Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 77
fjölskyldan 5
finna flest sem einkennir íslenska
hálendisnáttúru, dýjamosa, svart-
an sand, svipmikil fjöll svo eitt-
hvað sé nefnt. Í sumar bætast
við ummerkin eftir eldgosið í
Eyjafjallajökli.“ Ferðalangar
eru fræddir um jarðfræði, sögu
og náttúru landsins í ferðinni og
segir Ósk fullorðna njóta þess líkt
og börnin að fá fræðin útskýrð á
einföldu og aðgengilegu máli. „Svo
syngjum við saman og leggjum
áherslu á góðan ferðaanda, borð-
um til dæmis saman í samkvæm-
istjaldinu okkar.“
Ósk hefur ferðast mikið um
Ísland og verið leiðsögumaður í
fjölda ferða. Hún hefur sérlegan
áhuga á því að kynna Íslendingum
hálendið. „Sumir mikla það fyrir
sér að fara á fjöll með börnin og
halda að það sé spurning um dýrar
græjur að komast til fjalla. Svo er
alls ekki. En fyrir þá sem eru ekki
vanir að ferðast getur verið auð-
velt að byrja í svona ferð.“
Ósk rekur fyrirtækið Hálend-
isferðir sem einnig stendur fyrir
náttúruskoðunar- og myndlistar-
námskeiði fyrir börn. Nánari upp-
lýingar á www.halendisferdir.is.
- sbt
SUMAR
BRENNÓ Sumarið er tími leikja og fjörs. Útileikir eru
góð hreyfing fyrir fólk á öllum aldri og brennó er einn
sá allra skemmtilegasti. Ekkert annað að gera en að
skipa í tvö lið, merkja völlinn og taka leik.
Með börnin í baksætinu Fjöldi leikja er
til sem skemmta börnum sem fullorðnum í löngu
bílferðalagi. Hver er maðurinn er klassískur leikur
sem alltaf er gaman að leika. Bílalitir er annar
góður, þá á hver fjölskyldumeðlimur að velja sér
lit og svo telja bílana í þeim lit sem mætt er á
veginum. Sá vinnur sem fyrst kemst upp í
fimmtíu.
Safnað í bauk Ef langferð er í bígerð þá er
mjög sniðugt að leggja mánaðarlega fyrir vissa
upphæð til að eiga upp í ferðina þegar að henni
kemur. Hversu smá sem upphæðin er þá munar
um hana er komið er að ferðinni. Best er auðvitað
að eiga fyrir öllu áður en lagt er af stað. Þá er um
að gera að virkja alla fjölskyldumeðlimi til að vera
með í söfnuninni.
Tilboðstími Ferðaskrifstofurnar bjóða margar
hverjar upp á tilboðsferðir til útlanda núna, það
er því rétti tíminn til þess að festa kaup á eins
hagstæðri utanlandsferð og þær gerast. Muna
bara að hafa í huga að aska úr Eyjafjallajökli getur
tafið flug, eins og dæmin hafa sýnt undanfarin.
Dans Börn kynnast ólíkum menningum með ýmsum hætti, þar á meðal í
gegnum brasilískan dans undir örygggri leiðsögn Jose Zareen sem tekur hér
nokkur spor.
Litlir listamenn Börnin fá útrás fyrir sköpunargleðina á leikskólanum.
ð er fyrir alla
Einum bent Ósk segir ungum ferða-
löngum frá náttúrufari á hálendi
Íslands.
Göngum göngum Börnin ráða ferð-
inni í hálendisferð Óskar og félaga
og njóta þeirra þannig betur.
VEITT Á GRILLIÐ Víða um land er hægt að
renna fyrir fisk og tilvalið að taka veiðistöng
með í ferðalagið innanlands.