Fréttablaðið - 28.04.2010, Side 40
24 28. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR
SÍMI 564 0000
12
12
L
10
12
L
10
7
SÍMI 462 3500
12
10
L
SHE´S OUT OF MY LEAGUE kl. 6 - 8 - 10
DATE NIGHT kl. 10
THE SPY NEXT DOOR kl. 6 - 8
SÍMI 530 1919
L
12
L
16
12
12
12
12
L
THE COVE kl. 8 íslenskur texti
BURMA VJ kl. 10 íslenskur texti
CRAZY HEART kl. 5.45 - 8 íslenskur texti
UN PROPHÉTE kl. 6 - 9 enskur texti
THE YOUNG VICTORIA kl. 6 íslenskur texti
RUDO Y CURSI kl. 10 íslenskur texti
VIDEOCRACY kl. 6 íslenskur texti
THE MESSENGER kl. 10.15 íslenskur texti
FOOD INC. kl. 8 íslenskur texti
SÝNINGARTÍMA BÍÓDAGA ER AÐ FINNA Á MIDI.IS
SÍMI 551 9000
.com/smarabio
14
16
12
L
10
14
SHE´S OUT OF MY LEAGUE kl. 5.40 - 8 - 10.20
SHE´S OUT OF MY LEAGUE LÚX kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE SPY NEXT DOOR kl. 3.40 - 5.50 - 8
DATE NIGHT kl. 6 - 8 - 10
I LOVE YOU PHILLIP MORRIS kl.5.40 - 8 - 10.20
AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D kl.3.40
NANNY MCPHEE kl.3.40
BOUNTY HUNTER kl. 10.15
NÝTT Í BÍÓ!
16. APRÍL - 6. MAÍ Í REGNBOGANUM
24 GÆÐAMYNDIR FRÁ ÖLLUM HEIMSHORNUM
DAS WEISSE BAND kl. 5.20 - 8
THE CRAZIES kl. 10.20
CLASH OF THE TITANS 3D kl. 10.30
DEAR JOHN kl. 5.40 - 8
KÓNGAVEGUR kl. 5.45 - 8 - 10.15
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
DAS WEISSE BAND ER Á BÍÓDÖGUM GRÆNA LJÓSSINS
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
12
12
12
12
12
12
12
12
12
14
14
14
L L
L
L
L
10
10DATE NIGHT kl. 8 - 10
HOT TUB TIME MACHINE kl. 8 - 10
CLASH OF THE TITANS - 3D kl. 8
KICK ASS kl. 8 - 10:20
MEN WHO STARE AT GOATS kl. 10:20
SVALASTA MYND ÁRSINS ER KOMIN!
EMPIRE - Chris Hewitt
Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna
Með Íslensku tali
SHE´S OUT OF MY LEAGUE kl. 5:40 - 8 - 10:20
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 5:50
KICK ASS kl. 5:40 - 8 - 10:30
KICK ASS kl. 8 - 10:30
CLASH OF THE TITANS kl. 8 - 10:30
CLASH OF THE TITANS kl. 5:40
AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D M/ ísl. Tali kl. 5:50(3D)
AÐ TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali kl. 5:50
HOT TUB TIME MACHINE kl. 8 - 10:30
THE BLIND SIDE kl. 8
MEN WHO STARE AT GOATS kl. 10:30
KICK ASS kl. 5:50 - 8:10D - 10:40D
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 6
CLASH OF THE TITANS 3D kl. 8:10(3D) - 10:30(3D)
HOT TUB TIME MACHINE kl. 8:10 - 10:30
HOW TO TRAIN YOUR DRAGON 3D ensku. Tali kl. 6(3D)
- bara lúxus
Sími: 553 2075
SHE´S OUT OF MY LEAGUE 8 og 10.10 12
THE CRAZIES 10 16
THE SPY NEXT DOOR 6 L
DATE NIGHT 8 10
I LOVE YOU PHILLIP MORRIS 8 12
AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D 6 - 3D L
NANNY MCPHEE THE BIG BANG 5.50 L
ÍSLENSKT TAL
H.G. -MBL
Svo virðist sem hljómsveitin SSSól
hafi spáð fyrir um eldgosið í Eyja-
fjallajökli því hún hefur dustað
rykið af níu ára gömlu lagi sem
nefnist Ég veit þú spáir eldgosi.
„Þetta er ágætis lag og er alveg
inni í þessu sem er búið að vera að
gerast,“ segir söngvarinn Helgi
Björnsson. „Við höfum aldrei spil-
að þetta og þetta fór ekki hátt á
sínum tíma,“ segir hann en lagið
kom út á safnplötunni Svona er
sumarið árið 2001.
Ég veit þú spáir eldgosi er kröft-
ugt rokklag með ólgandi undirtóni
og textinn lýsir vel því ástandi
sem nú herjar á landsmenn á Suð-
urlandi og reyndar víðar. Í texta
lagsins er meðal annars talað um
að „landið rísi, vatnið renni og
himinn og jörð verði eitt“.
SSSól er á leiðinni í stúdíó Hljóð-
rita að taka upp tvö ný lög í næstu
viku og verður Kiddi Hjálmur á
tökkunum. Hvort þau lög segi til
um verðandi náttúruhamfarir á
komandi árum skal ósagt látið.
