Fréttablaðið - 01.05.2010, Page 30

Fréttablaðið - 01.05.2010, Page 30
30 1. maí 2010 LAUGARDAGUR Árið 1923 var fyrst gengin kröfuganga á 1. maí á Íslandi og hefð er fyrir því að launafólk gangi þar undir rauðum fána og syngi alþjóðasöng verkalýðsins, Internasjónalinn. Upprunaleg merking þessara tákna er fyrst og fremst krafa um breytingar og réttlátara þjóðfélag. Rauði lit- urinn á fána verkalýðshreyfing- arinnar táknar uppreisn gegn ranglæti. Hann þýðir að nú sé nóg komið, auk þess sem hann táknar dagrenningu. Merking táknanna og göngunnar sjálfrar er enn í dag sú sama, þó að nú gangi hvert félag undir sínum fána, og ekki séu þeir allir rauð- ir. Þátttaka launafólks í göngunni í ár er sérlega mikilvæg. Í henni getum við launafólk um land allt gert kröfur okkar um réttlát- ara þjóðfélag sýnilegar og veitt stjórnvöldum aðhald í uppbygg- ingu lands og þjóðar – látið rödd okkar heyrast. Hrunið og hrunadansinn Rannsóknarskýrsla Alþingis er loksins komin út eftir langa bið og er þjóðin líklega enn að melta hana og meðtaka. Almennt álit flestra er að skýrslan sé sérlega vel unnin og eru flestir fegnir því. Það eru ekki margir sem hafa í alvöru reynt að skrumskæla eða afneita efni hennar. Stjórnmálamenn, viðskiptalífið og í raun þjóðin öll getur dregið mikinn lærdóm af hruninu og því sem við erum nú að ganga í gegnum. Í fram- haldi þessa uppgjörs verður að gera stífa kröfu um að fram fari veruleg uppstokkun og breytingar verði gerðar á efnahagskerfinu. Einnig að þeir sem bera ábyrgð viðurkenni það og taki afleiðingunum. Samtök opinberra starfsmanna hafa eins og aðrir rýnt í skýrsluna og reynt að draga út þá þætti sem höfða sérstaklega til þeirra. Við það hefur skipulag og starf stjórnsýsl- unnar borið nokkuð á góma, sem og þáttur þeirra lífeyrissjóða sem sér- staklega eru nefndir í skýrslunni. Nokkuð ljóst virðist að stjórnsýsl- an á Íslandi er veikburða, skipulag og starf ráðuneytanna veikt og þar vantar meiri fagmennsku. Það kall- ar á meiri mannskap, en það er í algjörri andstöðu við rök þeirra sem hafa viljað skera niður í stjórnsýsl- unni og opinberri þjónustu. Fagleg og sterk stjórnsýsla, ásamt skýru og nákvæmu regluverki, er sá boð- skapur sem lesa má úr skýrslunni. Einnig er ljóst að fara þarf í upp- stokkun og breytingar á löggjafar- og framkvæmdarvaldinu, ásamt því að skoða stöðu forsetaembættisins. Þá er afar brýnt að skilja löggjafar- og framkvæmdarvaldið að. Alþingi þarf að vera mun sjálfstæðara til að veita framkvæmdarvaldinu meira aðhald. Lífeyrissjóðirnir Í skýrslunni er fjallað um gjald- eyrisvarnir lífeyrissjóðanna. Án efa spyrja margir hvað það sé, en í stuttu máli og án þess að fara í djúp- ar skilgreiningar, þá eru gjaldeyr- isvarnir það þegar gerðir eru fram- virkir samningar til að verja eignir erlendis fyrir gengissveiflum. Rann- sóknarnefndin gerir athugasemdir við þessa starfsemi og telur hana ekki eðlilega. Vitnað er í erlendan sérfræðing sem efnislega telur ekki rétt að lífeyrissjóðir, sem eru lang- tímafjárfestar, geri svona samn- inga og klykkir nefndin út með þeim orðum að „það sé umhugsun- arvert að þeir þrír lífeyrissjóðir sem kannaðir voru hafi aukið varn- ir þegar krónan tók að veikjast sem bendir til þess að sjóðirnir, sem eiga að vera með langtímafjárfestingar- markmið, hafi verið að vonast eftir skjótfengnum ágóða á gjaldeyris- markaði“. Ljóst er að lífeyrissjóðirnir eins og margir aðrir verða að gera sér grein fyrir því að tími slíkra vinnubragða er liðinn. Stjórnir lífeyrissjóðanna verða að endurskoða vinnubrögð sín og taka mið af þeirri gagnrýni sem fram hefur komið. Þar verður að gera þá kröfu að ákveðnar aðgerð- ir og tímabil séu skoðuð nánar, en gagnrýni hefur komið fram um að dýpra þurfi að kafa við þá skoðun. Vissulega er ákveðin vinna við endurskoðun þegar komin í gang, m.a. með skýrslu sem nefnd á vegum Landssamtaka lífeyris- sjóða gaf út í mars undir heitinu „Lærdómur lífeyrissjóða af hrun- inu 2008-2009“. Þar má sjá góðar ábendingar og tillögur um breyt- ingar, sem vonandi komast í gagnið sem fyrst. En betur má ef duga skal. Það þarf að vera metnaðarmál verka- lýðshreyfingarinnar í heild sinni að málefni lífeyrissjóðanna verði tekin rækilega til skoðunar því þar má engan skugga á bera. Niður- stöður slíkrar rannsóknar á ekki að hræðast heldur læra af þeim til að byggja betri sjóði til framtíðar. Gerum kröfur okkar um réttlátara samfélag sýnilegar Frídagur verkamanna Árni Stefán Jónsson formaður SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu. Ljóst er að lífeyrissjóðirnir eins og margir aðrir verða að gera sér grein fyrir því að tími slíkra vinnubragða er liðinn. Stjórnir lífeyris- sjóðanna verða að endurskoða vinnubrögð sín og taka mið af þeirri gagnrýni sem fram hefur komið. Stjórn Félags íslenskra bifreiða-eigenda mótmælir harðlega hug- myndum starfshóps samgönguráð- herra um vegatolla á meginvegi út frá höfuðborgarsvæðinu og þar með auknum álögum á notkun fjölskyldubíla. Þessar hugmyndir ganga þvert á jafnræðishugmynd- ir samfélagsins. Það er óeðlilegt að bíleigendur sem sækja vinnu, nám eða þjónustu út frá og að höfuðborg- arsvæðinu séu skattlagðir sérstak- lega umfram aðra landsmenn. Tillögur um tollavegi út frá höf- uðborgarsvæðinu koma fram í kjöl- far stóraukinna notkunarskatta á bíleigendur í formi hækkunar vöru- gjalda á bensín og dísilolíu, nýs kolefnisskatts og hækkunar virð- isaukaskatts. FÍB telur ranglátt að nauðsynlegum úrbótum í vega- málum á suðvesturhorninu fylgi nýjar skattaálögur á íbúa svæðis- ins. Íbúar þessa landshluta leggja mest til vegasjóðs í formi notkun- arskatta og hafa borgað margfald- lega á liðnum árum fyrir áætlaðar vegbætur og aukið öryggi á fjöl- förnustu og hættulegustu vegum landsins. Í desember 2008 tók ríkið um 74 krónur í skatt af hverjum bensín- lítra en nú í apríl 2010 borga bíleig- endur um 106 krónur á hvern lítra. Hækkun bensínskatta á rúmu ári er því 32 krónur á hvern lítra eða 43,5%. Yfir eitt ár er hækkunin um 60 þúsund krónur vegna reksturs meðal fjölskyldubíls. Þessi hækk- un skatta bætist við mun hærra heimsmarkaðsverð á bensíni og hækkun vegna gengisfalls íslensku krónunnar. Fyrir utan eldsneytisskatta borga bifreiðaeigendur 30 til 45% vöru- gjald af innfluttum fólksbílum plús 25,5% virðisaukaskatt á innkaups- verð og vörugjöld. Tvisvar á