Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 4
4 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 07.05.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,9651
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,83 129,45
189,38 190,30
164,53 165,45
22,101 22,231
20,736 20,858
16,835 16,933
1,395 1,4032
191,58 192,72
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
fyrir alla sem
alveg grillaður!
áððþí
á ðð
LÖGREGLUMÁL Sérstakur saksókn-
ari hyggst nýta tímann sem Hreið-
ar Már Sigurðsson og Magnús
Guðmundsson,
fyrrverandi
bankastjórar
Kaupþings,
sitja í gæslu-
varðhaldi til að
yfirheyra alla
þá sem tengj-
ast meintum
lögbrotum tví-
menninganna.
Samkvæmt
heimildum
Fréttablaðsins
eru þeir, sem
talið er mjög
brýnt að ná
tali af áður en
gæsluvarðhald-
ið rennur út, á
þriðja tug, bæði
sakborningar
í málunum og
vitni sem talin
eru geta varp-
að frekara ljósi
á málið.
Þ e i r r a á
meðal eru aðrir
fyrrverandi
stjórnendur úr
Kaupþingi; þeir
Sigurður Ein-
arsson, fyrr-
verandi stjórn-
arformaður,
Ingólfur Helgason, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings á Íslandi, og
Steingrímur P. Kárason, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri áhættu-
stýringar bankans. Sigurður er
búsettur í London en Ingólfur og
Steingrímur í Lúxemborg og hafa
þar rekið ráðgjafarfyrirtækið
Consolium með Hreiðari Má.
Þremenningarnir hafa allir verið
boðaðir í yfirheyrslur hérlend-
is í næstu viku en hugsanlegt er
að þeim verði flýtt í ljósi atburða
síðustu daga. Fram kom í fréttum
Stöðvar 2 í gær að sérstakur sak-
sóknari hefði þegar farið þess á
leit við Sigurð að hann flýtti komu
sinni til landsins en að hann hefði
ekki sinnt þeim boðum.
Hreiðar og Magnús voru báðir
úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær,
Hreiðar í tólf daga og Magnús í sjö
daga. Þeir kærðu báðir úrskurðina
til Hæstaréttar, sem kveður upp
dóma eftir helgi. Þangað til dvelja
bankastjórarnir fyrrverandi í
einangrun á Litla-Hrauni.
Ástæða varðhaldsins er grunur
um stórfellda markaðsmisnotk-
un í starfsemi Kaupþings mán-
uðina fyrir hrun. Hún fór þannig
fram að bankinn lánaði félögum,
meðal annars á vegum sjeiks Al-
Thani frá Katar, Skúla Þorvalds-
sonar og Kevins Stanford, háar
upphæðir til að kaupa hlutabréf
í bankanum. Þannig var komið í
veg fyrir að gengi bréfa í bankan-
um félli. Alls námu þessi vafasömu
viðskipti Kaupþings hátt í hundr-
að milljörðum. Inn í þetta flétt-
ast önnur meint lögbrot, svo sem
umboðssvik og skjalafals.
Sérstakur saksóknari rannsakar
jafnframt mál af öðrum toga tengd
Kaupþingi en þau liggja ekki bein-
línis til grundvallar gæsluvarðhald-
inu, samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins, þótt ekki sé útilokað að
einnig verði yfirheyrt vegna þeirra
á næstunni. stigur@frettabladid.is
Yfirheyra þarf tugi manna
áður en varðhaldinu lýkur
Saksóknari hyggst yfirheyra á þriðja tug sakborninga og vitna á meðan Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús
Guðmundsson sitja inni. Þrír fyrrverandi stjórnendur Kaupþings hafa verið boðaðir í yfirheyrslur eftir helgi.
ÚRSKURÐAÐIR Í VARÐHALD Hreiðar Már og Magnús munu verða í einangrunar-
klefum á Litla-Hrauni fram yfir helgi hið minnsta. Þá mun Hæstiréttur taka
afstöðu til kæru tvímenninganna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SIGURÐUR
EINARSSON
INGÓLFUR
HELGASON
STEINGRÍMUR P.
KÁRASON
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings Group, og Magnús
Guðmundsson, sem áður stýrði Kaupþingi í Lúxemborg, eru jafnaldrar og
luku báðir stúdentsprófi árið 1990. Hreiðar er stúdent frá Verzlunarskóla
Íslands og Magnús frá Menntaskólanum við Sund. Þeir hófu á sama tíma
nám við viðskiptaskor Háskóla Íslands á endurskoðunarsviði og útskrifuðust
saman árið 1994. Báðir voru svo ráðnir til Kaupþings í maí 1994. Hreiðar
Már var ráðinn framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Hávöxtunarfélagsins hjá
Kaupþingi og Magnús forstöðumaður hjá Kaupþingi, að því er fram kemur í
Viðskipta- og hagfræðingatalinu. - óká
Voru samstiga í námi og inn í Kaupþing
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
17°
14°
8°
17°
19°
7°
7°
21°
9°
23°
24°
33°
14°
17°
16°
7°
11
Á MORGUN
Strekkingur við A-strönd,
annars hægari.
MÁNUDAGUR
Strekkingur við A-
strönd, annars hægari.
8
7 5
4
10 7
6
6
8
7
8
8
9
5
11
10
14
8
7
5
75
8
4
4
3
4
3
3
3
4
HÆGUR VINDUR
Það blæs af vestri á
landinu í dag. Skýj-
að verður víða eða
þokumóða með
ströndum en inn til
landsins gæti létt
til yfi r miðjan dag-
inn. Síðdegis snýst
til norðanáttar og
á morgun verður
víða bjart eða bjart
með köfl um en
það kólnar í veðri.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
SKÁK
Anand og Topalov enn jafnir
Tíundu viðureign Viswanathans
Anand og Veselins Topalov um
heimsmeistaratitilinn í skák lauk með
jafntefli í gær. Anand var með svart
og beitti Grünfelds-vörn líkt og í fyrstu
skákinni. Þeirri skák tapaði hann eftir
aðeins klukkustundar langa viðureign
en í þetta sinn hélt hann jafntefli.
Anand og Topalov eru því jafnir þegar
tvær skákir eru eftir.
DÓMSMÁL Stjórn Banque Havilland
í Lúxemborg ákvað í gær að leysa
Magnús Guðmundsson bankastjóra
frá störfum. Við tekur Jonathan
Rowland, einn eigenda bankans.
Brottreksturinn kemur í fram-
haldi af yfirlýsingu sérstaks sak-
sóknara þess efnis að Magnús,
ásamt Hreiðari Má Sigurðssyni,
fyrrverandi forstjóra Kaupþings,
sé grunaður um markaðsmisnotk-
un, skjalafals og fleiri mál í aðdrag-
anda falls Kaupþings í október 2008.
Magnús var bankastjóri Kaupþings
í Lúxemborg og tók við bankastjóra-
stólnum þegar Rowland-fjölskyldan
keypti bankann af skilanefnd Kaup-
þings í júlí í fyrra.
Magnús var í gær úrskurðaður í
vikulangt gæsluvarðhald fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær. Ákvörð-
un héraðsdóms hefur verið kærð til
Hæstaréttar.
Jonathan Rowland vildi ekki tjá
sig um málið umfram það sem fram
kom í tilkynningu frá bankanum í
gær þegar Fréttablaðið leitaði eftir
því. Þá náðist ekki í Karl Axelsson,
lögmann Magnúsar, þegar eftir því
var leitað í gær. Haft var eftir Karli í
fjölmiðlum í gær að hann væri mjög
ósáttur við gæsluvarðhaldið. - jab
Einn eigenda Banque Havilland í Lúxemborg tekur við stjórn bankans:
Magnús missti bankastjórastólinn
Í GÆSLUVARÐHALDI Magnús Guðmunds-
son gæti sótt bætur til ríkisins vegna
gæsluvarðhalds að ósekju verði hann
sýknaður um markaðsmisnotkun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Magnús getur sótt um bætur
til ríkisins eins og aðrir verði
hann sýknaður. En það tekur
því varla að sækja slík mál,“
segir Brynjar Níelsson hæsta-
réttarlögmaður.
Bætur vegna gæsluvarðhalds
að ósekju hafa numið á bilinu
tvö til þrjú hundruð þúsund
krónum.
Brynjar segir niðurstöðu
Héraðsdóms Reykjavíkur um
gæsluvarðhald verða að hvíla
á traustum grunni og ný gögn
hljóti að hafa komið fram.
Tekur því ekki að
sækja bætur
LÖGREGLUMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra segir
að aðgerðir sérstaks saksókn-
ara marki tímamót í endurreisn
íslensks samfélags eftir banka-
hrun.
Þetta kom fram í máli forsætis-
ráðherra á blaðamannafundi eftir
ríkisstjórnarfund í gær. Jóhanna
fagnaði aðgerðum sérstaks
saksóknara.
„Ég held að við séum á ákveðn-
um tímamótum í þessu máli og
handtökum sem áttu sér stað í
gær vegna þess að þær eru stór
liður í því að við getum náð sátt-
um í þessu samfélagi og að þeir
axli ábyrgð sem hana bera,” sagði
Jóhanna.
Undir þetta sjónarmið tók
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra. - shá
Jóhanna Sigurðardóttir:
Aðgerðin er
fagnaðarefni
FORSÆTISRÁÐERRA Segir handtökur
bankastjóra marka tímamót.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALVEG GRILLAÐUR
Grillosturinn bráðnar betur en aðrir ostar og hentar því
einstaklega vel á hamborgara eða annan grillaðan mat.
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA