Fréttablaðið - 29.04.2010, Side 58
42 29. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
> SÍMINN HRINGDI
Unglingastjarnan Miley olli held-
ur betur usla á tökustað nýjustu
kvikmyndar sinnar The Last Song
þegar síminn hennar hringdi í
dramatísku atriði sem var verið
að taka upp. Miley segist ekki
geta án símans verið og þess
vegna hafi hann óvart ratað
með í tökuna.
Russell Crowe hótaði að drepa kvik-
myndaframleiðandann Branko Lustig
á tökustað kvikmyndarinnar Gladiator.
Crowe hafði komist að því að aðstoðar-
menn á tökustaðnum væru að vinna
fyrir skítalaun og vildi að Lustig lagaði
hlutina í snatri. „Helvítis fíflið þitt, ég
drep þig með berum höndum,“ á Crowe
að hafa sagt en þetta kemur fram í
bók eftir rithöfundinn Nicole
Laporte sem á að koma út á næst-
unni. Reyndar hefur bókin þegar
fengið misjafna dóma og Amazon-
verslunin hyggst ekki dreifa henni.
Í bókinni fer Laporte yfir samskipti
kvikmyndastjarna, framleiðenda og
leikstjóra í Hollywood og sviptir af
þeim frægðarljómanum.
Reyndar er rithöfundurinn Laporte
ekki að segja neitt nýtt með sögu sinni
um Crowe því ástralski leikarinn er
annálaður skaphundur, hefur margoft
látið reiði sína bitna á öðrum. Frægasta
dæmið er eflaust þegar hann henti
síma í áttina að hótelstarfsmanni í New
York fyrir nokkru. Framleiðandinn
Lustig segist hafa hringt í einn af eig-
endum DreamWorks, Steven Spielberg,
eftir að Crowe hótaði honum lífláti. „Ég
er hættur, Russell vill drepa mig,“ á
Lustig að hafa sagt.
Russell Crowe ætlaði að drepa mann
CROWE Er þekktur skapmaður og hefur margoft
látið öllum illum látum þegar honum finnst á
sér brotið. Hann hótaði meðal annars að drepa
einn af framleiðendum Gladiator á tökustað.
Bill Murray viðurkennir í samtali
við vefmiðilinn ComingSoon.net að
hann langi mikið að fara eyða draug-
um á ný með þeim Ricky Moranis og
Dan Akroyd. Þessi þrír fóru á kost-
um í Ghostbusters-kvikmyndunum
tveimur sem slógu í gegn á níunda
áratug síðustu aldar. Murray segir
í viðtalinu að hann sakni þessara
þriggja persóna ákaflega mikið en
slær þó ákveðna varnagla. „Það er
ekki kominn neinn söguþráður og
það er ekkert handrit til en ef hinir
eru til í þetta þá er ég til,“ segir
Murray í viðtalinu.
Leikarinn, sem hefur alltaf þótt
nokkuð sérlundaður í Hollywood,
segist hafa heyrt það á ungu kyn-
slóðinni í dag að hún vilji sjá nýja
Ghostbusters-mynd. „Ég meina, af
hverju ættum við ekki að gera þetta?
Við lifum á öld framhaldsmynda og
þetta lið sem vann að myndinni er
virkilega fyndið. Þetta eru alvöru
menn og ég sakna þeirra. Ætli það
skipti ekki mestu máli, að ég sakni
þeirra,“ segir Murray en bætir
því við að þetta sé bara eitthvað
sem liggi í loftinu. „Þetta er allt í
höndunum á kvikmyndaverunum,
þau ákveða hvað er næst á
dagskrá. Og það gæti vel
verið að einhvern daginn
segi þau að nýtt fólk sé
að skrifa handrit að nýrri
Ghostbusters-kvikmynd.
Við gerðum tvær
mjög góðar myndir,
af hverju ættum við
ekki að geta gert þá
þriðju?“
Vill eyða draugum í þriðja sinn
VILL ENDURFUNDI
Bill Murray vill
hitta Ghostbust-
ers-gengið aftur
og gera þriðju
myndina.
Leikstjórinn Adam McKay hefur
staðfest að Anchorman 2 gæti
farið í tökur á næsta ári ef guð og
lukkan lofar og það tekst að finna
gloppu í annars stífri dagskrá
Wills Ferrell. Anchorman númer
eitt sló í gegn hjá áhugamönnum
um góðar grínmyndir en þar var
gert stólpagrín að bandarískum
karlkyns sjónvarpsþulum sem
með frekju og yfirgangi og ótrú-
legum karlrembustælum reyna
að bæla niður allar konur í brans-
anum. Will Ferrell, Steve Carell,
Seth Rogen, Fred Willard, Ben
Stiller og Luke Wilson léku helstu
hlutverk í fyrstu myndinni og má
búast við öðrum eins stjörnuher í
framhaldsmyndinni.
McKay viðurkennir að fram-
haldsmyndin gæti orðið eilítið erf-
iðari í vinnslu. „Því öllum hefur
gengið svo vel eftir að við gerðum
þessa mynd og launakröfurnar eru
orðnar ógnvænlegar. Þar að auki
hafa allir miklu minni tíma. En sem
betur fer hafa allir samþykkt að
taka á sig launalækkun þannig að
horfurnar eru mjög góðar.“ McKay
og Ferrell ætla að klára handritið
í sumar og því má reikna með að
tökur hefjist strax á næsta ári.
