Fréttablaðið - 28.04.2010, Page 25
farið á fjöll ● fréttablaðið ●MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010
Ný tækifæri
• Byggingatækniskólinn
• Endurmenntunarskólinn
• Fjölmenningarskólinn
• Flugskóli Íslands
• Hársnyrtiskólinn
• Hönnunar- og handverksskólinn
• Raftækniskólinn
• Tækniakademían
• Skipstjórnarskólinn
• Upplýsingatækniskólinn
• Véltækniskólinn
Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins býður upp
á f jölbreytt og skapandi nám. Í skólanum er
hefðbundið framhaldsskólanám, iðnnám,
stúdentsnám, f lugnám, marmiðlunarnám,
hljóðtækninám, diplómanám auk spennandi
námskeiða fyrir almenning.
Fagskólar Tækniskólans eru:
Kynntu þér málið á www.tskoli.is
Steinn Örvar Bjarnason er
nemi í rafeindavirkjun við
Tækniskólann og einkar
ánægður með skólaval sitt.
„Ég sóttist eftir að fara í annars
konar nám en bóklega pakkann
sem bauðst í hverfisskólunum í
kringum mig og hugnaðist ekki
að fara í bekkjarkerfi, því mig
langaði að hlaupa aðeins meira
um í frjálsara flæði,“ segir Steinn
Örvar kátur fyrir utan virðulegan
skólann sinn á Skólavörðuholtinu.
„Ég byrjaði námið þegar
Tækniskólinn var enn Iðnskól-
inn í Reykjavík en nú er hann rek-
inn með nýrri hugmyndafræði
og þannig reknir þrettán undir-
skólar sem hver fyrir sig hefur
sérstakan skólastjóra og faglegt
sjálfstæði. Reynslan hefur verið
frábær, ég nýt æðislegrar vinnu-
aðstöðu þegar ég vil sinna verk-
efnum aukalega því Raftækniskól-
inn býður ýmis tækifæri fyrir þá
sem vilja vinna að sínu og beinlín-
is hvetur til þess með hráefni og
aðstöðu,“ segir Steinn Örvar sem
í skólanum fagnar tækifærum
til að sinna áhugamálum sínum,
ljósmyndun og videóupptöku,
samhliða námi.
„Mér finnst mikill kostur að
geta farið í gegnum námið á hraða
sem hentar mér, en líka gefið í ef
mig langar að auka við mig með
því að taka kvöldskólann líka, eða
aukið hraðann í náminu með fleiri
áföngum. Tímarnir eru mjög þægi-
legir, kennararnir framúrskarandi
og skólaviðveran mjög góð upplif-
un. Ég ákvað að taka því rólega og
njóta námsáranna meðan ég hef
tækifæri til að dunda við áhuga-
málin og haga námsálagi eins og
ég sjálfur kýs,“ segir Steinn Örvar
sem stofnaði videónefnd við skól-
ann á haustdögum, en hún hefur
tekið upp söngvakeppni skólans og
aðra minni háttar atburði.
„Það skemmir svo ekki fyrir að
skólinn er staddur í 101 og stutt
að rölta með myndavélina á áhuga-
verða staði eða einfaldlega njóta
mannlífsins í miðbænum. Þá er
leiðin greið fyrir nemendur úr
öllum hverfum í Tækniskólann,
því Hlemmur er handan hornsins
og stutt að labba í skólann.“
Steinn Örvar segir félagslíf
Tækniskólans fjörugt og mikið um
skemmtikvöld innan skólans, en
oft reki hver deild innan Tækni-
skólans sitt eigið félagslíf og ávallt
sé góður andi og gaman.
„Við skólann eru mýmargir
hobbíistar sem vilja gera aðra hluti
en bara liggja í bókum allan dag-
inn og fjölbreytt úrval tölvunörda
ásamt ótal skemmtilegum fígúrum,
enda ólíkar greinar samankomnar
undir einu þaki hér í Skólavörðu-
holtinu og svo í gamla Sjómanna-
skólanum. Alls staðar myndast góð
vinátta manna á milli, gleði yfir
námsefninu og nóg af hamingju í
andrúmslofti skólans.“
Sjá nánar á www.tskoli.is.
Hamingja og skemmtikvöld
Steinn Örvar Bjarnason er nemandi í rafeindavirkjun við Tækniskólann og nýtur
námsáranna í bland við áhugamálin á góðum stað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Flugmannsstarfið hefur enn yfir
sér ljóma og er draumur margra,“
segir Reynir Einarsson, yfirkenn-
ari Flugskóla Íslands sem er þrett-
ándi skóli Tækniskólans og sá
stærsti á sínu sviði hérlendis.
„Flugskólinn Íslands starfar í
hefðbundnu bekkjarkerfi þar sem
allt sem viðkemur flugi er kennt
frá a til ö. Héðan útskrifast nem-
endur sem atvinnuflugmenn,
þyrluflugmenn eða flugumferð-
arstjórar og þá sér skólinn um
þjálfun flugmanna og flugfreyja
fyrir flugfélögin.“
Flugnám hleypur á tólf til
fimmtán milljónum króna, en þá
hefur atvinnuflugmaður öll rétt-
indi sem þarf til að geta sótt um
starf hjá flugfélögum.
„Eftirsókn er mikil í námið, en
lánamöguleikar hafa versnað eftir
bankahrunið. Stuðningur íslenska
ríkisins við flugnám er heldur ekki
stór í samanburði við nágranna-
löndin þar sem ríkið styður við
bak flugnema með góðum lánum.
Við viljum hins vegar stunda flug-
kennslu á fullu þegar lægð er hjá
flugfélögum því flugmenn þurfa
að vera tilbúnir þegar uppsveifla
kemur á ný,“ segir Reynir og upp-
lýsir að vegna gengismunar sækist
evrópskir flugskólar nú mjög eftir
að senda nemendur sína í verknám
hingað enda skólinn mikils metinn
á heimsvísu.
Nám við Flugskóla Íslands
tekur þrjú ár og þurfa nemend-
ur að hafa lokið ákveðnum ein-
ingafjölda í stærðfræði, eðlis-
fræði og ensku. „Þá þurfa þeir að
hafa hreint sakarvottorð. Námið
er strangt, mikið um próf og skoð-
anir og margar síur sem þarf að
fara í gegnum. Því þarf töluvert
aðhald, þekkingarlega séð og heil-
brigðiskröfur, en flugnemar, eins
og flugmenn, þurfa að standast
læknisskoðun tvisvar á ári, bæði
hvað varðar líkamlegt og andlegt
atgervi.“ Sjá www.flugskoli.is.
Draumar um loftin blá
Reynir Einarsson er yfirkennari Flugskóla Íslands, þar sem læra má allt sem viðkemur
flugi í háloftunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM