Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 60
LÝÐHEILSUSTÖÐ HR17 Rannsóknarvinna. Fyrirlögn + innsláttur + úrvinnsla Forprófun á spurningalista sem er þýddur og staðfærður frá Bandaríkjunum. Það þarf að slípa listann til og ákveða í samstarfi við verkefnastjóra hversu stór hluti listans verður lagður fyrir. Fjöldi starfa: 1 HR18 Rannsóknarvinna, úrvinnsla úr gögnum Úrvinnsla úr hluta af gögnum úr rannsókninni Heilsa og líðan 2009 með SPSS forriti og stutt skýrsla. Fjöldi starfa: 1 MENNTA- OG MENNINGAR- MÁLARÁÐUNEYTIÐ FORNLEIFAVERND RÍKISINS MR01 Kortasjá Fornleifaverndar – skráningarsvæði Undanfarið hafa Loftmyndir ehf og Fornleifavernd verið að hanna kortasjá þar sem skrásetjarar fornleifa geta skilað inn gögnum sínum rafrænt til Fornleifaverndar. Með þessu móti verður hægt að sjá í kortasjá hvaða svæði er búið að skrá, hver sá um skráninguna og hvenær. Verkefnið fælist í því að setja inn eldri skýrslur með þessum sama hætti. Fjöldi starfa: 2 MR02 CARARE – skrá um fornleifauppgrefti Fornleifavernd ríkisins tekur þátt í Evrópuverkefninu CARARE. Hugmyndin er að finna leið til að samhæfa gögn um fornleifar og byggingararf og þar með gera þau aðgengileg í gegnum Europena (sjá http://www. europeana.eu) en það verkefni hefur mun víðari samhæfingu sem markmið. Verkefnið fælist í að yfirfara þá skrá sem til er um fornleifauppgrefti (1970-2010) og bæta við gögnum um eldri uppgrefti (1880-1970). Fjöldi starfa: 1 MR03 Skráning kirkjugripa í Sarp Samkvæmt þjóðminjalögum ber Fornleifavernd ríkisins að halda skrá yfir friðlýsta gripi í kirkjum landsins. Verkefnið fælist í því að skrá kirkjugripi inn í gagnagrunninn Sarp. Til að byrja með yrði áherslan lögð á að skrá upp úr bókunum: Kirkjur Íslands. Fjöldi starfa: 1 MR04 Skráning og skönnun bréfa- og skjalasafns um fornleifar Þjóðminjasafn Íslands hefur að geyma bréfa- og skjalasafn um fornleifar allt frá stofnun þess þar sem t.d. ábúendur hafa tilkynnt um fund á fornleifum vegna framkvæmda. Bréfasafnið er mikilvægar heimildir fyrir Fornleifavernd sem ber samkvæmt lögum að hafa yfirsýn yfir þekktar fornleifar á landinu. Verkefnið fælist í því að skrá þessi gögn og gera þau aðgengileg almenningi en þannig væri hægt að nýta betur gögnin t.d. við almenna fornleifaskráningu. Skanna þyrfti skjölin og skrá grunnupplýsingar. Fjöldi starfa: 2 MR05 Gagnagrunnur um minningarmörk Fornleifavernd ríkisins ber að halda skrá um minningarmörk á landinu öllu. Verkefnið fælist í uppsetningu á gagnagrunni (PostgreSQL) og hönnun viðmóts fyrir skráningu minningarmarka. Fjöldi starfa: 1 MR06 Vatnsdæluverkefni Starfið felst í að þróa verkefnið Vatnsdælaslóð í samvinnu við heimamenn í Húnaþingi vestra og Fornleifavernd ríkisins. Starfsmaðurinn tekur þátt í að bæta upplýsingagjöf til ferðamanna Þingeyrar, svo sem bæklingaútgáfu, hljóðleiðsögn, þróun reið- og gönguleiða, merkingum o.fl. Auk þess mun starfsmaðurinn sjá um leiðsögn og móttöku ferðamanna á Þingeyri. Fjöldi starfa: 1 MR07 Átaksverkefni á áhrifasvæði eldgoss úr Eyjafjallajökli Vegna eldgossins og ekki síst öskufallsins og flóða úr Eyjafjallajökli þarf að bregast við með ýmsum hætti við ástandinu. Meðal annars þarf að verja fornleifar eftir því sem hægt er, meta og skrá skemmdir á fornleifum, þ.m.t. friðlýstum hellum og hreinsa og lagfæra minjastaðina eftir því sem hægt er. Fjöldi starfa: 2 STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR Í ÍSLENSKUM FRÆÐUM MR08 Átaksverkefni í stafrænni hand- ritaskráningu Starfið felst í stafrænni skráningu handrita sem ekki hafa enn verið skráð með þeim hætti. Skráningin er gerð skv. alþjóðlegum staðli og xml-kóðuð. Skráningarþættir eru yfirfærðir úr eldri prentuðum skrám og endurskoðaðir eftir þörfum. Fjöldi starfa: 2 MR09 Skönnun örfilma af handritum úr erlendum bókasöfnum Starfið felst í stafrænni skönnun á 35mm örfilmum í eigu Árnastofnunar af íslenskum handritum sem varðveitt eru í erlendum söfnum, skráningu myndanna og frágangi á diskum. Fjöldi starfa: 1 MR10 Skönnun bréfa heimildarmanna í orðfræðisafni Starfið felst í því að skanna sýnishorn af bréfum heimildarmanna Orðabókarinnar og tengja efnið við skrá um flettiorð í talmálssafni. Markmiðið er að móta skönnunar- og skráningarferli sem á við bréfasafnið í heild sinni. Gert er ráð fyrir að starfsmaður semji að lokum stutta greinargerð um verkefni sitt. Fjöldi starfa: 1 MR11 Skönnun örnefnaskráa Gagnasafn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum yfir íslensk örnefni er mikið að vöxtum. Markmiðið er að gera allar þessar skrár stafrænar og aðgengilegar á netinu fyrir almenning og fræðimenn. Fjöldi starfa: 1 MR12 Skráning hljóðritaðs þjóðfræðiefnis Starfið felst í því að greina og skrá inn í gagnagrunn efni sem til er hljóðritað í þjóðfræðisafni. Efnið er skráð við hlustun en auk þess þarf að greina og skrá aðrar viðeigandi upplýsingar (metadata). Verkefnið er hægt að vinna hvar sem er á landinu. Fjöldi starfa: 2 MR13 Hönnun smágripa tengdum handritum Hönnun minjagripa sem tengjast íslenskum handritum. Um er að ræða tilraunaverkefni til að gefa nemum í hönnun tækifæri til að vinna með myndefni handritanna og skapa gripi eða vöru sem sprottnar séu af þeim. Fjöldi starfa: 2 MR14 Skráning bókasafns í Gegni Skráning á bókum sem berast stofnuninni í Gegni. Fjöldi starfa: 1 MR15 Val á myndum úr myndagögnum fyrir stafræna orðabók Verkefnið felst í því að velja myndefni úr myndabanka á vefnum í stafræna íslensk-skandinavísku orðabókina ISLEX. Myndefnið er tengt við viðeigandi flettiorð. Fjöldi starfa: 1 MR16 Gagnagrunnur: yfirnáttúrleg minni í fornaldarsögum Norðurlanda Gagnagrunnurinn auðveldar fræðimönnum jafnt sem stúdentum mjög að rannsaka fornaldarsögur Norðurlanda, sem eru á fimmta tug og fela í sér mörg hundruð sameiginleg atriði sem þarfnast skráningar. Skráningin felur í sér víðtæka tengingu efnisorða yfir í mismunandi texta, útgáfur o.s.frv. Fjöldi starfa: 1+1 MR17 Bragi óðfræðivefur http://ordab30.lexis. hi.is/bragi/ Verkefnið fælist annars vegar í því að ganga frá íslenskum miðaldakvæðum til birtingar á óðfræðivefnum Braga og samræma stafsetningu þeirra og hins vegar að velja og slá inn úr ákveðnum handritum lausavísur frá 19. og 20. öld. Fjöldi starfa: 3 (2 við ljóðasafn og 1 við lausavísur) MR18 Söfnun örnefna Örnefnaskrár eru til fyrir allar jarðir á Íslandi. Allnokkrar eru þó illa skráðar og stundum heilu hrepparnir. Mikilvægt er að skrá örnefni á hverjum stað eftir þeim sem best þekkja til. Það er kapphlaup við tímann. Fjöldi starfa: 1 MR19 Skráning á sögu örnefnasöfnunar Einstaklingur myndi vinna með elsta starfsmanni nafnfræðisviðs, fara yfir elstu skrár og skjöl um örnefnasöfnun. Skipulag örnefnasöfnun hefur staðið yfir í 100 ár og er hér um einstakt tækifæri fyrir áhugasaman