ári inn- heimtir ríkissjóður svokallað bif- reiðagjald af bifreiðum landsmanna sem er eignaskattur lagður á miðað við þyngd ökutækja í kílógrömmum. Bifreiðagjaldið var hækkað um síð- ustu áramót um 10% og áætlað er að skatturinn skili um 5.660 m.kr. í ríkiskassann yfir árið. Bifreiðaeig- endur borga ýmsa aðra skatta og gjöld s.s. eins og umferðaröryggis- gjald og förgunargjald. Hugmynda- auðgi skattayfirvalda er mikil þegar kemur að því að leggja auknar álög- ur á fjölskyldubílinn. Nýir og aukn- ir skattar bitna verst á tekjulægri fjölskyldum og þeim sem þurfa að sækja nauðsynlega þjónustu um langan veg. Bílaskattar eru þegar úr hófi og löngu mál að linni. Áætla má að heildarskatttekj- ur ríkisins af eldsneytissköttum á bíla verði um 36 milljarðar króna í ár sem er 10 milljarða króna hækk- un samanborið við skatttekjurnar á árinu 2008. Samkvæmt fjárlög- um er áætlað að verja um 9 millj- örðum króna til nýframkvæmda og tæpum 4,7 milljörðum til við- halds vega á yfirstandandi ári. Árið 2009 runnu ríflega 17 milljarðar til nýframkvæmda og 5,2 til viðhalds vega. Samdráttur vegna nýfram- kvæmda og viðhalds vega er því um 8,5 milljarðar króna á milli ára. Á sama tíma og bílaskattar hækka verulega á milli ára eru fjárframlög til vegamála um leið skorin verulega niður. FÍB hafnar alfarið nýjum skött- um í formi vegtolla enda ganga þeir þvert á jafnræðis- og sann- girnissjónarmið auk þess sem nóg er komið af nýjum álögum á heim- ilin í landinu sem hafa þurft að taka á sig miklar umfram álögur í kjöl- far efnahagshrunsins. Þau þola einfaldlega ekki meir. Vegatollar, nei takk! Þann 26. apríl sl. skrifaði Ólaf-ur Stephensen, ritstjóri Frétta- blaðsins, leiðara undir fyrirsögninni „Dellukenningar”, sem að hans mati eru eftirfarandi: 1. „… að íslenzka bankakerfið hafi ekki verið í neitt sérstaklega vond- um málum haustið 2008, það hafi bara ekki staðizt hina alþjóðlegu fjármálakreppu.“ 2. „… að stjórnvöld í nágranna- ríkjunum hafi ekki viljað koma Íslandi til bjargar þegar mest á reið og þannig átt sinn þátt í að keyra hagkerfið í kaf.“ 3. „… að vegna regluverks Evr- ópska efnahagssvæðisins hafi stjórnvöld ekki getað gripið í taum- ana og stöðvað bankana af.“ Ólafur hefur margt til síns máls þegar hann nefnir þekkta punkta um brestina innan bankanna og íslenska stjórnkerfisins. Auðvitað gátu stjórnvöld gert margt til að hemja stærð banka, fækka óheppi- legum hagsmunatengslum og víkka þröngt eignarhald þrátt fyrir EES. Auðvitað bera þau alla ábyrgð ásamt bönkunum. Skýrsla rannsóknar- nefndar Alþingis snerist jú um að varpa ljósi á þessa innlendu mein- bugi og hún gerir það á djarfari og vandaðri hátt en áður hefur sést. En Ólafur stingur staðreyndum undir stól. Og tekur allt, allt of djúpt í árinni. Raunar svo djúpt að í heild verður skoðun leiðarans röng. Hann segir um alþjóðlegu fjármagns- kreppuna að: „Torveldara aðgengi að lánsfé á alþjóðavettvangi gerði íslenzku bönkunum lífið vissulega erfiðara.