Fréttablaðið - 29.04.2010, Page 8
8 29. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
VIÐSKIPTI Félag í eigu Ingibjargar
Pálmadóttur, 101 Chalet ehf., fékk
800 milljóna króna yfirdráttarlán í
hjá Glitni í júlí 2008 fyrir kaupum
á skíðasetri í Frakklandi. Þetta var
eitt síðasta lánið sem aðili tengd-
ur Baugi fékk í íslensku bönkunum
fyrir hrun, að því er fram kemur
í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis.
Raunar kemur einnig fram í
skýrslunni að Glitnir flokkaði
Ingibjörgu Pálmadóttur og félög
hennar ekki sem tengda aðila við
Gaum og Baug, ólíkt hinum bönk-
unum. Ef bankinn hefði gert það
hefði hann farið yfir hið lögbundna
hámark um áhættuskuldbindingar
sem kveður á um að einungis megi
lána einni samstæðu fjórðung af
eiginfé.
Skíðaskálinn í Courchevel í
frönsku Ölpunum var metinn á 28
milljónir evra, eða um 3,4 millj-
arða króna, að því er segir í fund-
argerð áhættunefndar Glitnis frá
27. ágúst 2008. Yfirtökuverðið var
hins vegar rúmar átján milljón-
ir evra, eða 2,3 milljarðar króna.
Önnur skammtímafjármögnun átti
að koma frá Landsbankanum og
langtímafjármögnunin frá Fortis
banka.
Skíðaskálinn var annar tveggja
á svæðinu í eigu Baugsfjölskyld-
unnar. Hinn var smærri og keypt-
ur á rúmar 10 milljónir evra.
Stærri skálinn, sem rann síðar
til BG Denmark, dótturfélags
Baugs, var hluti af allsherjar-
skuldauppgjöri á milli Baugs og
Gaums haustið 2008.
Skiptastjóri þrotabús Baugs
hefur höfðað riftunarmál vegna
þessa uppgjörs og krefst endur-
greiðslu frá Gaumi upp á sex millj-
arða. Í uppgjörinu var félagið BG
Denmark verðlagt miðað við eina
innborgun Baugs vegna skálans,
í stað þess að félagið hafi verið
verðlagt sem heild með öllum eign-
um og skuldum. Bæði hafi skálinn
verið undirverðlagður og aðrar
eignir BG Denmark auk þess ekki
metnar með. Þrotabú Baugs á hins
vegar tilkall til söluvirðis smærri
skálans, þegar hann loks selst.
Riftunarmálið vegna uppgjörs-
samningsins er eitt sex dómsmála
sem þrotabú Baugs hefur höfð-
að. Þeirra stærst er riftunarmál
vegna sölunnar á Högum til 1998
ehf., þar sem búið krefst þess að
ráðstöfun helmings kaupverðsins,
eða fimmtán milljarða, verði rift.
Alls vill skiptastjórinn rifta gjörn-
ingum fyrir ríflega 22 milljarða.
Sjá má upplýsingar um hin málin
í meðfylgjandi töflu.
stigur@frettabladid.is
Mál Stefndu Fjárhæð
1. Salan á Högum til 1998 ehf. Fimmtán milljarðar af 30 milljarða kaupverði voru notaðir til að
kaupa Gaum, ISP og Bague AS út úr Baugi. Talið að um gjafagerning sé að ræða og að félagið hafi
verið ógjaldfært þegar ráðstöfunin átti sér stað.
Gaumur, Gaumur Hold-
ing S.A., ISP ehf., Bague
S.A., Banque Havilland
og Pillar Securitisation
15 milljarðar
2. Uppgjörssamningur við Gaum, þar sem félagið BG Denmark var rangt verðmetið. Tengist meðal
annars skíðaskálanum í Frakklandi. Fjölmörg skilyrði fyrir riftun talin vera fyrir hendi, meðal annars
að um gjafagerning sé að ræða.
