Fréttablaðið - 29.04.2010, Page 28
28 29. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
Hæstvirtur umhverfisráðherra kvaddi sér hljóðs í Fréttablað-
inu nýverið. Umfjöllunarefnið er
barátta fyrir vexti og viðgangi
dýra og plöntutegunda og þeirri
meintu ógn sem „líffræðilegum
fjölbreytileika“ stafar af „fram-
andi ágengum tegundum“. Er svo
að skilja að á Íslandi ríki jafnvægi
lífbreytileika og heilbrigðra vist-
kerfa. Draumaland sem beri að
varðveita eins og steingerving,
enda drjúpi smjör af sérhverju
íslensku strái.
Nú er það svo að Ísland geymir
eitt mest raskaða gróðurvistkerfi
í heimi af mannavöldum og flóra
og fána einkennast öðru fremur af
fábreytni. Sérstæðurnar á heims-
vísu eru því fáar hvað varðar gróð-
ur og dýralíf, nema ef vera skyldi
skortur á breytileika lífs. Sæmi-
lega heilleg gróðurvistkerfi þekja
innan við 5 prósent af flatarmáli
landsins og því er til þess að gera
afmarkað verkefni að vernda þau.
Þessi svæði flokkast eftir sem áður
sem hálfnáttúruleg, því vart er
lófastór blettur á þessu landi sem
ekki hefur orðið fyrir umtalsverðri
röskun af mannavöldum, þótt ekki
standi þar mannvirki eða sýnileg-
ar mannvistarleifar enda margar
löngu borist á haf út.
Í grein ráðherra eru fullyrðing-
ar sem ástæða er til að staldra við
og óska frekari rökstuðnings og
heimilda fyrir, enda ber stjórn-
valdi að gæta orða sinna og athafna
í hvívetna.
1. Því er haldið fram sem alkunn-
um sannleika að „Lúpína og skóg-
arkerfill [séu] ágengar tegund-
ir og erfitt getur reynst að hemja
útbreiðslu þeirra“. Nú er ekki gott
að ræða þessar tvær ólíku tegund-
ir í sömu andránni (hvað þá mink)
þótt helstu talsmenn gegn fram-
andi tegundum hafi tamið sér orð-
ræðu öfga og haturs líkt og þeir
sem tala um pestir, faraldra, glæpi
og útlendinga með vaðal ógnar og
heimóttaskapar. Fylgir gjarnan
sögunni, á innsoginu, að fæðinga-
tíðnin sé ógnvænleg.
Um lúpínuna er talsvert vitað
og um hálfar aldar reynsla er af
ræktun hennar, aðallega á verstu
rofsvæðum landsins. Talsverð
útbreiðsla hennar er þó að mestu til
komin vegna stórvirkra vélsáninga
á vegum Landgræðslu ríkisins á
skilgreindum landgræðslusvæðum
en er ekki tilkomin vegna skjótr-
ar útbreiðslu tegundarinnar sem
slíkrar. Vart þarf þó að deila um að
lúpínan bindur jarðveg og kolefni
og á henni þrífst niturbindandi
örvera. En íslenskur gróður líður
fyrir nær algjöra þurrð á köfnun-
arefni eftir 11 alda rányrkju og
skort á niturbindandi plöntum og
skógarvistkerfum. Margs konar
gróður þrífst í skjóli lúpínunnar
og gróðurframvinda er til þess að
gera hröð þar sem lúpína er. Sam-
anborið við útbreiddasta mann-
gerða gróðurvistkerfið, graslendi,
batnar málstaður lúpínu en frekar.
Lítið er til af rannsóknum á áhrif-
um lúpínu á lífríkið en nokkrar
um afmarkaða þætti. Um hegðan
skógarkerfils í gjaldþrota íslensku
gróðurvistkerfi er enn minna vitað
en dæmi eru um að hann hafi náð
nokkurri útbreiðslu í gömlum
túnum, saurmenguðum skurðum
og lúpínubreiðum og leggst þá hvít
hula yfir bláa litinn sem ætti að
falla núverandi umhverfisráðherra
vel í geð.
2. Í næstu setningu virðist sem
umhverfisráðherrann geirnegli
kenningu um hina gríðarlegu ógn
sem að öllu lífi steðjar af þessum
skaðvöldum. „Í Hrísey hafa lúpína
og skógarkerfill til að mynda orðið
ríkjandi á þeim hluta eyjunnar
sem er á náttúruminjaskrá vegna
fjölskrúðugs gróðurs og fuglalífs.
Þannig geta þessar plöntutegundir
ógnað líffræðilegri fjölbreytni hér
á landi.“ Hvar eru rannsóknirnar
sem styðja þessar fullyrðingar?
