Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 8. maí 2010 3 Jeppa- og ferðasýning hjá Toy- ota í Kópavogi í dag. Áhugamenn um bíla og ferð- ir ættu ekki að koma að tómum kofanum hjá Toyota um helgina, þar sem jeppa- og ferðasýning verður opnuð í dag. Áhersla er lögð á bíla sem henta vel til ferðalaga, bæði fólksbíla og jeppa, og hægt er að skoða bæði nýjar og eldri gerð- ir bifreiða. Sérstaklega má geta nýrra Land Cruiser og Hilux- jeppa, sem bæði eru óbreyttir og með breytingum, en þeir breyttu verða til sýnis á útisvæði. Þá verða á sýningunni ýmsir ferðasérfræðingar sem geta veitt gestum og gangandi upplýsingar um áfangastaði innanlands. Sýningin verður höfð opin frá klukkan 12 til 16. Ferðast á fjórum hjólum Bifreiðar sem henta til ferðalaga verða til sýnis hjá Toyota í dag. „Umhverfismál hafa verið mér hjartans mál í mörg ár og ég sé möguleikann í ferðaþjónustunni til að fræða um náttúruna. Út á það gengur vistvæn ferðaþjónusta,“ segir Jón Jóel Einarsson eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Út og vestur. Jón Jóel segir vistvæna ferða- þjónustu mikilvægan þátt í upp- byggingu ferðamála á Íslandi í dag. Þá sé mikilvægt í umtöluðu átaki í ferðamálum til að ná ferðamönnum til landsins aftur eftir að gos hófst í Eyjafjallajökli, að vera undirbúinn þeim fjölda sem gæti fylgt í kjölfar- ið, með tilliti til umhverfisslysa. „Eftir hrunið var talað um að ferðaþjónustan ætti að bjarga okkur, sem hún getur gert. Við sáum hins vegar í túristagosinu á Fimmvörðuhálsi hvernig straum- ur af fólki lá óheftur á staðinn og alls konar fólk og fyrirtæki buðu þjónustu. Það er mikilvægt að litið sé á ferðaþjónustu sem alvöru atvinnugrein og skipulega sé hald- ið á málum. Þeim ferðamönnum sem eiga að koma hingað verður að vera ljóst að náttúran er við- kvæm.“ Jón Jóel hefur nú í tvö sumur boðið vistvænar ferðir á Breiða- fjarðarsvæð- inu. Ferðirnar eru skipulagð- ar í samvinnu við heimamenn sem kynna sig og sín störf fyrir ferðafólk- inu og bjóða í mat. Hann segir vaxandi áhuga vera á vistvænum ferðamáta þar sem ferðast er gangandi, hjólandi eða róandi. Ferðalangurinn upplif- ir svæðið á beinan hátt og kynnist mannlífinu. Það sé eitthvað sem stjórnvöld mættu veita athygli. „Hin hefðbundna ferðaþjónusta gengur að mestu leyti út á að stórir aðilar, eins og flugfélög og hótelk- eðjur, fái peningana í vasann en ekki fólkið sem verið er að heimsækja. Því er mikilvægt að stjórnvöld styðji við vistvæna ferðaþjónustu, vegna svæða sem hafa setið eftir í atvinnu- þróun. Samfélögin eru ekki síður viðkvæm en það finnst ekki öllum sjálfsagt. Á vinsælum ferðamanna- stöðum er heimafólki oft ofboðið vegna ágangs ferðamanna sem fylla öll tjaldstæði, sundlaugar, verslanir og rusl hrannast upp. Hinn almenni íbúi sem á ekki beinna hagsmuna að gæta í sundlauginni eða versl- un finnur því lítið fyrir þeim verð- mætum sem ferðamaðurinn skilur eftir sig.“ Jón Jóel segir oft þess misskiln- ings gæta að vistvæn ferðaþjónusta sé leiðinleg og snúist eingöngu um að predika umhverfisvernd. Það sé misskilningur þar sem ferðirnar séu skipulagðar á forsendum bæði gesta og gestgjafa. „Reynsla okkar er sú að fólk er ánægt með að hitta heimamenn og kynnast þeirra lífi. Fólk er úti og upplifir það sem land- ið hefur upp á að bjóða á allt annan hátt en ef horft er út um bílrúðu.“ Nánar má kynna sér vistvæna ferðaþjónustu á vefsíðunni www. utogvestur.is. heida@frettabladid.is Náttúrunnar notið beint Vistvæn ferðaþjónusta er sniðin í samstarfi við samfélagið sem sótt er heim og gengið er um náttúruna af virðingu. Hún er jafnframt sú tegund ferðaþjónustu sem vex hvað hraðast í heiminum í dag. Ferðamenn njóta þess sem svæðið býður upp á þegar þeir komast í kynni við heimamenn. MYND/UTOGVESTUR.IS Ferðalangarnir komast í bein tengsl við náttúruna. Gengið er um náttúruna af virðingu og umhverfinu ekki raskað hjá Út og vestur. Jón Jóel Einarsson segir vistvæna ferðaþjónustu mikilvæga. Meðal breyttra bíla á sýningunni má nefna Land Cruiser 150 VX. Flokkarnir eru að fyllast! Laust er í eftirfarandi flokka: 1. flokkur 4. -10. júní 10-12 ára laust 2. flokkur 11.-17. júní 9-11 ára biðlisti 3. flokkur 18. -24. júní 11-13 ára biðlisti 4. flokkur 25. júní-1. júlí 9-10 ára laust 5. flokkur 2. -8. júlí 10-12 ára biðlisti 6. flokkur 9.-15. júlí 11-13 ára biðlisti 7. flokkur 16. -22. júlí 9-11 ára laust 8. flokkur 23.-29. júlí 12-14 ára biðlisti 9. flokkur 4.-10. ágúst 14-17 ára laust KFUM og KFUK - Holtavegi 28 - 104 Reykjavík - Sími 588 88 99 - www.kfum.is 10. flokkur 11.-17. ágúst 11-13 ára biðlisti Vindáshlíð Þar er fjölbreytt þjónusta í boði allan ársins hring: • Vikureiðnámskeið barna í júní og ágúst. • Gisting, fullt fæði, reiðkennsla og afþreying. Gisting í notalegum gestahúsum, heitur pottur. • Fullt fæði ef óskað er. Allt brauð og kökur heimabakað. • Hestaleigan opin allt árið • Hestasala, úrval góðra hrossa • Hvata- og óvissuferðir fyrir hópa • Dekurhelgarreiðnámskeið að vetrarlagi • Lengri hestaferðir á sumrin, úrvals hestar og góður matur • Prinsessureiðnámskeið • Reiðnámskeið fyrir hræddar konur • Sveitadvöl fyrir fjölskyldur, þar sem gestir fá innsýn í daglegt líf í sveitinni Hestheimar • Ásahreppi • Hella • sími 487 6666 hestheimar@hestheimar.is • www.hestheimar.is Hestheimar eru ferðaþjónustubýli staðsett milli Selfoss og Hellu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.