Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 24
24 8. maí 2010 LAUGARDAGUR Hálfu öðru ári eftir hrun íslenska bankakerfisins hefur orðið hávær- ari krafan um sýnilegan afrakstur rann- sóknarvinnu sérstaks saksóknara og annarra sem treyst hefur verið til að komast til botns í meintum sakarefn- um tengdum hruninu. Skv. íslenskum lögum eru menn saklausir þar til sekt þeirra hefur verið sönnuð. Speglar það ekki vissa örvæntingu og vísbendingu um getuleysi rannsóknaraðila og ákær- enda að boða síendurtekið til blaða- mannafunda og tilkynna að til standi að rannsaka þennan eða hinn og láta birta myndir af hinum sömu? Er sú lenska ekki með öllu óþolandi að þeir sem treyst hefur verið til svo vandasamra verka af sjálfu ríkinu skuli síendurtek- ið leita á náðir dómstóls götunnar í stað þess að vinna verk sín í kyrrþey, birta síðan ákærur ef einhverjar eru og láta dómstólum eftir að dæma? Við minnumst miskunnarleysis og handjárnunar vegna Hafskipsmálsins á níunda áratugnum sem síðan reyndist tilbúningur samkeppnisaðila. Lærðum við af því? Ekki nokkurn skapaðan hlut. Íslenskir embættis- og rannsóknar- menn hafa ítrekað beitt þeim ráðum á undanförnum árum að kalla til fjölmiðla og þarmeð dómstól götunnar þegar kosið hefur verið að klekkja á einhverjum ÁÐUR en rannsókn, ákæra og dómur liggur fyrir. Nægir þar að nefna innrás skattrann- sóknarstjóra í Norðurljós Jóns Ólafsson- ar á sínum tíma, mislukkaða tilraun til að hneppa Jón Ásgeir í handjárn á Kefla- víkurvelli er hann kaus á síðustu stundu að lenda í Reykjavík og fjölmarga blaða- mannafundi sérstaks saksóknara, ríkis- lögreglustjóra og skattrannsóknarstjóra á undanförnum misserum með gömlu tugguna: „Okkur grunar að þessi eða hinn eigi skilið ærlega ráðningu, við ætlum að kalla hann fyrir, rannsaka, ákæra og láta dæma ef kostur er … hmm … en hér er sumsé skúrkurinn!“ Þessari aðferðafræði rannsóknar- og ákæruaðila hljóta allir sæmilega inn- rættir Íslendingar að hafna gjörsamlega og furðulegt að enginn hafi til þessa haft döngun í sér til þess að gera það opinber- lega svo eftir sé tekið. Er það ekki bein vísbending um getu- leysi, kvíða og skort á sjálfstrausti sér- staks saksóknara að freistast til þess að kalla til fjölmiðla og stinga tveimur mönnum í tugthús ÁÐUR en mál þeirra hafa verið krufin til mergjar, ákæra birt og dómur upp kveðinn. Rætt hefur verið um „rannsóknarhagsmuni“ en vitað er að legið hefur verið yfir þessum málum frá því í fyrra og ekkert nýtt komið fram. Kynni það að vera stærsta áhyggju- efni sérstaks saksóknara að forsíðu- myndir blaðanna í gær af handtöku tveggja bankamanna verði einu handtök- umyndirnar sem hann nái að kreista úr öllu sínu puði og því eins gott að grípa til krassandi PR-bragðs án tafar? Létta aðeins á þrýstingnum? Sefa vinnuveit- endur sína? Um sekt eða sakleysi umræddra aðila skal algerlega ósagt látið. Vitað er að þeir eiga börn á viðkvæmum aldri og fjölskyldur sem hljóta að vera í losti. Væri umrædd handtaka afrakstur þeirr- ar vinnu sem sérstökum saksóknara var sett fyrir, þ.m.t. ákæru og fenginni niðurstöðu dómstiganna tveggja gegndi öðru máli. Okkur ber að standa vörð um hugtakið réttarríki á Íslandi. Því er um þessar mundir mjög í tvísýnu teflt af embættis- mönnum sem ekki virðast starfi sínu vaxnir og brjóta beinlínis lög með fram- ferði sínu. Dómsmálaráðherra ber hér eftir að víkja tafarlaust úr starfi emb- ættismönnum sínum sem hyggjast starfa með þessum hætti. Það er einfaldlega nóg komið. Réttarríkið er í húfi. Forkastanleg vinnubrögð sérstaks saksóknara! Réttarkerfið Jakob Frímann Magnússon framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar og formaður STEF & FTT Kynni það að vera stærsta áhyggjuefni sérstaks sak- sóknara að forsíðumyndir blaðanna í gær af hand- töku tveggja bankamanna verði einu handtökumynd- irnar sem hann nái að kreista úr öllu sínu puði og því eins gott að grípa til krassandi PR-bragðs án tafar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.