Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 62
framkvæmdaráætlun fyrir alumni starf við HR. Þarfagreina Alumni starfið og koma með hugmyndum að atburðum og framkvæmd. Fjöldi starfa: 1 MR114 Leggðu þitt af mörkum til að efla samfélagshæfni æsku landsins! Staðfæring námsefnis í fjármálalæsi og samfélagsábyrgð fyrir 6-14 ára grunnskólanema. Fjöldi starfa: 4. MR115 Yfirferð og sameining gagnaskráa í SPSS Starfið felst í að taka saman sambærilegar breytur úr 9 stórum gagnasöfnum sem hefur verið safnað með spurningalistakönnunum allt frá 1992 fram á þennan dag meðal unglinga í 8.-10. bekk og meðal framhaldsskólanema. Fjöldi starfa: 2. MR116 Sameining og textavinnsla nokkurra greina um rannsóknaraðferðafræði í bók um aðferðafræði Starfið felst í að sameina í eina skrá allnokkrar fræðigreinar og bókarkafla sem leggja mætti fram sem bókarhandrit til birtingar. Þá þarf að afla heimilda í 1-2 kafla sem enn er ólokið og ganga þar frá töflum. Fjöldi starfa: 1. MR117 Einelti meðal grunnskólabarna, skipt eftir sveitarfélögum Upplýsingarnar sem verkefnið leiðir í ljós munu þannig gagnast þeim sem starfa að þessum mikilvæga málaflokki í skólum landsins og er þannig afar hagnýtt. Verkefnið er unnið upp úr fyrirliggjandi gögnum sem Rannsóknir & greining hefur aflað meðal 10 til 13 ára nemenda árin 2005, 2007 og 2009. Öll gögnin eru þýðisgögn (allir spurðir í viðkomandi árgöngum). Fjöldi starfa: 1. MR118 Orðnotkun á vefsíðum skóla Vefsíður eru andlit skóla í dag. Mikilvægt er að skoða orðanotkun á vefsíðum skóla því orðnotkun hefur áhrif á hvor notandi finni það sem hann leitar að. Hér er gert ráð fyrir að skoðaða verði vefsíður, talað við notendur og gerð notendaprófanir Fjöldi starfa: 1. MR119 Hver er vandi forritunarnema og hvernig má bregðast við honum með gagnvirku námsefni Markmið með rannsókninni er að auka þekkingu á vanda nýnema í forritunarnámi og meta sérstaklega hvort gagnvirkt kennsluefni komi að gagni. Fjöldi starfa: 2. MR120 Könnun á þekkingu forelda á notkun og kennslu í upplýsingatækni í skólum Hér er gert ráð fyrir spurningakönnun og viðtölum. Fjöldi starfa: 1. MR121 Könnun á námsvenjum og samskipti nemenda Hér er gert ráð fyrir spurningakönnun og viðtölum. Fjöldi starfa: 2. MR122 Könnun á hvernig nemendur nýta efni frá kennara og hvaða áhrif hefur það á námsárangur þeirra Hér er gert ráð fyrir spurningakönnun og viðtölum. Fjöldi starfa: 2. RANNSÓKNARMIÐSTÖÐ FERÐAMÁLA MR123 Gagnaöflun vegna kannanna ferðafólks sumarið 2010 Rannsóknamiðstöð ferðamála heldur úti nokkrum könnunum meðal ferðafólks í sumar. Þær eru á fjórum stöðum á landinu og til að tryggja gæði gagnaöflunar og svörun er mikilvægt að hafa fólk á staðnum sem fylgir vinnunni eftir og nálgast ferðafólk persónulega. Staðirnir eru: Fjallabyggð, Mývatnssveit, Borgarfjörður Eystri og Borgarnes/Borgarfjörður. Fjöldi starfa: 4-8 HÁSKÓLI ÍSLANDS FÉLAGSVÍSINDASTOFNUN HÍ MR124A A - Gögn úr innra starfi Markmiðið með verkinu er að fara yfir rannsóknir stofnunarinnar og flokka þær. Þau gögn og niðurstöður sem hægt er að gera aðgengilegar í opnum aðgangi verða teknar sérstaklega saman þannig að