einstakling til að læra um vinnubrögð söfnunar og skrá þau. Fjöldi starfa: 1 MR20 Vélræn leiðrétting á rafrænum textum frá fyrri tíð og samræming orðmynda Markmið verkefnisins sem starfið tengist er að þróa aðferðir og búnað til vélrænnar leiðréttingar á íslenskum textum frá 19. öld og upphafi 20. aldar sem hafa verið skannaðir fyrir vefsvæðið Tímarit.is þannig að þeir nýtist betur við málrannsóknir og orðabókagerð. Starfið yrði unnið á orðfræðisviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í samráði við og undir stjórn sérfræðinga. Fjöldi starfa: 2 KVIKMYNDASAFN ÍSLANDS MR21 Skráning á eldri safnmunum og gögnum Yfirfara þarf umbúðir og skráningu eldri kvikmynda og nýskrá í gagnagrunn. Yfirfara þarf og bæta við efnisgreiningu í tölvu, leiðrétta og nýskrá kvikmyndir sem eru rangt skráðar í grunninum og sömuleiðis skrá nýju aðföngin sem á sínum tíma hafa fengið sameiginlega skráningu og skrá þau hvert fyrir sig. Fjöldi starfa: 1 MR22 Skráning gagna Kvikmyndasafnið hefur tekið við miklum fjölda gagna, bæði frá Kvikmyndamiðstöð og öðrum stofnunum og einstaklingum sem mikil þörf er á að fái fulla skráningu. En flest eru lítt eða ekki skráð í gagnagrunn. Fjöldi starfa: 1 MR23 Skráning skjala Verkefnið fælist í því að skanna, skrá og ganga frá skjölum, auk skráningar rita sem eru ófrágengin hjá Kvikmyndasafni Íslands. Fjöldi starfa: 1 LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR MR24 Bætt aðgengi að Listasafni Einars Jónssonar Verk Einars eru táknræn og merking þeirra er ekki alltaf ljós. En hvaða áhrif hafa þau á gestinn? Með þá spurningu í huga er markmiðið með fyrirhuguðu verkefni að kynna safnið á þann hátt að hughrif safngestsins frammi fyrir verkunum - í safninu - fái ekki síður rúm en miðlun faglegrar þekkingar. Fjöldi starfa: 1 RÍKISÚTVARPIÐ OHF. MR25 Þættir um unglinga á Íslandi sumarið 2010 – viðhorf og hugmyndir Verkefnið felst í að skrásetja hugmyndir, skoðanir og lífsviðhorf unglinga árið 2010 og nota til þess útvarpsmiðilinn, eins konar samtímaspegill. Þáttastjórnandi mun fara á vettvang og taka viðtöl við ungmenni á aldrinum ca.14-18 ára við leik og störf. Fjöldi starfsmanna: 1 MR26 Skráning á verslun og þjónustu í Þingholtunum á 20. öld – Kaupmaðurinn á horninu Verkefnið felst í því að gera fléttuþátt um verslun og þjónustu í Þingholtunum frá aldamótunum 1900 til dagsins í dag. Rætt væri við fólk sem ólst upp í hverfinu og þannig reynt að skrásetja tímann þegar þjónusta var sérhæfð og persónuleg. Fjöldi starfsmanna: 1 MR27 Kynjahlutföll Markmiðið með verkefninu er að varpa ljósi á hvaða viðmælendur eru í þætti eins og Samfélaginu í nærmynd. Þátturinn er eins og annað efni útvarpsins ætlaður öllum landsmönnum án tillits til stéttar, stöðu eða aldurs og fróðlegt væri að vita til dæmis hvort kyn, menntun, aldur og búseta viðmælenda endurspegli samfélagið í raun og veru. Fjöldi starfsmanna: 1 MR28 Nýmiðlun á netinu Verkefnið snýst um það að taka myndbandsefni og miðla á nýjum vefjum en í dag er efnið geymt á margs konar sniði hjá Ríkisútvarpinu (RÚV). Efnið yrði sem sagt yfirfært á stafrænt form. Markmiðið er einhver hluti þessa efnis verði aðgengilegur í gegnum vef Ríkisútvarpsins og vefi samstarfsaðila. Fjöldi starfa: 2 MR29 Útvarpsleikrit – skráning Í safni Ríkisútvarpsins er mikið safn útvarpsleikrita en nokkuð skortir á að þau séu öll skráð með samræmdum hætti. Með