Nú er það svo að þegar lúpínu
var sáð í Hrísey var gróðurlend-
ið mikið raskað og rofið. Því hefur
nýlega verið haldið fram að lúpína
þeki um 15 prósent svæðisins sem
er á náttúruminjaskrá og áður var
örfoka og að það sé mikil ógn við
rjúpnastofninn. Þetta er þó aðeins
staðlaus staðhæfing, enda dvelja
rjúpur gjarnan í lúpínubreiðum
með unga sína ófleyga. Þar er og
urmull skordýra og skjól fyrir
fálka og mávum. Hagamýs kunna
vel að meta aukna framlegð lúpín-
unnar, nokkuð sem uglur hagnýta
sér.
3. „Ágengar framandi lífverur
ógna ekki aðeins jafnvægi í nátt-
úrunni heldur geta þær líka vald-
ið fjárhagslegu tjóni.“ Hvaðan er
kenningin um að það ríki jafnvægi
í náttúrunni komin? Ráðherrann
nefnir dæmi um svimandi háan
kostnað ríkja Evrópusambands-
ins og kostnaðarfrekar lúpínuher-
ferðir í Skaftafelli, málar ástandið
með sterkum lit. Sér aðeins kostn-
að og ógn en lítur fram hjá virði
vistþjónustu. Hvað þá að spurt sé
þeirrar spurningar, hvað kalli á
þessi útgjöld. Boðberar bókstaf-
strúar einblína á undirgrein h. 8.
greinar alþjóðasáttmála um líf-
breytileika og túlka líkt og ofsa-
trúarsöfnuðir hina heilögu bók.
Orðræða sem er sláandi lík upp-
runafordómum.
Íslendingar hafa í gegnum ald-
irnar valdið algjöru vistfræði-
legu gjaldþroti á landi og standa
nú frammi fyrir skammarlegu
skipbroti „hins íslenska efnahag-
sundurs“ sem líkt og hið fyrra var
varðað góðum ásetningi, heimótt-
arskap, hefðarspeki, þjóðrembu,
þagnar- og þjóðarlygi. Útrýming-
arárátta sem refurinn hefur gefið
langt nef á þar hlut að máli.
Lengri útgáfu greinarinnar er að finna á
www.visir.is
Lúpína
Einar
Gunnarssonr
Skógfræðingur
Það er eins og maður sé kominn á tónleika hjá lögreglukórnum,
sagði ég við Kjartan sýslumann
þar sem hann stillti sér upp í röð
á sviðinu með Haraldi Johanness-
en og Víði Reynissyni í almanna-
varnadeildinni ásamt fleiri sér-
fræðingum á íbúafundi á Hellu í
síðustu viku.
Ég sat á fremsta bekk með
Rögnu dómsmálaráðherra, Kristj-
áni samgöngu, Jóni landbúnað-
ar og Álfheiði heilbrigðis. Þarna
voru líka á fremstu bekkjum land-
læknir og Trausti Jónsson veður-
fræðingur. Katrín sem fræddi
um áhrif öskunnar á dýrin, Sig-
rún sem sagði frá rannsóknum á
vatninu, Hildur frá Bjargráðasjóði
og Ásgeir frá Viðlagatryggingu.
Prestur og læknir og sérfræðing-
ur í áfallahjálp. Og svo kannski
svona hundrað manns frá Hellu
og nágrenni.
Svona er Ísland best.
Smæðin og nálægðin gerir það
að verkum að hægt er að snara
saman helstu ráðamönnum og for-
svarsmönnum stofnana og sér-
fræðingum landsins til að takast á
við aðsteðjandi vanda í sveitunum
austan Þjórsár. Veita upplýsing-
ar og stappa stálinu í heimamenn.
Víðir Reynisson stýrði fundinum
og fórst það vel úr hendi; þetta var
afslappað en fagmannlegt, skipu-
lagt en heimilislegt. Við erum ein
fjölskylda og öll í þessu saman.
Víðir man gosið í Eyjum og það
stafar af honum reynslu og færni.
Fundurinn stóð í einn og hálf-
an tíma og svo var haldinn annar
á Hvolsvelli engu síðri og alveg
eins.
Það er samhugur og eindrægni
sem einkennir okkur Íslendinga
þegar á bjátar. Það eru þau verð-
mæti sem við búum að og eigum
að sækja í núna þegar að okkur
öllum steðjar stærri ógn en eld-
gos, jarðskjálftar og veðurofsi.
Þau gerningaveður sem nú
ganga yfir landið í kjölfar banka-
hruns bera í sér hættu sem á sér
vart jöfnuð í sögunni. Efnahags-
legt sjálfstæði landsins gæti farið
forgörðum til langframa. Við
höfum sumpart misst það í hend-
ur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og
erum undir náð og miskunn vina-
þjóða með lánveitingar.
En það er tímabundið ástand.