hægt verður að leita eftir efnisflokkum að t.d. rannsóknum um kosningar og kosningahegðun, um velferðarmál eða um atvinnuleysi. MR124B B - Alþjóðlegir gagnagrunnar og opinn aðgangur Markmiðið með verkinu er að taka saman og gera aðgengilega þá gagnagrunna sem Félagsvísindastofnun og fræðifólk við þær deildir sem standa að stofnuninni hafa byggt upp. Hugmyndin er að opna netaðgang sem inniheldur hlekki inná þessa grunna þannig að hægt sé að fá yfirsýn um þá alþjóðlegu gagnagrunna á sviði félagsvísinda sem innihalda gögn um Ísland. Fjöldi starfa: 2 MR125 Starfsmenn í tengslum við aldarafmæli Háskóla Íslands Þau verkefni felast í vinnslu á afmælisvef, skipulagningu viðburða, tengdum afmælisárinu og undirbúningi á dagskrárhandbók afmælisársins. Auk annarra tilfallandi verkefna. Fjöldi starfa: 2 MR126 Starfsmenn á Markaðs-og samskiptasviði Verkefni sem miðar að því að bæta aðgengi heyrnar-og sjónskertra að vef Háskóla Íslands, efnisvinnslu á vef Háskóla Íslands og koma að vinnu við vef sjóða Háskóla Íslands. Þá munu þessir aðilar koma að undirbúningi og starfi við Háskóla unga fólksins. Fjöldi starfa: 2 MR127 Gagnavinnsla Starfsmenn til Skjalasafns annarra starfa við gagnavinnslu og annað sem fellur til í miðlægri stjórnsýslu skólans. Fjöldi starfa: 2 MR128 Samstarfsverkefni HÍ og Norræna Hússins Starfsmenn munu vinna við samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Norræna hússins: Tilraunalandið sem er vísindasmiðja fyrir börn. Fjöldi starfa: 4 HÁSKÓLI ÍSLANDS FÉLAGSVÍSINDASVIÐ MR129 Vefvinnsla Félagsvísindasvið Háskóla Íslands óskar eftir starfskrafti í vefvinnslu í sumar. Fyrirhugað er að gera verulegar breytingar á heimasíðu sviðsins og kennara þess, bæði á íslensku og ensku. Fjöldi starfa: 1 MR130 Heimasíða Rannsóknarseturs í fólksflutningum og fjölmenningu Verkefni nemanda væri að gera aðgengilega heimasíðu fyrir rannsóknarsetrið, sem verður nýtt af þeim sem vilja kynna sér rannsóknir á fólksflutningum og fjölmenningu á Íslandi og til þess að efla starf setursins. Fjöldi starfa: 1 MR131 Mansal barna Markmið verkefnis er að undirbúa umsókn um rannsóknarstyrk um mansal barna. Verkefni þetta felst í að afla fræðilegra og almennra gagna um mansal barna í Evrópu og þá sérstaklega þau mál sem hafa farið til dómstóla. Fjöldi starfa: 1 MR132 Íslensku heimavistarskólarnir Markmið verkefnis er að taka saman sögu þessara skóla og varpa ljósi á reynslu þeirra sem þar stunduðu nám. Verkefni þetta felst í að afla gagna um þessa skóla og að taka viðtöl við einstaklinga sem gengu í slíka skóla. Fjöldi starfa: 1 MR133 Fósturbörn á Íslandi Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á ástæður þessa og upplifun þeirra einstaklinga sem urðu fósturbörn með þessum hætti. Fjöldi starfa: 1 MR134 Kortlagning aðstoðar til fátækari landa Verkefnið mun kortleggja slíka aðstoð sem veitt er af fyrirtækjum og margvíslegum frjálsum félagasamtökum. Fjöldi starfa: 2 MR135 Hlutfall kynjanna í fjölmiðlum Verkefnið snýr að talningu og greiningu á hlutfalli karla og kvenna á forsíðu Fréttablaðsins og Morgunblaðsins á eins mánaðar tímabili. Fjöldi starfa: 1 MR136 Sjálfsmyndarsköpun og hrunið Verkefnið snýr að skráningu gagna í tengslum við rannsóknaverkefni umsjónarmanns um sjálfsmynd og hrunið. Fjöldi starfa: 1 MR137 Eftirlendufræði á Norðurlöndunum og í Evrópu Verkefnin eru að kortleggja rannsóknir í eftirlendu- fræðum annars vegar á Norðurlöndum og hins vegar í Evrópu. Fjöldi starfa: 1 Mr138 Skráning gagna í mannfræði Vinna nemanda felst í því að skipuleggja og skrá inn í gagnagrunn gögn sem tengjast rannsóknum kennara í mannfræði. Fjöldi starfa: 1 MR139 Tímaritið Mannfræði Vinna nemenda felst í því að gera tímarit sem fjallar um mannfræði og kynna þannig sviðið fyrir almenningi. Fjöldi starfa: 2 MR140 Námsbraut í safnafræði Verkefnið felst í því að taka viðtöl við þá sem stofnað hafa til safna eða safnvísa og reka þau í dag. Fjöldi starfa: 2 MR141 Umbreyting íslensks bókmenntaarfs Verkefnið felst í því að kortleggja breytingu íslensks bókmenntaarfs með sérstakri áherslu á hvaða forsendur viðkomandi aðilar hafa gefið sér fyrir stofnun þessara nýju bókmenntastofnana og hvaða mælikvarða verið er að nota til að meta velgengni þeirra. Fjöldi starfa: 2 MR142 Gagnasafn um þjóðfræði samtímans Verkefnið felst í að koma skipulagi á þetta safn, skrá það í gagnagrunn, lykla gögnin og gera þau leitarhæf til að auðvelda rannsóknir, útgáfu og aðra miðlun á þessu efni sem og notkun þess til kennslu. Fjöldi starfa: 2 MR143 Eftirlitsmyndavélar í miðborg Reykjavíkur Starfsmenn verkefnisins eiga að vinna vandaða vettvangsrannsókn á afmörkuðu svæði í miðborginni og skrá þar fjölda, tegundir, eignarhald, tilgang og sjónsvið eftirlitsmyndavéla. Fjöldi starfa: 2 MR144 Jafnrétti til náms: Fatlaðir nemendur við Háskóla Íslands Verkefnið felst í því að a) taka viðtöl við fatlaða háskólanema, afrita þau og greina. b) greina stöðu fatlaðra nemenda við HÍ út frá íslenskum rétti, reglum sem HÍ hefur sett sér og þeim mannréttindaáherslum sem er að finna í nýjum samningi SÞ um jafnan rétt fatlaðs fólks, c) safna á kerfisbundinn hátt og innihaldsgreina opinberar upplýsingar um það hvernig erlendir háskólar standa að stuðningi við fatlaða nemendur. Fjöldi starfa: 4 MR145 Skráning gagna í félags- og mannvísindadeild Vinna nemanda felst í því að skipuleggja og skrá inn í gagnagrunn gögn sem tengjast rannsóknum kennara deildarinnar. Fjöldi starfa: 2 HÁSKÓLI ÍSLANDS HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ MR146 Vefmál Vefur deilda Heilbrigðisvísindasviðs og sviðsins er ekki fullþýddur á ensku. Fjöldi starfa: 1 HÁSKÓLI ÍSLANDS HJÚKRUNARFRÆÐIDEILD MR147 Undirbúningsvinna og gerð fræðsluefnis fyrir fjölskyldur veikra barna og barna á Barnaspítala Hringsins Verkefnið felst í heimildaleit og úrvinnslu á fyrirliggjandi upplýsingum í samstarfi við starfsmenn hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands og Barnaspítala Hringsins, greina efnið og gera þær aðgengilegar á skapandi hátt fyrir prentun og miðlun á vef og í bæklinga. Fjöldi starfa: 2-4 MR148 Frágangur til útgáfu á klínískri vinnubók í barnahjúkrun Um er að ræða vinna við frágang efnis, hönnunarvinnu og frágang til prentunar. Fjöldi starfa: 1 MR149 Rannsóknamaður í barnahjúkrun Unnið verður að afmörkuðum rannsóknaverkefnum, heimildaskýrslugerð og tölfræðilegri úrvinnslu. Fjöldi starfa: 1 MR150 Gagnasöfnun í meðferðarrannsókn á fólki með langvinna lungnateppu og fjölskyldum þeirra Verkefnið felist í því að innkalla þáttakendur til gagnasöfnunar og í meðferðartíma ásamt öflunar rannsóknargagna. Fjöldi starfa: 1-2 MR151 Aðstoð og vinna við gagnasöfnun vegna rannsóknar um sjálfsöryggi mæðra í fæðingu Myndi t.d. henta ljósmóður- eða hjúkrunarfræðinema. Væri æskilegt að viðkomandi hefði þekkingu á megindlegri rannsókaraðferð. Fjöldi starfa:1 MR152 Átaksverkefni til að bæta verkjameðferð á Landspítala Tilgangur verkefnisins er að bæta verkjameðferð og verður það innleitt á öllum deildum skurð- og lyflækningasviða Landspítala. Í því felst að innleiða starfsþróunarnámskeið fyrir hjúkrunarfræðinga sem á að auka þekkingu þeirra og færni í verkjameðferð. Fjöldi starfa: 1 MR153 Vinna við gagnaskráningu og gerð gagnaskráa fyrir rannsóknargögn úr heilbrigðiskönnunum Um er að ræða vinnu við að koma tilteknum upplýsingum úr spurningalistum heilbrigðiskannana á tölvutækt form. Fjöldi starfa: 2 MR154 Áhrif öskufalls á heilsufar íbúa undir Eyjafjöllum Yfir verkefninu í heild verður þverfræðileg stjórn, en svo verða klasar sem takast á hendur ákveðin verkefni, eins og rannsóknir á öndunarfærum og blóðrás, rannsóknir á andlegum áhrifum, rannsóknir á heilsu barna, rannsóknir á heilsu björgunarsveitarmanna, osfrv. Fjöldi starfa: 2 MR155 Gagnavinnsla Innsláttur gagna inn í SPSS og lýsandi tölfræði. Fjöldi starfa 1 MR156 Mat á hermikennslu í heilbrigðisvísindum Verkefnið fælist í því að slá gögn inn á tölvutækt form og vinna úr könnun sem lögð var fyrir þátttakendur í hermikennslu. Fjöldi starfa: 1 MR157 Stöðluð hjúkrunarskráning í heilsugæslu Greining á hjúkrunarvandamálum og hjúkrunarmeðferðum innan heilsugæslunnar og að kanna hvort ICNP henti til kóðaðra skráninga á þeim. Fjöldi starfa: 1 MR158 Aðstoð við utanumhald með útgáfu bókar um ofbeldi gegn konnum Verkefnið fælist í því að aðstoða ritstjóra bókarinna við utanumhald tengt útgáfu bókarinnar s.s að safna saman öllum fylgiskjölum í bókina, vinna að utsetningu efnisyfirlits og öðru er tengist frágangi bókarinnar. Fjöldi starfa: 1 MR159 Aðstoð við utanumhald á gagnaúrvinnslu og frágangs á rannsóknaskýrslum Verkefnið fælist í því að aðstoða ábyrgðarmann rannsóknanna við frágang á rannsóknarniðurstöðum (s.s uppsetningu tafla) til birtingar í skýrslum sem og til birtingar í innlend og alþjóðleg vísindatímarit. Fjöldi starfa: 1 MR160 Aðstoð við heimildaöflun og umsóknir um rannsóknarstyrki Verkefnið fælist í því að aðstoða ábyrgðarmann rannsóknanna við heimildasöfnun er tengjast greinarskrifum upp úr fjölmörgum rannsóknum á innleiðingu fjölskylduhjúkrunar á LSH. Fjöldi starfa: 1 MR161 Undirbúningur fyrir innleiðingu klínískar leiðbeiningar um mat og fyrstu viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum á Landspítala háskólasjúkrahúsi (LSH) Leiðbeiningunum er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður við greiningu og fyrstu viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum. Fjöldi