Sjónvarpsþulurinn
Burgundy snýr aftur
ÓTRÚLEGUR Ron Burgundy var sannkallað karlrembusvín og nú er í farvatninu fram-
haldsmynd um ævintýri þessa óforskammaða sjónvarpsmanns.
Robert Downey Jr. og Mick-
ey Rourke eiga eitt sameig-
inlegt. Þeir reyndu báðir
að rústa eigin feril á sínum
tíma en tókst það aldrei
til fulls. Þeir eru því aftur
komnir á lista meðal skær-
ustu stjarna kvikmynda-
borgarinnar.
Robert Downey og Mickey Rour-
ke leika höfuðandstæðinga í Iron
Man 2. Downey snýr aftur í hlut-
verki hins sjálfumglaða og hroka-
fulla vísindamanns Tony Stark en
Rourke leikur Rússann Ivan Vanko.
Sá kemst yfir tæknina sem heldur
Járnkarlinum á lífi.
Rourke og Downey gætu varla
verið ólíkari á velli þótt lífshlaup
þeirra sé nokkuð áþekkt. Downey
er fremur lítill og snoppufríður
karl sem hreyfir sig á fágaðan hátt
en Rourke er fremur stórgerður í
andliti og ófrýnilegur eftir mis-
heppnaðar lýtaaðgerðir.
Martröðin og eiturlyf
Ef Iron Man 2 hefði verið gerð
fyrir tveimur áratugum hefðu
tökurnar eflaust verið stanslaust
á síðum slúðurblaðanna. Rourke
hefur vissulega enn gaman af því
að fá sér smá í glas en hefur látið
af þeirri venju sinni að vera mar-
tröð fyrir framan tökuvélarnar
eins og leikstjórinn Alan Parker
lýsti honum. Þeir gerðu saman
hina rómuðu spennumynd Angel
Heart. Downey hefði á hinn boginn
verið hundeltur af laganna vörðum
vegna dálætis síns á ólöglegum
vímuefnum.
Bæði Rourke og Downey eiga
það sameiginlegt að hafa lagt sitt
af mörkum til að eyðileggja sem
mest fyrir sér. Á hinum viðfræga
níunda áratug síðustu aldar stóðu
þeir á hátindi ferils síns. Rourke
lék í hverjum smellinum af fætur
öðrum og gagnrýnendur hrifust
af einstökum leik Downeys í kvik-
myndum á borð við Lezz than Zero.
Enda fór það svo að þegar tíundi
áratugurinn rann upp og ný öld
tók að banka á dyrnar voru þeir
Downey og Rourke á hraðri leið
niður stjörnustigann.
Downey var margoft handtek-
inn fyrir vörslu vímuefna og Rour-
ke gafst eiginlega upp á leiklist-
inni, sneri sér að hnefaleikum með
raunar ágætis árangri. Downey
náði botninum á árunum 2000 og
2001 þegar lögreglan handtók hann
með skömmu millibili; einu sinni á
hótelherbergi með dágott magn af
kókaíni og valíum og í hitt skiptið
fannst hann ráfandi um götur Los
Angeles, berfættur og augljóslega í
annarlegu ástandi.
Á þeim tíma var Rourke að reyna
tjasla saman ferli sínum með frem-
ur misjöfnum hætti, hann hafnaði
til að mynda hlutverki í kvikmynd
að nafni Pulp Fiction, endaði á
klippigólfinu í öðrum myndum og
tók þátt í gerð framhaldsmyndar-
innar 9½ Week.
Upprisa
Síðustu ár hafa hins vegar vera
upprisuár þeirra beggja. Rourke
fékk hlutverk í Sin City-myndun-
um sem tröllið Marv og í kjölfar-
ið fóru áhugaverðu hlutverkin að
dúkka aftur upp og hámarkinu náð
í kvikmyndinni The Wrestler en
Rourke var tilnefndur til Óskars-
verðlauna fyrir frammistöðu sína í
þeirri mynd. Downey lét hins vegar
fyrst á sér kræla í myndbandi við
lag Eltons John árið 2004 og í kjöl-
farið komu svo kvikmyndir á borð
við The Singing Detective og Zodiac
eftir David Fincher.
Upprisa Downeys náði loks
hæstu hæðum þegar fyrsta Iron
Man-myndin var frumsýnd enda
vilja margir meina að Downey ætti
að þekkja Tony Stark manna best;
hæfileikaríkur náungi sem færi
létt með að rústa orðsporinu sínu
með dæmalausum vitleysisgangi
ef hann hefði ekki trausta vini til
að halla sér að. Í tilviki Downeys er
það eiginkonan, Susan Downey.
freyrgigja@frettabladid.is
ÓLÁTABELGIR MÆTAST
VARHUGAVERÐIR Á ÁRUM ÁÐUR Robert Downey og Mickey Rourke þóttu varhuga-
verðar á árum áður. Rourke drakk ótæpilega og var martröð á tökustað og Downey
notaði töluvert magn af ólöglegum vímuefnum. Þeir hafa hins vegar báðir snúið við
blaðinu, eru í dag hálfgerðar „cult“-hetjur á hvíta tjaldinu og leika saman í myndinni
Iron Man 2. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES