp á óperukúlur úr smiðju kór-
meðlima en ein meginuppistaða þeirra eru Þykkvabæjar-
kartöflur úr heimabyggð Elínar Óskar. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20. vera@frettabladid.is
ÓPERUKÓR HAFNARFJARÐAR: FAGNAR
TÍU ÁRUM MEÐ TÓNLEIKUM
Kór fyrir augu
jafnt sem eyru
ÓHEFÐBUNDINN KÓR Hér er kórinn á æfingu en þegar hann kemur
fram eru konurnar í galakjól og karlarnir í smóking. FRÉTTBLAÐIÐ/VILHELM
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs sonar
okkar, bróður, mágs og frænda,
Jónasar S. Þorleifssonar,
Álfhólsvegi 84, Kópavogi.
Ragnheiður Jónasdóttir Þorleifur Þorsteinsson
systkini, systkinabörn og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hrafn Einarsson,
Vesturbrún 12, Reykjavík,
lést á Landakotsspítala, mánudaginn 26. apríl.
Signý Halldórsdóttir
Katrín Hrafnsdóttir Einar Malmberg
Sigrún Hrafnsdóttir Sigtryggur Baldursson
Sólveig Hrafnsdóttir Halldór Sölvi Hrafnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri unnusti, sonur
og bróðir,
Guðmundur Kristinn
Steinsson
Stekkjargötu 9, Reykjanesbæ,
lést af slysförum, laugardaginn 17. apríl.
Útför Guðmundar verður gerð frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 29. apríl kl. 13.00.
Stofnaður hefur verið minningarsjóður í nafni
Guðmundar Kristins Steinssonar til styrktar
Handknattleiksfélagi Reykjanesbæjar og er þeim sem
vilja minnast hans bent á reikning hjá Íslandsbanka nr.
542-14-400005, kt. 450908-0370.
Berglind Harpa Ástþórsdóttir
Steinn Erlingsson Hildur Guðmundsdóttir
Einar Ó. Steinsson Sigríður Dagbjört Jónsdóttir
Dagný Alda Steinsdóttir
Una Steinsdóttir Reynir Valbergsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Arnar Svanberg
Einarsson,
Erluási 2, Hafnarfirði,
áður til heimilis í Erluhrauni 2b,
lést á heimili sínu 23. apríl. Jarðsungið verður frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 30. apríl kl. 13.00.
Lísabet Sólhildur Einarsdóttir
Indíana F. E. Sigurðardóttir Aðalsteinn Aðalsteinsson
Viktoría I. Sigurðardóttir Jón Marías Torfason
Einar Svanberg Sigurðsson Dagrún N. Magnúsdóttir
Sigríður Lísabet Sigurðardóttir Guðmundur Jónsson
Sólborg Sigurðardóttir
Sigurður Arnar Sigurðsson Birna Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför sonar okkar, bróður og
barnabarns,
Ísaks Rafaels
Jóhannssonar
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. apríl
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeir sem vildu minnast hans eru beðnir að láta
Íslandsdeild Amnesty International njóta þess.
Aðalbjörg Jónsdóttir Jóhann Rúnar Sigurðsson
Jóhann Vilhjálmur Ólason
Óli Dagmann Jóhannsson Villy Böegh Olsen
Jóhannsson
Kolbrún Inga Sæmundsdóttir Björn Arnórsson
Jón Aðalsteinsson María Kristjánsdóttir
Hulda Jóhannsdóttir Óli Dagmann Friðbjörnsson
Katrín Björgvinsdóttir Sigurður Anton Jónsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
sonur, bróðir, mágur, afi og barnsfaðir,
Páll Skúlason,
lést laugardaginn 24. apríl. Jarðsett verður frá
Bústaðakirkju föstudaginn 30. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hans er bent á SÁÁ.
Sóley Anna Pálsdóttir Ólafur Björnsson
Ísar Daði Pálsson
Adrían Óli Pálsson
Skúli Pálsson Guðrún Hlíf Ludviksdóttir
Anna Júlía Skúladóttir Ólafur Ingi Jónsson
Birgir Skúlason Anna Guðrún Jónsdóttir
Sylvía Rán Ólafsdóttir
Hanna Sigríður Stefánsdóttir
Sigríður Sæland Óladóttir
Ástkær sambýlismaður, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Ármann Þór Ásmundsson,
andaðist á Landspítalanum sunnudaginn 25. apríl.
Útförin verður frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 4. maí
kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Karlsdóttir
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Vilborg Guðjónsdóttir
frá Fremstuhúsum, Dýrafirði,
andaðist laugardaginn 24. apríl.
Guðjón Torfi Guðmundsson Stefanía Magnúsdóttir
Þorgeir Guðmundsson
Valgerður Guðmundsdóttir
Dýri Guðmundsson Hildur Guðmundsdóttir
Hjartkær eiginkona, móðir okkar
og dóttir,
Gróa Gunnlaugsdóttir,
Írabakka 6,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
19. þessa mánaðar. Fjölskyldan vill færa starfsfólki
Karitas og líknardeildar þakkir fyrir veitta umönnun.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Fyrir hönd systkina og annarra ástvina,
Jacek Marcin Polaszczyk
Egill Örn Erlingsson
Gunnlaugur Erlingsson
Hildur Jónsdóttir
Gunnlaugur Baldvinsson