skráningu þeirra er stuðlað að auknum aðgangi að einstöku safni þar sem mörg þessara leikrita, frumsamin íslensk sem og íslenskar þýðingar á erlendum verkum, eru hvergi annars staðar til nema í leikrita og upptökusafni Ríkisútvarpsins. Fjöldi starfa: 1 MR30 Safnakerfi RÚV Verkefnið felst í að samræma ýmsar skrár sem fylgja hinum fjölmörgu kerfum, þ.e. nafnaskrár og efnisorðaskrár og samræma skráningarfærslur svo yfirfærsla gagna gangi snurðulaust fyrir sig. Fjöldi starfa: 1 MR31 Flutningur gagna úr spjaldskrá í safnakerfi Um 600.000 spjöld eru í spjaldskrám RÚV og geyma upplýsingar um útvarpsdagskrá, sjónvarpsdagskrá auk tónlistarefnis. Færa þarf þetta efni yfir í safnakerfi RÚV til að auka aðgengi að safnaefninu. Fjöldi starfa: 2 MR32 Skráning bókasafns Ríkisútvarpinu berast oft bókagjafir frá höfundum og útgefendum á Íslandi og er allnokkuð magn óskráðra og þar með óaðgengilegra bóka á safninu. Um er að ræða mikið safn ljóðabóka, heimildarita auk annarra bóka sem nýtast við dagskrárgerð. Bókasafnið er ekki skráð í Gegni heldur safnakerfi RÚV og þarf þess vegna ekki sérstök réttindi til skráningar. Fjöldi starfa: 1 MR33 Skráning skjalasafns Verkefnið felst í að flokka, skrá og pakka þeim hluta skjalasafns RÚV sem skila má til Þjóðskjalasafns. Um er að ræða mikið magn ófrágenginna skjala og skýrslna. Fjöldi starfa: 2 MR34 Afritun tónlistarefnis Verkefnið felst í afritun/yfirfærslu tónlistarefnis af geisladiskum í safnakerfi RÚV. Lýsigögn um geisladiskana eru þegar skráð í gagnagrunn en nauðsynlegt er að tengja hlóðskrárnar við. Þegar er lokið við að afrita í safnakerfið íslenska tónlist aftur til ársins 2005. Fjöldi starfa: 2 LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS – HÁSKÓLABÓKASAFN MR35 Skönnunarverkefni í myndastofu Landsbókasafn rekur myndastofu í Reykjavík og á Amtsbókasafninu á Akureyri þar sem skönnuð eru gögn sem gerð eru aðgengileg á vef safnsins. Óskað er eftir starfsfólki við skönnun á handritum og tímaritum. Fjöldi starfa: 1 í Reykjavík og 1 á Akureyri MR36 Átak í uppröðun, frágangi og merkingum á safnefni Óskað er eftir starfsmönnum til að sinna frágangi og merkingum á ýmis konar safnefni, s.s. smælki. Í störfunum felast einnig verkefni í geymslu safnsins í Mjódd og hillumerkingar í Þjóðarbókhlöðu. Fjöldi starfa: 2 MR37 Átaksverkefni við innköllun tónlistarefnis Eitt meginhlutverk Landsbókasafns er að safna til hins ýtrasta öllu efni sem gefið er út á Íslandi og gera þarf átak í að innheimta tónlist. Í starfinu felst einnig flokkun og frágangur á tónlistarefni. Fjöldi starfa: 1 MR38 Verkefni í handritadeild og þjóðdeild Óskað er eftir starfsmanni til að flokka, skrá og búa um handritagjafir og annað efni. Auk þess bíða verkefni við innslátt prentaðra handritaskráa í gagnagrunn. Þjóðdeild þaulsafnar gögnum er varða Ísland og Íslendinga. Óskað er eftir starfsmanni við skráningu, flokkun og frágang á ljósmyndasafni sem safnið fékk að gjöf. Fjöldi starfa: 3 MR39 Viðhorfskannanir Landsbókasafn þarf starfsmann til að undirbúa og semja kannanir á viðhorfi háskólastarfsmanna og annarra safngesta til safnsins og þjónustu þess. Fjöldi starfa: 1 MR40 Vefur Kvennasögusafns Starfið felst í uppsetningu á nýjum vef Kvennasögusafns, kvennasogusafn.is, sem miðlar þekkingu um kvennasögu og rannsóknir. Fjöldi starfa: 1 NÁTTÚRUMINJASAFN ÍSLANDS MR41 Skeljasafn Greining skelja í skeljasafni Jóns Þorvaldssonar sem safninu var gefið síðastliðið haust. Fjöldi starfa: 1 MR42 Upphaf Náttúrugripasafnsins Innskráning aðfangaskrár gamla Náttúrugripasafnsins. Fjöldi starfa: 1 ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS MR43 Fornleifafræði Úrvinnsla rannsóknargagna Bessastaðarannsóknar -Starfið er einkum fólgið í stafrænni gagnavinnslu við teikningar og ítarskráningu gripa í gagnagrunna vegna útgáfu skýrslna um fornleifauppgröftinn á Bessastöðum sem fram fór á árunum 1987 - 1996. Fjöldi starfa: 1 MR44 Átak við skráningu hljóðritasafns Þjóðminjasafns Íslands Starfið felst einkum í að skrásetja hljóðrit þjóðháttasafns inn í gagnagrunninn Sarp, tengja stafrænar upptökur við gagnasafnið, slá inn tiltækar upplýsingar um önnur og eldri hljóðrit Þjóðminjasafns ásamt því að vinna að undirbúningi á stafrænni afritun þess hluta hljóðritasafnsins og frágangi gagna. Fjöldi starfa: 1 starf MR45 Ljósmyndun á Íslandi undir lok 20. aldar – rannsóknarverkefni Starfið felst í að afla munnlegra heimilda og vinna úr þeim. Kanna þarf fyrirliggjandi heimildir, taka viðtöl í samstarfi við starfsfólk Ljósmyndasafns Íslands, sjá um að afrita þau í ritvinnslu og vinna sögulegt yfirlit yfir tímabilið. Fjöldi starfa: 1 MR46 Tækniminjar og tækniþróun á 20. öld – átaksverkefni Markmið verkefnisins er fjórþætt: 1) Gerð yfirlits um tækniminjar í vörslu Þjóðminjasafns (aðbúnaður, skráning, merkingar, o.s.frv.); 2) gerð yfirlits yfir tækniminjar á Íslandi með nýtingu á Sarpi – menningarsögulegu gagnasafni; 3) gerð tillögu að stefnumótun um söfnun/grisjun á tækniminjum og 4) efling samstarfs safna sem starfa á sviði tækniminja. Fjöldi starfa: 3 MR47 Stúdentasöfnunin 1976 – skráningarátak Safnið óskar eftir að fá til starfa nemanda til að skrásetja gögnin í Sarp – menningarsögulegt gagnasafn, sem dregin voru saman í stúdentasöfnuninni 1976. Starf námsmanns er: 1) Að flytja texta inn í Sarp og tengja við viðkomandi heimildarmenn, skrásetjara og skýrsluhöfunda. 2) Að skrásetja filmur, teikningar, kort og dagbækur í Sarp og tengja við hlutaðeigandi texta og heimildarmenn. Fjöldi starfa: 1 MR48 Skráningarátak hjá Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni Íslands Um er að ræða átak í innslætti á grunnupplýsingum um ljósmyndir í Ljósmyndasafni Íslands hjá Þjóðminjasafni. Starfið felst einnig í því að ganga frá ljósmyndum og filmum til langtímavarðveislu. Fjöldi starfa: 2 MR49 Vöruhönnun fyrir safnbúð Þjóðminjasafns Íslands Safnið hefur áhuga á að fá til starfa nemendur úr vöruhönnun og grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands til að hanna nýjan grip/gripi og umbúðir utan um hann/þá. Mikilvægt er að þeir gripir hafi skírskotun í safngripina. Fjöldi starfa: 2 MR50 Sýningar í Bogasal Þjóðminjasafnsins (1950-1998) – greiningarátak Þjóðminjasafnið óskar eftir að fá til starfa nemanda í átaksverkefni við greiningu sýninga í Bogasalnum eftir efnissviðum og mikilvægi fyrir íslenska lista- og menningarsögu með hliðsjón af sýningarskrám sem varðveittar eru í Bóka- og heimildasafni Þjóðminjasafns Íslands. Verkefnið felst m.a. í flokkun, efnislyklun, skráningu með umsögn, greiningu og samantekt niðurstaðna í skýrslu. Fjöldi starfa: 1 MR51 Átak í kynningu á Húsasafni Þjóðminjasafns Íslands – Teigarhorn Starfið felst í að afla heimilda í skjalasöfnum og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.