Áætlað er að lögin komi út á safn-
plötu með eldri lögum Sólarinnar
og verður „nýja“ lagið þar á meðal.
Vinnutitill plötunnar er Er´ekki
allir sexý og kemur hún út í byrj-
un sumars. Næstu böll SSSólar
verða á Akranesi á laugardaginn
og á Selfossi 8. maí. - fb
SSSól spáði fyrir um eldgosið
SSSÓL Hljómsveitin SSSól með söngvar-
ann Helga Björnsson hefur dustað rykið
af laginu Ég veit þú spáir eldgosi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Kvikmyndin The Good
Heart var frumsýnd við
hátíðlega athöfn í Land-
mark Sunshine-kvikmynda-
húsinu í New York. Askan
frá Eyjafjallajökli setti smá
strik í reikninginn.
„Ég átti að koma heim á laugardag-
inn en þá var öllu flugi aflýst. Ég
er bara að bíða eftir opnum glugga,
vonandi verður það á morgun [í
dag],“ segir kvikmyndaleikstjór-
inn Dagur Kári Pétursson. Kvik-
mynd hans The Good Heart var
frumsýnd í síðustu viku í New
York að viðstöddum einum af aðal-
leikarum myndarinnar, Paul Dano.
Brian Cox, sem leikur hitt aðal-
hlutverkið, gat ekki verið viðstadd-
ur sýninguna því hann var fastur
í Belgrad vegna eldgossins og ösk-
unnar frá Eyjafjallajökli.
Dagur segir frumsýninguna
engu síður hafa gengið mjög vel.
Og að eldgosið hafi eilítið hjálp-
að til við kynningu á myndinni.
Þannig var BBC með nokkuð ítar-
legt innslag um myndina og í því
kemur fram að Ísland hafi upp á
meira að bjóða en bara Ísland. „Ég
hef nú nokkrum sinnum komið til
New York og fólk hefur varla vitað
að Ísland væri til. En undanfarin
tvö ár hefur landið verið nánast
stanslaust í heimspressunni og
maður má varla fara út í sjoppu
án þess að lenda í hrókasamræð-
um um ástandið heima,“ segir
Dagur og bætir því við að fram að
þessu hafi flestir haldið að „Ice-
land“ væri bara skautahöll. En
askan frá föðurlandinu setti fleira
úr skorðum hjá Degi því The Good
Heart var kjörin besta kvikmynd-
in á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í
Kraká í Póllandi. „Ég komst ekki
út af tveimur ástæðum; annars
vegar var búið að lýsa yfir þjóð-
arsorg í Póllandi út af sviplegu
andláti forsetans og hins vegar
var ekkert flogið til Póllands út af
eldgosinu,“ segir Dagur en sam-
kvæmt visir.is eru verðlaunin
ekkert slor heldur rúm ein millj-
ón íslenskra króna. „Já, ég hafði
heyrt af þessari upphæð en ég trúi
þessu ekki fyrr en ég sé þetta með
mínum eigin augum.“
freyrgigja@frettabladid.is
DAGUR KÁRI ER MARGFALT
FÓRNARLAMB ÖSKUNNAR
DANO KOMST Brian Cox komst ekki á frumsýningu The Good Heart vegna öskunnar
frá Eyjafjallajökli. Dagur er fastur í New York vegna sama vandamáls og askan hindr-
aði hann einnig í að komast til Póllands. GETTY IMAGES/NORDIC PHOTOS
Gítarleikarinn Thiago Trinsi lenti
nýverið í fjórða sæti í gítarkeppni
sem var haldin í Búkarest í Rúm-
eníu. Þar áttust við þeir sem urðu
í tíu efstu sætunum í stórri undan-
keppni sem var haldin á Netinu.
Á meðal dómara í keppninni
voru hinir virtu gítarleikarar
Brett Garsed og Greg Howe sem
eru stærstu áhrifavaldar Thia-
gos í tónlistinni. „Það var mjög
gaman að vera þarna í fimm daga
með þessum gítarmeisturum og
ég lærði heilmikið,“ segir Thiago.
„Við fengum allir tækifæri til að
taka þátt í námskeiði með þeim
og fengum diploma-skírteini að
því loknu.“ Rúmenskir fjölmiðar
fylgdust náið með keppninni og
fóru allir keppendurnir í viðtöl þar
sem þeir voru spurðir spjörunum
úr.
Thiago er tónlistarkennari á
Ólafsfirði og spilar einnig með
hljómsveitinni Killer Queen
þar sem Magni Ásgeirsson er í
fararbroddi. Hann er sömuleiðis í
þungarokksveitinni Seraphim frá
Taívan sem hefur gefið út fimm
plötur.
Thiago hvetur íslenska gítarleik-
ara til að taka þátt í gítarkeppnum
eins og hann hefur gert undanfar-
in ár. „Svona keppnir eiga stór-
an þátt í að menn þróa gítarleik
sinn áfram. Ég er ánægður með
þau tækifæri sem ég hef fengið og
þessi reynsla hefur haft góð áhrif
á minn feril,“ segir hann. - fb
Fjórði í gítarkeppni í Búkarest
THIAGO TRINSI Gítarleikarinn lenti
nýverið í fjórða sæti í gítarkeppni sem
var haldin í Rúmeníu.