“ Í stað þess að segja eins og hann veit að er rétt, að þegar alþjóðafjármagnskreppan skall á fyrir alvöru eftir gjaldþrot Lehman Brothers í New York, stöðvaði hún fjármagnsstreymið á augabragði. Skýrslu rannsóknarnefndarinn- ar var ætlað að draga fram okkar ábyrgð. Okkar misbresti. Svo við lærðum af þeim. Svo þjóðin gæti hreinsað borðið og haldið áfram inn í framtíðina með hreina sam- visku. En það þýðir ekki að ritstjóri Fréttablaðsins skuli loka augunum fyrir geigvænlegum utanaðkomandi þáttum sem skiptu sköpum um fjár- hagslegt fall Íslands. Því þótt annarlegar hvatir og við- vaningsháttur hafi einkennt störf einstaklinga í stjórnkerfinu, sem brugðust skyldum sínum gagnvart þjóðinni – og þótt krosseignatengsl og áhættusækni ásamt mörgu öðru misgóðu hafi einkennt íslensku bankana – er það einfaldlega ekki boðlegt af ritstjóra stærsta dagblaðs á Íslandi að láta eins og algjör stöðv- un á fjármagnsstreymi til banka um heim allan, sem gerði marga þeirra gjaldþrota, sé eitthvert aukaatriði í samhengi frásagnarinnar um fall íslensku bankanna. Ólafur strokar út alheimsbanka- krísuna. Gerir hana að neðanmáls- grein. Og hann minnist ekkert á aðra utanaðkomandi þætti eins og árás breskra stjórnvalda á Ísland með hryðjuverkalögum. Finnst Ólafi sá glæpur réttlætanlegur? Í stað- inn segir hann: „Vandi bankanna var með öðrum orðum heimatilbú- inn vandi.“ Allur vandi sem olli falli íslensku bankanna var semsagt inn- lendur að mati Ólafs, sem afneitar alþjóðlegu fjármálakreppunni! Var hún heimatilbúinn vandi? Hverslags málflutningur er þetta eiginlega? Dellukenningar ritstjóra Vegtollar Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB Steinþór Jónsson formaður FÍB Efnahagshrunið Ragnar Halldórsson ráðgjafi Dagskrá: Setning Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra Þátttaka Íslands í norrænu samstarfi að umhverfismálum Danfríður Skarphéðinsdóttir - sérfræðingur í umhverfisráðuneyti Íslenskur umhverfisveruleiki Stefán Gíslason - umhverfisstjórnunarfræðingur UMÍS ehf Environice „ ...og framkvæmdu heima fyrir.” Sigríður Stefánsdóttir – verkefnastjóri Akureyri Hugleiðing um umhverfi Akureyrar Pétur Halldórsson - útvarpsmaður Liffræðileg fjölbreytni og „Count down 2010.“ Jón Ingi Cæsarsson - varaformaður umhverfisnefndar Akureyrarbæjar Spörum orku, peninga og útblástur Sigurður Ingi Friðleifsson – framkvæmdastjóri Orkuseturs Vistvæn atvinnusköpun - úrgangur er verðmæti George Hollanders - stjórnarformaður Iðngarða „Svo vex tréð sem greinin er sveigð." Leikskólinn Kiðagil í átt að Grænfána Drífa Þórarinsdóttir - leikskólakennari Kiðagili Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Staðardagskrá 21 á Akureyri, vill með þessu málþingi um umhverfismál vekja athygli á brýnum málaflokki. Haldið verður áfram umræðu um umhverfismál allt frá því smáa til hins stóra og við fræðumst um niðurstöður Loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn og hver verða næstu skref. Hver er hnattræn staða umhverfismála nú, hvernig er norrænu umhverfissamstarfi háttað, hvað er að gerast í umhverfismálum á landsvísu og ekki síst hvað er að gerast í nágrenni okkar?. MARGT SMÁTT GERIR EITT STÓRT Hugsaðu hnattrænt og framkvæmdu heima fyrir Staðsetning: Hótel KEA · 5. maí · kl. 14:00-16:30 Málþing um umhverfismál á Akureyri
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.