Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 18
18 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
SPOTTIÐ
ÞORSTEINN
PÁLSSON
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Fjármálaráðherrann beindi athygli sinni að vanda Grikkja á dögunum. Af því tilefni lofsöng hann
bæði guð og krónuna eins og hún
væri hluti af sköpunarverkinu.
Kenning fjármálaráðherra er sú
að betra sé að búa við sveigjanleg-
an gjaldmiðil en sæmilega stöðug-
an. Þannig megi styrkja útflutn-
ingsgreinarnar þegar á þarf að
halda með því að lækka gengið.
Þetta er rétt að því gefnu að þjóð-
in ráði í raun og veru skráningu
gjaldmiðilsins.
Veikleikinn í kenningu fjár-
málaráðherrans er hins vegar sá
að í opnu alþjóðlegu hagkerfi eru
það erlend markaðsöfl sem ráða
gengi krónunnar. Reynslan hefur
sýnt að stjórn-
tæk i Seðla -
bankans og rík-
isstjórnarinnar
duga ekki til
þess. Pólitískt
fullveldi yfir
krónunni fæst
aðeins með því
að loka hagkerf-
inu eins og gert
er um þessar
mundir með gjaldeyrishöftum.
Sveigjanleiki krónunnar sem
erlend markaðsöfl spiluðu á leiddi
til þess að fimmtungur af íslensk-
um heimilum lenti í skuldafjötr-
um sem þau ráða ekki við. Þetta
gerðist ekki í Grikklandi.
Át t at íu hu nd raðsh lut a r
íslenskra fyrirtækja urðu tækni-
lega gjaldþrota eins og það hefur
verið kallað vegna sveigjanleika
krónunnar. Ekkert svipað gerð-
ist í Grikklandi. Þegar fjármála-
ráðherra talar um bættan hag
útflutningsgreina sleppir hann
að horfa á skuldastöðuna.
Fyrir tíma erlendra lána og
verðtryggingar mátti brenna
skuldir með gengisfellingum.
Sá tími er liðinn. Grikkir gátu
ekki létt skuldavanda sinn með
sveigjanlegri mynt.
Í trúarlegri skírskotun fjár-
málaráðherra um ólíka gæfu
Íslendinga og Grikkja fólst ein-
faldlega röng greining á þeim
mikla vanda sem báðar þessar
þjóðir glíma við.
Trúin á krónuna
Ekkert peningakerfi er svo fullkomið að jafna megi því við guðsríki. Menn geta stjórnað sér bæði vel
og illa þó að þeir noti stóra alþjóð-
lega mynt. Satt best að segja gerir
evran kröfu um enn meiri aga við
hagstjórn en þar sem menn geta
leiðrétt mistök sín með því að
rýra eignir og laun almennings
með gengisfellingum.
Grikkir eru að því leyti í
þrengri stöðu en Íslendingar að
þeir geta ekki við þessar aðstæð-
ur flutt peninga og eignir frá
almenningi til útflutningsfyrir-
tækja með gengislækkun. Það eru
líka reiknikúnstir sem auka ekki
raunveruleg verðmæti útflutn-
ingsins. Sú létta leið er auðveld-
ari til skamms tíma en er oftast
verri til lengri tíma.
Til framtíðar litið eru Íslending-
ar því í þrengri stöðu en Grikkir
vegna þess að kostnaðurinn við
að halda sjálfstæðri mynt kemur
fram í hærri vöxtum og gjaldeyr-
ishöftum. Það hamlar raunveru-
legum hagvexti. Þetta þýðir að
Íslendingar geta aðeins bætt sam-
keppnisstöðu landsins með lægri
lífskjörum til frambúðar.
Eðlilega hræðast margir evr-
una í slíkum ólgusjó sem hún er.
Sumir efast um að hún haldist á
floti. Ástæðulaust er að loka aug-
unum fyrir þessum aðstæðum.
Við sitjum hins vegar uppi með
gjaldmiðil sem sökk með skelfi-
legum afleiðingum. Sterkar sjálf-
stæðar myntir eins og sterlings-
pundið eiga líka í vök að verjast.
Við þurfum fyrst og fremst að
huga að því að verða ekki einangr-
að eyland í peningamálum. Fjár-
málaráðherrann vill hins vegar
af trúarlegum ástæðum fara
leið út úr vandanum sem verður
almenningi á Íslandi dýrkeyptari
en í Grikklandi þegar upp verður
staðið.
Guðsríki myntkerfa er ekki í nánd
Skuldavandi ríkissjóðs Grikk-lands hrannaðist upp án þess að samstarfsþjóðirnar í Evrópska myntbandalaginu
tækju eftir. Það gerðist með því að
grískar ríkisstjórnir fundu hjáleið-
ir um bókhald ríkissjóðs þegar lán
voru tekin til margvíslegra fram-
kvæmda.
Ástæða er til að leiða hugann að
þessu fyrir þá sök að íslensk stjórn-
völd eru að feta sig inn á þessa braut.
Nokkur sveitarfélög hafa reynt þetta
með misjöfnum árangri.
Nú á að fjármagna nýjan Land-
spítala framhjá bókhaldi ríkissjóðs;
sömuleiðis nýja samgöngumiðstöð
og mörg verkefni í vegamálum.
Sérstakur lögaðili er búinn til milli
lífeyrissjóðanna og ríkissjóðs til
að taka við lánum þeirra í þessum
tilgangi.
Félagsmálaráðherra hefur kynnt
nýja framkvæmdahrinu vegna
hjúkrunarheimila aldraðra. Íbúða-
lánasjóður verður þar milliliður
milli ríkissjóðs og sveitarsjóða.
Frambjóðendur Samfylkingarinn-
ar í Reykjavík og Kópavogi hafa
boðað milljarða lántökur með þess-
um hætti til að örva atvinnu.
Að ákveðnu marki má færa rök
fyrir framkvæmdum með þessu
lagi. Áhættan minnkar ef raunhæf
notendagjöld standa undir endur-
greiðslum. Þau þrengja hins vegar
svigrúm ríkissjóðs til tekjuöflunar.
Hér er því mikillar aðgátar þörf.
Þetta er hugmyndafræði vogunar-
sjóðanna. Lánin verða ekki endur-
greidd með því einu að lofa guð og
krónuna.
Óhjákvæmilegt er að fjármála-
ráðherra geri gleggri grein fyrir
því svigrúmi sem hann telur vera til
slíkrar einkafjármögnunar til hlið-
ar við bókhald ríkissjóðs. Grísku
töfrabrögðin eru víti til varnaðar.
Grísku töfrabrögðin íslenskuð
H
andtaka tveggja af fyrrverandi forsvarsmönnum Kaup-
þings og úrskurður héraðsdóms um gæzluvarðhald
yfir þeim markar nokkur tímamót í rannsókn sérstaks
saksóknara á bankahruninu. Viðbrögð margra hafa
verið ánægja með að saksóknarinn og hans lið sé að
vinna vinnuna sína; loksins sjáist einhver merki um að lögum verði
komið yfir þá sem báru ábyrgð á hruninu.
Þó eru atburðir síðustu tveggja daga ekki annað en sýnilegur
hluti gífurlega umfangsmikillar rannsóknar embættis sérstaks sak-
sóknara. Það að tveir grunaðir menn skuli dæmdir í gæzluvarðhald
sýnir að brotin, sem þeir eru grunaðir um, eru alvarleg en gefur
samt ekki endilega vísbendingu um að þeir verði sakfelldir þegar
upp verður staðið. Ýmis dæmi
eru um að menn, sem hafa verið
úrskurðaðir í gæzluvarðhald, hafa
ekki hlotið dóm.
Um leið er frekar langsótt að
saka saksóknara eða dómstóla um
að setja á svið eitthvert leikrit til
að þóknast fjölmiðlum og almenn-
ingsálitinu með því að handtaka
menn og úrskurða í gæzluvarðhald. Í því andrúmslofti, sem nú ríkir
í samfélaginu, eru saksóknarinn og dómararnir vissulega undir
þrýstingi um að ná fram sakfellingum gagnvart bankamönnum, og
margir eru sjálfsagt reiðubúnir að áfellast þá fyrir aumingjaskap
ef það gengur ekki hratt og vel. Þeir hljóta hins vegar jafnframt
að vera rækilega meðvitaðir um að einhvern daginn fellir sagan
annan og yfirvegaðri dóm yfir vinnubrögðum þeirra. Það er því
ekki hægt að gera ráð fyrir öðru en að reglum réttarríkisins sé
fylgt til hins ýtrasta.
Seint verður ítrekað nógu oft að menn eru saklausir þar til sekt
þeirra er sönnuð. Handtaka, gæzluvarðhald eða ákæra er ekki
endanlegur dómur. Þeir, sem finna nú til léttis yfir því að einhver
skuli loksins vera handtekinn, verða líka að búa sig undir að verða
fyrir vonbrigðum ef til dæmis kröfu um gæzluvarðhald er hafnað
eða dómstólar sýkna ákærða bankamenn þegar fram líða stundir.
Það er þá ekki endilega til merkis um að dómskerfið hafi brugðizt;
það getur líka sýnt fram á að réttarríkið virki og menn séu ekki
sakfelldir án nægra sannana.
Flest bendir hins vegar til að alvarleg afbrot hafi verið framin
í aðdraganda falls bankanna. Einmitt til þess að þeir fái refsingu,
sem eiga hana skilda og enginn sem ekki hefur brotið af sér verði
ranglega sakfelldur, er nauðsynlegt að rannsókn hinna gífurlega
umfangsmiklu hrunsmála verði eins ýtarleg og vönduð og mögu-
lega er unnt. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir í viðtali
við Fréttablaðið í dag að fjölga þurfi starfsmönnum hjá embætti
sérstaks saksóknara. Embættið telur sig þurfa tugi starfsmanna
til viðbótar. Þrír ráðuneytisstjórar meta nú hvernig á að bregðast
við.
Ef fjölga þarf starfsfólki hjá sérstökum saksóknara til að unnt sé
að rannsaka allan grun um afbrot í banka- og fjármálakerfinu á að
gera það sem fyrst, til þess að réttvísin hafi sinn gang.
Handtökur og gæzluvarðhaldsúrskurðir eru
aðeins hinn sýnilegi hluti rannsóknar.
Réttvísin
hefur sinn gang
ÚTSALA
á sumarbústaðalóðum
Lóðirnar eru eignalóðir. Örstutt í ölla þjónustu í Reykholti
Eingin kvöð um byggingarhraða. Rafmagn, heitt og
kaltvatn að lóðarmörkum. Verð frá 890.000kr
Uppl. 861-8689 og 823-9448