starfa: 2 MR162 Stjórnun og fræðsla í hjúkrun Unnið er að rannsóknar- og þróunarverkefnum er varða stjórnun í hjúkrun og fræðslu og kennslu. Fjölda starfa: 1 MR163 Öryggi í heilbrigðisþjónustu – vinna og vinnumhverfi í hjúkrun Unnið er að nokkrum rannsóknar- og þróunarverkefnum er varða öryggi í heilbrigðisþjónustu s.s. vinnu og vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, vinnuferla, öryggi, gæði og árangur þjónustunnar. Fjöldi starfa: 1 MR164 Átak í umhverfi hjúkrunarfræðideildar Verkefnið er átaksverkefni í að fegra og bæta umhverfi hjúkrunarfræðideildar með þrifum og tiltekt. Fjöldi starfa: 1-2 HÁSKÓLI ÍSLANDS HUGVÍSINDASVIÐ MR165 Gerð skjákynningar fyrir handritasýningu Árnastofnunar Gerð stuttrar texta- og myndakynningar (skjákynning) fyrir almenning um tilvist íslenskra handrita í veröldinni, rannsóknir á þeim, kennslu um þá texta er þau varðveita, skrift þeirra og efnislega gerð. Fjöldi starfa: 2 MR166 Gerð yfirlitsrits, Áfanga í leiklistarfræðum Verkefnið er gerð yfirlitsrits, Áfanga í leiklistarfræðum, sem gefa á innsýn í rannsóknir, kenningar og tækni í leiklist og leikhússtarfi sem þróast hafa á 20. öld og fram á okkar daga. Fjöldi starfa: 1 MR167 Alfræði íslenskra bókmennta Verkefnið fælist í skráningu eða fullvinnslu færslna í Alfræðina, einkum um höfunda sem fæddir eru fyrir 1500 eða um hugtök á sviði bókmenntafræði. Fjöldi starfa: 3 MR168 Skriðuklaustursrannsóknir – skráning gripa í Sarp Óskað er eftir starfsmanni til sérstaks átaksverkefnis við að skrásetja gripi, sem fundist hafa við uppgröftinn, í rafræna gagnagrunninn Sarp. Fjöldi starfa: 1 MR169 Skriðuklaustursrannsóknir uppgröftur Fornleifauppgröftur hefur staðið yfir á rústum Skriðuklausturs í Fljótsdal síðan 2002. Óskað er eftir nema í fornleifafræði til starfa við hann frá 21. júní - 20. ágúst. Fjöldi starfa: 1 MR170 Íslenskt mál á 19. öld Verkefni nemendanna verður að slá inn á tölvu bréf alþýðufólks á 19. öld. Fjöldi starfa: 3 MR171 Skráning verka og frágangur teikninga eftir Þorvald Skúlason Óskað er eftir nemanda til að vinna “átaksverkefni” fyrir Listasafn HÍ í sumar, u.þ.b. 1 mánuð við skráningu verka, frágang teikninga eftir Þorvald Skúlason, ljósmyndun, uppsetningu verka o.fl. Fjöldi starfa: 1 MR172 Stafrænar bækur síðari alda Verkefnið felst í því að slá inn texta úr prentuðum íslenskum bókum frá siðaskiptum fram á 19. öld. Fjöldi starfa: 2 MR173 Stafræn handrit og bréf síðari alda Verkefnið felst í því að slá inn margvíslega óprentaða íslenska texta frá 18. og 19. öld. Fjöldi starfa: 2 MR174 Rannsóknagögn Björns Guðfinnssonar Verkefnið felst í því að skanna og skrá gögn úr mállýskurannsókn Björns Guðfinnssonar sem var unnin upp úr 1940. Fjöldi starfa: 1 MR175 Umskráning og aðlögun mállýskugagna Verkefnið felst í því að færa rannsóknagögn af segulböndum yfir í stafrænt form. Fjöldi starfa: 1 MR176 Söfnun og skráning gagna um íslenskt táknmál Verkefnið felist í því að taka upp á myndbönd (stafrænt form) samtöl, frásagnir og fleiri máldæmi um íslenska táknmálið. Fjöldi starfa: 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.