Nú ríður á að við stillum saman
strengi okkar besta og færasta
fólks, leggjum til hliðar pólitísk-
ar smákrytur og förum að haga
okkur eins og fólk. Skýrslan ligg-
ur fyrir. Niðurstöðuna má setja
svona í facebook-status: „Orsak-
ir bankahrunsins er að finna
í hinum neikvæðustu þáttum
mannlegs eðlis.“
Margir finna til djúprar
skammar. Það er í lagi en öllu má
ofgera. Græðgi, óhóf, sérgæska
og heimska eru enda ekki sér-
íslensk fyrirbrigði nokkru frem-
ur en að uppsprettu útrásarinn-
ar hafi mátt finna í samanlögðum
viskubrunni fornrar víkingaþjóð-
ar í þúsund ár, jafnvitleysislegt
og það hljómar í dag.
Við höfum ekki ráð á frekari
barlómi og við höfum ekki ráð á
því að reka pólitík eins og þeir
kynntu hér til sögunnar, hinir
ágætu herramenn Davíð Odds-
son og Ólafur Ragnar Grímsson.
Pólitík hörku, reiði og persónu-
legrar óvildar. Við erum 320 þús-
und og búum á eyju.
Ríkisstjórnin og formenn
stjórnarandstöðunnar ættu
að fara með íbúafundi um allt
land. Kannski með borgarafund
í Háskólabíó. Kynna hugmynd-
ir sínar og svara spurningum.
Spurningin sem við þurfum að
svara er þessi: markar skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis ekki
grunninn í þeirri pólitík sem við
þurfum að vinna hér á næstu
árum?
Það tel ég og myndi helst vilja
byrja að vinna. Mér þóttu umræð-
urnar sem fram fóru í þinginu
dagana tvo eftir rannsóknar-
skýrslu tilgangslitlar. Ég var
ekki búinn að lesa skýrsluna og
á enn langt í land. Kannski les ég
hægar en allir á Íslandi. En það
sem ég hef lesið segir mér að hér
sé um grundvallarrit að ræða.
Ég myndi vilja að minn stjórn-
málaflokkur mótaði sér sérstak-
lega stefnu á grundvelli hennar
og að aðrir gerðu slíkt hið sama.
Þetta mun taka tíma, 1-2 ár, og á
sama tíma þarf að skapa atvinnu
og sinna bráðavanda heimila sem
ráða ekki við afborganir. Í næstu
kosningum, 2013, geta Íslending-
ar kosið sér þá forystu sem þeir
telja að best hafi dregið lærdóm
af hruninu og best hafi brugðist
við í kjölfar þess.
En umfram allt þurfum við nú
að temja okkur þann lærdóm sem
draga má af viðbrögðum þeirra
sem komið hafa að náttúruham-
förunum fyrir austan. Venjum
okkur á vinsemd og kurteisi.
Stuðlum að samhug og eindrægni.
Munum að við erum ein fjöl-
skylda og öll í þessu saman.
Þannig er Ísland best.
Ísland er samt best Af líffræðilegum
fjölbreytileikaÍslenskt samfélag
Róbert
Marshall
Alþingismaður
Því hefur nýlega verið haldið fram að
lúpína þeki um 15 prósent svæðisins
sem er á náttúruminjaskrá og áður
var örfoka og að það sé mikil ógn við
rjúpnastofninn.
DAXARA
– kjörin í vorverkin
Daxara-kerra nýtist vel fyrir það sem þú þarft í garðinn; fjórhjólið
eða bátinn; gamla ísskápinn, þvottavélina eða eldavélina sem þarf
að koma á haugana; hjólbörurnar, sláttuvélina og nýja arininn sem
á að fara í sumarbústaðinn; mótorhjólið, vélsleðann – og eiginlega
hvað sem er.
DAXARA 218
Sturtubúnaður, 13” dekk,
opnanl. gafl framan og aftan
Innanmál: 204x129x40 cm
Burðargeta: 560 kg
Verð 279.500 kr.
Léttgreiðslur 46.583 kr. í 6 mán.
DAXARA 158
Sturtubúnaður, 13” dekk,
opnanl. gafl framan og aftan
Innanmál: 145x100x40 cm
Burðargeta: 540 kg
Verð 174.500 kr.
Léttgreiðslur 29.083 kr. í 6 mán.
DAXARA 127
Sturtubúnaður
Innanmál: 120x92x35 cm
Burðargeta: 335 kg
Verð 97.500 kr.
Léttgreiðslur 16.250 kr. í 6 mán.
REYKJAVÍK
Fiskislóð 1 Sími 580 8500
mánud.–föstud. 10–18 Laugard. 10–16
Lokað 1. m
aí
AKUREYRI
Tryggvabraut 1–3 Sími 460 3630
mánud.–föstud. 8–18 Laugard. 10–16