Fréttablaðið - 29.04.2010, Side 61
FIMMTUDAGUR 29. apríl 2010 45
Kanadíska hljómsveitin Woodpig-
eon spilar á Sódómu í Reykjavík í
kvöld. Sveitin er á leið á tónleika-
ferðalag um Evrópu og verður
Ísland fyrsta stoppið á því ferða-
lagi. Woodpigeon er hugarfóstur
söngvarans og lagahöfundarins
Mark Hamilton. Tónlist sveitar-
innar hefur verið lýst sem full-
kominni blöndu af einlægni og
tignarleika. Henni hefur verið
líkt við Sufjan Stevens, Belle &
Sebastian og Fleet Foxes. Mark
Hamilton spilaði síðast hér á
landi á Batteríinu í ágúst í fyrra
en núna er hann með hljómsveit-
ina með sér. Miðaverð á tónleik-
ana er 1.000 krónur. Einnig koma
fram Pascal Pinon, Mukkaló og
Útidúr.
Woodpigeon
með tónleika
WOODPIGEON Kanadíska hljómsveitin
Woodpigeon spilar á Sódómu í kvöld.
Trúbatrixum hefur verið boðið
að spila á The Great Escape-tón-
listarhátíðinni sem verður haldin
í Brighton 13. til 15. maí. Fimm
trúbatrixur munu stíga á svið á
barnum Northern Lights 14. maí,
eða þær Halla Norðfjörð, Elín Ey,
Nanna, Myrra Rós og Elíza New-
man. Einnig spila þær á tónleik-
um á barnum Troy í London 13.
maí. Til að aðstoða við fjármögn-
un ferðarinnar ætla Trúbatrixur
að halda tónleika á Café Rósen-
berg í kvöld. Helgi Valur, John-
ny Stronghands og Toggi koma
einnig fram. Tónleikarnir byrja
klukkan 21 og kostar 1.000
krónur inn.
Trúbatrixur
til Brighton
Lights on the Highway tekur úr sambandi og heldur
órafmagnaða tónleika á Dillon í kvöld. Hljómsveit-
in er á leiðinni í vikuferð til London á sunnudaginn
þar sem piltarnir koma fram á nokkrum tónleikum,
bæði rafmögnuðum og órafmögnuðum. Tónleikarn-
ir á Dillon verða styrktartónleikar fyrir ferðina.
Lights on the Highway gaf síðast út plötuna
Amanita Muscaria í fyrra, en hún var tilnefnd til
íslensku tónlistarverðlaunanna. Nýjasta lag hljóm-
sveitarinnar, Leiðin heim, hefur setið í 1. sæti vin-
sældalista Rásar 2 þrjár vikur í röð, en það er
einnig fyrsta lagið með íslenskum texta sem hljóm-
sveitin sendir frá sér.
Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 22 og miða-
verð er 500 krónur, en frjáls framlög verða einn-
ig vel þegin. Lights on the Highway kemur einnig
fram á Rósenberg á morgun. - afb
Safna fyrir ferðalagi til London
MYRRA RÓS Myrra Rós spilar á tónlistar-
hátíðinni The Great Escape í Brighton.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Söngkonan Katy
Perry viðurkennir
að hún sé háð tóbaki
og reyki til að róa
taugarnar. „Ég veit
að það er óhollt að
reykja og að ég ætti
að hætta.
Ég mundi aldrei
segja við börn:
„Það er svalt að
reykja.“ þetta er
slæmur ávani sem
ég verð að venja
mig af,“ sagði söng-
konan sem viður-
kenndi jafnframt
að hún væri innst inni mjög
óörugg.
„Þótt ég virki hávær og sjálfs-
örugg þá er ég innst inni mjög
feimin.“
Perry mun giftast
unnusta sínum, breska
gamanleikaranum
Russell Brand, í
sumar.
Feimin Katy Perry
ÓÖRUGG Katy Perry
segist vera óörugg
og feimin. Á LEIÐINNI TIL LONDON Lights on the Highway kemur fram á nokkrum tónleikum í höfuðborg Englands í næstu viku.
Gjöfin þín
Allt þetta fyrir þig ef þú verslar vörur frá Estée Lauder
fyrir 5.900 kr. eða meira
í Debenhams dagana 29. apríl – 5. maí.*
Gjöfin inniheldur:
· Advanced Night Repair 7ml – kraftaverkadropa
· Daywear 7ml – mest selda dagkremið frá Estée Lauder
· Perfectly Clean Cleanser – hreinsir fryrir andlit
· Pure Color Lipstick – litur, melon
· Magnascopic Mascara - litur, svartur
· Fallega snyrtitösku
Verðgildi kr. 13.760.-
*meðan birgðir endast