Gaumur 6 milljarðar
3. Víkjandi lán Baugs til Haga. Deilt um hvort rétt hafi verið af þrotabúinu að gjaldfella lánið þótt
það hafi verið á gjalddaga 2011. Talið að lánið hafi verið gjafagerningur.
Hagar 1 milljarður
4. „Bætur“ til Karls Georgs Sigurbjörnssonar vegna þeirra hremminga að hafa sætt ákæru um fjár-
svik eftir að hann keypti stofnfjárbréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar á meintu undirverði fyrir dótturfélag
Baugs. Hann var síðar sýknaður. Féð er álitið hafa verið gjöf.
Karl Georg
Sigurbjörnsson
10 milljónir
5. Greiðsla til Skarphéðins Bergs Steinarssonar. Talin vera gjöf. Skarphéðinn Berg
Steinarsson
1 milljón
6. Riftun veðs í BG Denmark vegna máls nr. 2. Glitnir Ekki fjárkrafa
Dómsmálin sex sem höfðuð hafa verið
Fékk 800 milljóna yfirdrátt
fyrir skíðaskála í júlí 2008
Eitt síðasta lánið sem aðili tengdur Baugi fékk fyrir hrun var yfirdráttarlán til Ingibjargar Pálmadóttur fyrir
skíðasetri í Frakklandi. Skálinn var hluti af skuldauppgjöri Baugs og Gaums sem skiptastjóri Baugs vill rifta.
JÓN ÁSGEIR OG INGIBJÖRG Glitnir, einn banka, taldi Ingibjörgu Pálmadóttur ekki
venslaða við Baug og Gaum. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
1. Hvað heitir forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins?
2. Í aðdáendaklúbbi hvaða
erlends dægurlagasöngvara
er Daníel Ágúst Haraldsson
stofnfélagi?
3. Hver er skólameistari Verk-
menntaskólans á Akureyri?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 54
30
APRÍL
EFNAHAGSMÁL Stjórn Íslands-
banka samþykkti í gær að vinna
með stjórnvöldum til að koma til
móts við fólk
sem tók bílalán
í erlendri mynt,
sem mun í ein-
hverjum tilfell-
um fela í sér
afskriftir.
Birna Einars-
dóttir, banka-
stjóri Íslands-
banka, sagði í
erindi á aðal-
fundi bankans
í gær að í mörgum tilfellum muni
slíkt samkomulag hafa í för með
sér lækkun á höfuðstól þeirra
bílalána sem hafi hækkað hvað
mest.
Birna vísaði í nýlega skýrslu
frá Seðlabanka Íslands, sem
sýnir að vandinn er hvað mestur
hjá fólki með slík myntkörfulán.
- bj
Vandi vegna myntkörfulána:
Íslandsbanki
skoðar afskriftir
BIRNA
EINARSDÓTTIR
BÆKUR Rannsóknarskýrsla Alþing-
is er söluhæsta bók landsins. Er
þá sama hvort miðað er við sölu
síðustu tveggja vikna eða heild-
arbóksölu frá áramótum, að
því er fram kemur á vef Félags
bókaútgefenda.
Í næstu sætum á eftir Rannsókn-
arskýrslunni eru sakamálasögur.
Í öðru sæti á lista yfir söluhæstu
bækur 12. til 24. apríl er sænska
sakamálasagan Hafmeyjan eftir
Camillu Läckberg.
Í næstu sætum á eftir skýrsl-
unni þegar horft er til sölu alls
ársins eru ekki ómerkari höfundar
Glæpasagnahöfundar lúta í lægra haldi fyrir rannsóknarnefnd Alþingis:
Skýrslan um hrunið í fyrsta sæti
Söluhæstu bækur ársins
Sæti Titill Höfundur
1. Rannsóknarskýrsla Alþingis Rannsóknarnefnd Alþingis
2. Póstkortamorðin Liza Marklund/James Patterson
3. Loftkastalinn sem hrundi Stieg Larsson
4. Stúlkan sem lék sér að eldinum Stieg Larsson
5. Svörtuloft Arnaldur Indriðason
*Uppsafnaður metsölulisti 01.01.10 - 24.04.10 / Heimild: Félag íslenskra bókaútgefenda
en Lisa Marklund og James Patt-
erson, Stieg Larsson og Arnaldur
Indriðason.
Bóksölulistinn er birtur á
tveggja vikna fresti og mælir sölu
bóka á íslensku, en hann er sagður
byggja á upplýsingum frá flestum
bóksölum landsins. Rannsóknar-
setur verslunarinnar annast söfn-
un upplýsinga fyrir hönd Félags
íslenskra bókaútgefenda.
- óká
STJÓRNMÁL Nýr formaður þing-
flokks Samfylkingar er Þór-
unn Sveinbjarnardóttir, fyrrum
umhverfisráðherra.
Þórunn tekur við starfinu
eftir að Björgvin G. Sigurðsson
sagði af sér þingmennsku tíma-
bundið.
Í millitíðinni hafði Steinunn
Valdís Óskarsdóttir, sem var
varaformaður þingflokksins,
gegnt formennsku en hún sóttist
ekki eftir að halda því áfram.
Hún hættir nú sem varaformað-
ur en í hennar stað kemur Skúli
Helgason, sem áður var ritari
þingflokksins.
Jónína Rós Guðmundsdóttir
er nú ritari þingflokksins.
- kóþ
Þingflokkur Samfylkingar:
Þórunn tekur
við af Björgvini
EFNAHAGSMÁL „Ég held að
hér sé landlægt virðing-
arleysi gangvart lögum
og reglum,“ segir Sal-
vör Nordal, forstöðumað-
ur Siðfræðistofnunar
Háskóla Íslands og einn
höfunda að siðfræðihluta
skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis um banka-
hrunið.
Salvör hélt tvö erindi í fyrradag
tengd bankahruninu, eitt á morg-
unverðarfundi Félags viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga og annað
í hádeginu í Háskóla Íslands.
Salvör kom inn á sama efni í
báðum erindum, tilhneigingu stjórn-
enda bankanna til að teygja sig eins
langt að mörkum hins leyfilega fyrir
bankahrunið.
Þá sagði Salvör stjórn-
endur bankanna, stjórn-
völd og eftirlitsstofnanir
hafa brugðist í aðdraganda
bankahrunsins þar sem þau
hafi réttlætt gjörðir sínar
með tilvísun í lagabókstafi.
Hún tók sem dæmi að þegar
hollensk stjórnvöld hefðu
krafist þess að Landsbank-
inn seldi eignir nokkru fyrir
hrun bankans hefði forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins brugðist illa við,
vísað í lagabókstafinn og til styrks
bankans í síðasta uppgjöri hans.
„Þröng lagahyggja er andstæð
því grundvallarviðhorfi, sem siða-
reglur hvíla á,“ sagði Salvör og
benti á hættuna á að slíkt gæti
sljóvgað siðferðilega dómgreind.
- jab
Stjórnendur bankanna prófuðu mörk hins leyfilega:
Íslendingar virða
ekki lög og reglur
DÓMSMÁL Nítján ára piltur hefur
verið dæmdur í tíu mánaða óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir fjögur
þjófnaðarbrot og tvenn eigna-
spjöll.Pilturinn ollil í tvígang
töluverðum skemmdum á sama
hraðbankanum við Geislagötu á
Akureyri.
Hann hefur sex sinnum hlotið
refsidóma frá árinu 2007, fyrir
þjófnað, fíkniefnabrot og umferð-
arlagabrot. Hann hefur verið fík-
ill undanfarin misseri. Það er virt
honum til málsbóta að hann játaði
brotin undanbragðalaust. - sh
Tíu mánaða fangelsisdómur:
Piltur eyðilagði
hraðbanka
SALVÖR NORDAL
VEISTU SVARIÐ?